Bæjarráð, fundur 571
16. júlí 2018, kl. 08:30 til 12:25, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 250 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu. Bæjarráð afgreiddi mál fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2018 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1805053 Allur ferill málsins
Framlögð samantekt fjármálastjóra yfir rekstur og fjárfestingar janúar - maí 2018 og skatttekjur og launakostnað janúar - júní 2018.
-
2. Fjárhagslegur samruni Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar
Mál 1804127 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað KPMG um framsetningu ársreiknings vegna sameiningar Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps.
-
3. Greiðsluáætlun frá Jöfnunarsjóði vegna sameiningar sveitarfélaganna.
Mál 1805015 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þar sem gerð er grein fyrir endanlegri ákvörðun um framlög vegna sameiningar sveitarfélaganna Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps. Skuldajöfnunarframlög nema 457 milljónum kr., framlag til þróunar og sameiningar nemur 157 milljónum og tekju- og útgjaldajöfnunarframlag nemur 50 milljónum. Þá veitir sjóðurinn aukalega 1,3 milljón kr. viðbótarframlagi vegna útlagðs kostnaðar við undirbúning sameiningar. Fjármálastjóra falið að yfirfara framlög miðað við fyrri áætlanir. Jafnframt vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun ársins 2018.
-
4. Eskifjarðarkirkja - erindi vegna lóðarleigu.
Mál 1803076 Allur ferill málsins
Framlögð umsögn Guðjóns Bragasonar um álagningu á lóðarleigu á kirkjur íslensku þjóðkirkjunnar, vinnuskjal fjármálastjóra og fyrri gögn um erindi vegna Eskifjarðarkirkju. Bæjarráð er sammála um að fella niður lóðarleigu á árinu 2018 og framvegis. Vísað til meðferðar hjá fjármálastjóra.
-
5. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2018
Mál 1807017 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn til Ofanflóðasjóðs um lán vegna ofanflóðaframkvæmda á árinu 2017. Lántakan, ef af verður, er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2018. Fjármálastjóra falið að ganga frá umsókn.
-
6. Uppfærsla á NAV kerfi Fjarðabyggðar
Mál 1804131 Allur ferill málsins
Lagðir fram samningar við Wise um uppfærslu á Microsoft Dynamic NAV kerfi Fjarðabyggðar ásamt hýsingu og þjónustu við kerfið. Áður á dagskrá bæjarráðs 30. apríl sl. Bæjarráð samþykkir samningar og felur bæjarritara undirritun þeirra.
-
7. Tillaga að sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar
Mál 1606124 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að sölu eigna Fjarðabyggðar en tillagan er samvinna sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og félagsmálastjóra. Málið var tekið fyrir á fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar 7.maí sl. Bæjarráð samþykkir framlagðan lista með tillögum að sölu eigna. Jafnframt samþykkir bæjarráð að eignir verði settar á sölu um leið og þær losna úr leigu. Fjármálastjóra og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs, falið umhald á sölu eignanna.
-
8. Fjárlög - Ofanflóðavarnir
Mál 1702040 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sat Hafsteinn Pálsson frá Ofanflóðasjóði. Farið yfir yfirstandandi framkvæmdir við ofanflóðavarnir, frágang svæða á Eskifirði í Ljósá og Lambeyrará auk annarra frágangsmála .
Jafnframt farið yfir fjárveitingar næstu ára við ofanflóðavarnir á Eskifirði og Norðfirði og framkvæmda- og tímaáætlanir næstu þriggja ára. Þá var farið yfir stöðu hönnunar mannvirkja og kynnt hönnun sem fyrir liggur við næstu framkvæmdir.
-
9. Leiga á snjóbíl
Mál 1805107 Allur ferill málsins
Minnisblað bæjarstjóra um fund með Hlífari Þorsteinssyni er varðar málefni snjóbíls. Í minnisblaðinu kemur fram tillaga að lausn málsins sem aðilar hafa komið sér saman um. Samningur frá október 1997 lagður fram til upplýsinga. Forseti bæjarstjórnar mun funda með forsvarsmanni Austfjarðaleiðar í ágúst og leggja niðurstöðu fyrir bæjarráð.
-
10. Upplýsingatæknimál - endurskoðun þráðlausra kerfa
Mál 1807063 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað vegna reksturs á þráðlausum kerfum sveitarfélagsins. Lagt er til að farið verði í heildarendurnýjun á þráðlausum búnaði til hagræðingar í rekstri. Bæjarráð samþykkir tillögu er fram kemur í minnisblaði. Bæjarritara falið að vinna málið áfram.
-
11. Málefni laxeldis í Fjarðabyggð
Mál 1807059 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu fulltrúar Laxa hf. Gunnar Steinn Gunnarsson og Einar Örn Gunnarsson. Farið var yfir stöðu laxeldismála í Fjarðabyggð. Atvinnu- og þróunarfulltrúa falið að vera áfram í samskiptum við fulltrúa Laxa. Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum af seinagangi í útgáfu leyfa í tengslum við laxeldi og hvetur stofnanir hins opinbera að gæta jafnræðis í leyfisveitingum sem byggi á faglegum og málefnalegum rökum.
