Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 570

5. júlí 2018, kl. 09:00 til 08:59, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 250 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu. Bæjarráð afgreiddi mál fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

    Til máls um fundargerðir bæjarráðs tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Einar Már Sigurðarson.

Dagskrá

  1. 1. Ráðning bæjarstjóra 2018

    Mál 1806034 Allur ferill málsins

    Um starf bæjarstjóra sóttu eftirtaldir.

    Ármann Halldórsson

    Gísli Halldór Halldórsson

    Guðmundur Helgi Sigfússon

    Karl Óttar Pétursson

    Sigurður Torfi Sigurðsson

    Snorri Styrkársson

    Sveinbjörn Freyr Arnaldsson

    Meirihluti bæjarráðs leggur til að Karl Óttar Pétursson verði ráðinn bæjarstjóri Fjarðabyggðar kjörtímabilið 2018 - 2022. Formanni bæjarráðs og forseta falið að ganga frá ráðningarsmningi við Karl.

    Að ráðninguni standa Framsókn og óháðir, Fjarðalistinn og Miðflokkkurinn. Sjálfstæðisflokkurinn stiur hjá við ráðningu.

  2. 2. Vatnstjón í grunnskóla Eskifjarðar

    Mál 1807006 Allur ferill málsins

    Bréf skólastjóra Grunnskóla Eskifjarðar er varðar vatnstjón er varð í skólanum í júní. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar. Jafnframt er framkvæmdasviði falið að fara yfir forvarnir vegna vatnstjóna og annarra öryggisþátta í starfsemi sveitarfélagsins.

  3. 3. Þinglýsing eignarheimilda Breiðdalshrepps

    Mál 1807003 Allur ferill málsins

    Framlögð yfirlýsing um nafnabreytingu á eignum sem áður tilheyrðu Breiðdalshrepp og þinglýsa þarf á Fjarðabyggð. Bæjarráð undirritaði yfirlýsingu í umboði bæjarstjórnar.

  4. 4. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2018

    Mál 1802007 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar, nr. 861 frá 29.júní 2018, lögð fram til kynningar.

  5. 5. Barnaverndarfundagerðir 2018

    Mál 1801097 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 85 frá 4.júlí 2018, samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

  6. 6. Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi

    Mál 1804081 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi þar sem kallað er eftir tillögum að ályktunum fyrir aðalfund. Vísað til áframhaldandi vinnslu hjá bæjarráði og bæjarstjóra.