Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

755 Beiðni um lögn háspennustrengs neðan Fjarðarbrautar

Mál 1807085 Fyrst á dagskrá 23. júlí 2018, síðast 30. júlí 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 209 liður 15

    Lagt fram bréf Guðmundar Hólm Guðmundssonar fh. RARIK ohf, dagsett 19. júlí 2018, þar sem óskað er eftir heimild til að leggja háspennustreng í neðri kant Fjarðabrautar á um 370 m kafla vestan tjaldsvæðis að íþróttahúsi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina að fengnu samþykki Vegagerðarinnar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.

  2. Bæjarráð, fundur 573 liður 13.15

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 209“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is