-
12. Fundargerðir upplýsingaöryggisnefndar
Mál 1805262 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar sem trúnaðarmál, fundargerð 3ja fundar upplýsingaöryggisnefndar.
-
13. Starfslýsing framkvæmdastjóri hjúkrunarheimila
Mál 1707017 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað félagsmálastjóra um fyrirkomulag starfs framkvæmdastjóra hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð. Starf framkvæmdastjóra verður auglýst á næstunni.
-
14. Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030
Mál 1701199 Allur ferill málsins
Auglýsingartíma vegna Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030 er lokið. Athugasemdir bárust frá átta einstaklingum og umsagnaraðilum. Lögð fram umsögn vegna athugasemda og tillaga að afgreiðslu, dagsett 9. júlí 2018. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að greinargerð og uppdrætti verði breytt í samræmi við tillögu. Um er að ræða minniháttar breytingar og lagfæringar sem ekki eiga við megin atriði aðalskipulagsins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030 fyrir sitt leyti og vísaði endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar til fyrri umræðu. Bæjarráð vísar Aðalskipulagi Breiðdalshrepps 2018 - 2030 til síðari umræðu.
-
15. 425.mál - til umsagnar frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða,
Mál 1804108 Allur ferill málsins
Bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytis frá 10.júlí þar sem óskað er eftir að Fjarðabyggð, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður og Djúpavogshreppur, tilnefndi sameiginlega þrjá aðalmenn og þrjá til vara í svæðisráð vegna strandsvæðisskipulags á Austfjörðum. Forseta bæjarstjórnar falið að kanna með tilnefningar annarra sveitarfélaga. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
16. 740 Deiliskipulag Naust 1 - Breyting við Landanaust
Mál 1805043 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Naust 1, breyting við Landanaust, dagsett 5. júlí 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt breytinguna fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar. Bæjarráð staðfestir breytingu á deiliskipulagi Naust 1.
-
17. Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi
Mál 1804081 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi þar sem kallað er eftir tillögum að ályktunum fyrir aðalfund. Tekið fyrir að nýju á fundi bæjarráðs í byrjun ágúst.
-
18. Stjórnarfundur SvAust 2018
Mál 1803025 Allur ferill málsins
Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar SvAust frá 13. og 26. júní og 5.júlí.
-
19. Erindisbréf öldungaráðs
Mál 1805131 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir erindisbréf öldungaráðs.
-
20. Fullnaðarafgreiðslur embættismanna og prókúra 2018
Mál 1806117 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn samþykkti á fundi 2.júlí að vísa til síðari umræðu í bæjarráði í umboði bæjarstjórnar, samþykkt um viðauka við samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar - viðauki um fullnaðarafgreiðslur embættismanna. Bæjarráð samþykkir viðauka um fullnaðarafgreiðslur embættismanna.
-
21. Upplýsingaöryggisstefna
Mál 1805200 Allur ferill málsins
Upplýsingaöryggisstefnu vísað til síðari umræðu í bæjarráði í umboði bæjarstjórnar. Bæjarráð samþykkir upplýsingaöryggisstefnu.
-
22. Útvistunarstefna upplýsingatæknimála
Mál 1805201 Allur ferill málsins
Útvistunarstefnu upplýsingatæknimála vísað til síðari umræðu í bæjarráði í umboði bæjarstjórnar. Bæjarráð samþykkir útvistunarstefnu upplýsingatæknimála.
-
23. Persónuverndarstefna
Mál 1805202 Allur ferill málsins
Persónuverndarstefnu vísað til síðari umræðu í bæjarráði í umboði bæjarstjórnar. Bæjarráð samþykkir persónuverndarstefnu.
-
24. Erindisbréf landbúnaðarnefnd
Mál 1806132 Allur ferill málsins
Erindisbréfi Landbúnaðarnefndar visað til seinni umræðu í bæjarráði í umboði bæjarstjórnar. Bæjarráð samþykkir erindisbréf Landbúnaðarnefndar.
-
25. Mannauðsstefna Fjarðabyggðar
Mál 1805210 Allur ferill málsins
Framlögð til umræðu endurskoðun á mannauðsstefnu Fjarðabyggðar. Mannauðsstefnan var staðfest í lok árs 2016. Ekki eru lagðar til breytingar á mannauðsstefnu. Bæjarráð samþykkir mannauðsstefnu.
-
26. Starfsskyldur og hlutverk stjórnenda Fjarðabyggðar
Mál 1805174 Allur ferill málsins
Framlagðar starfsskyldur stjórnenda til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Starfsskyldurnar eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir starfsskyldur stjórnenda.
-
27. Reglur um námsstyrki til stofnana
Mál 1805177 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um námsstyrki til stofnana til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um námsstyrki eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um námsstyrki til stofnana.
-
28. Aðgerðir í vinnuvernd
Mál 1805178 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um aðgerðir í vinnuvernd til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Aðgerðirnar eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um aðgerðir í vinnuvernd.
-
29. Ráðningarferli hjá Fjarðabyggð
Mál 1805179 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um ráðningarferli til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Ráðningarferlið er lagt fram til staðfestingar óbreytt.
Bæjarráð samþykkir reglur um ráðningarferli.
-
30. Reglur um auglýsingu starfa og ráðningu
Mál 1805180 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um auglýsingu starfa og ráðningu til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglurnar um auglýsingar eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um auglýsingu starfa og ráðningu.
-
31. Reglur um áreitni og einelti á vinnustað
Mál 1805181 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um áreitni og einelti til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna.
Reglur um áreitni og einelti eru lagðar fram uppfærðar eftir vinnu starfshóps sem falið var að endurskoða reglur m.t.t. áherslan sveitarfélagsins um viðbrögð og forvarnir vegna kynbundins og kynferðislegs áreitis og ofbeldis. Bæjarráð samþykkir reglur um áreitni og einelti.
-
32. Reglur um fjarvistir
Mál 1805182 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um fjarvistir til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um fjarvistir eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um fjarvistir.
-
33. Reglur um heislu- og vinnuvernd
Mál 1805183 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um heilsu- og vinnuvernd til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um heilsu- og vinnuvernd eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um heilsu- og vinnuvernd.
-
34. Reglur um kjör starfsmanna
Mál 1805184 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um kjör starfsmanna til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um kjör starfsmanna eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um kjör starfsmanna og vísar þeim til vinnu í tengslum við jafnlaunavottun.
-
35. Reglur um launalaust leyfi ( og lækkað starfshutfall )
Mál 1805185 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um launalaust leyfi til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um launalaus leyfi eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um launalaust leyfi.
-
36. Reglur um meðferð brota í starfi áminningar, frávikningar og uppsagnir
Mál 1805186 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um meðferð brota í starfi til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um meðferð brota í starfi eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um meðferð brota í starfi.
-
37. Reglur um móttöku nýrra starfsmanna
Mál 1805187 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um móttöku nýrra starfsmanna til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um móttöku nýrra starfsmanna eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um möttöku nýrra starfsmanna.
-
38. Reglur um notkun á bifreiðum
Mál 1805188 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um notkun á bifreiðum til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um notkun á bifreiðum eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um notkun á bifreiðum.
-
39. Reglur um skil launagagna
Mál 1805189 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um skil launagagna til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um skil launagagna eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um skil launagagna.
-
40. Reglur um starfslok
Mál 1805190 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um starfslok til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um starfslok eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um starfslok.
-
41. Reglur um starfsþróun og starfsferil
Mál 1805191 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um starfsþróun og starfsferil til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um starfsþróun og starfsferil eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um starfsþróun og starfsferil.
-
42. Reglur um tímavinnu eftir sjötugt
Mál 1805192 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um tímavinnu eftir sjötugt til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um tímavinnu eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um tímavinnu eftir sjötugt.
-
43. Reglur um viðveruskráningu
Mál 1805193 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um viðveruskráningu til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um viðveruskráningu eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir reglur um viðveruskráningu.
-
44. Siðareglur stjórnenda
Mál 1805194 Allur ferill málsins
Framlagðar siðareglur stjórnenda til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Siðareglurnar eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir siðareglur stjórnenda.
-
45. Reglur um sveigjanlegan vinnutíma
Mál 1805196 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um sveigjanlegan vinnutíma til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um sveigjanlegan vinnutíma eru lagðar fram til staðfestingar óbreytt. Bæjarráð samþykkir reglur um sveigjanlegan vinnutíma.
-
46. Leiðbeinandi reglur um starfslok og stórviðburði í lífi starfsmanna
Mál 1805198 Allur ferill málsins
Framlagðar leiðbeinandi reglur um starfslok og stórviðburði starfsmanna til endurskoðunar vegna sameiningar sveitarfélaganna. Reglur um starfslok og stórviðburði starfsmanna eru lagðar fram til staðfestingar óbreyttar. Bæjarráð samþykkir leiðbeinandi reglur um starfslok og stórviðburði starfsmanna.
-
47. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 208
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 208 frá 9.júlí 2018, samþykkt samhljóða í umboði bæjarstjórnar.
- 47.1 Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030, umsögn1701199
- 47.2 Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla1606146
- 47.3 Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 - 2028, breyting á legu Kröflulínu 31805012
- 47.4 740 Deiliskipulag Naust 1 - Breyting við Landanaust1805043
- 47.5 735 Langidalur 11 - fyrirspurn um stækkun á bílskúr1807018
- 47.6 740 Egilsbraut 19 - byggingarleyfi1804002
- 47.7 750 Búðavegur 37a - Byggingarleyfi -breyting utan húss1806043
- 47.8 Umsókn um að setja ærslabelg við tjaldstæðið á Norðfirði1807008
- 47.9 Umsókn um að setja ærslabelg innan lóðar Grunnskólanns á Reyðarfirði1807007
- 47.10 730 Eyri - Efnistaka1806182
- 47.11 Erindi Síldarvinnslunnar1806180
- 47.12 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 20221806029