Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Skýrsla um aðlögun, stöðu og viðhorf innflytjenda á Austurlandi

Mál 1804154 Fyrst á dagskrá 9. maí 2018, síðast 17. maí 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Fræðslunefnd, fundur 55 liður 2

    Lögð er fram til kynningar rannsóknarskýrsla um aðlögun og upplifun innflytjenda á Austurlandi. Austurbrú lét framkvæma rannsóknina meðal innflytjenda síðasta haust. Þróunarsjóður innflytjendamála styrkti verkefnið. Markmið rannsóknarinnar var að kanna aðlögun, stöðu og viðhorf innflytjenda á Austurlandi. Meðal annars var kannað hvernig búið er að upplýsingagjöf opinberra stofnana með því að skoða heimasíður og upplýsingaveitur. Einnig var sendur út spurningalisti og gerð símakönnun meðal innflytjenda á Austurlandi og fékkst nokkuð góð svörun frá markhópnum.

    Lesa alla bókunina (69 orð til viðbótar)

    Helstu niðurstöður eru þær að almennt voru innflytjendur á Austurlandi sáttir við stöðu sína og töldu sig hafa aðlagast vel í samfélaginu. Þeir töldu vel tekið á móti fólki og tóku virkan þátt í félagsstarfi. Í viðhorfskönnun kom í ljós að innflytjendur eru almennt ánægðir með skólana en nokkuð virðist vanta upp á stuðning við móðurmál og þá um leið íslenskukennslu. Skýrsluna í heild sinni má finna hér http://www.austurbru.is/static/files/PDF/2018/innflytjendur-lokaskyrsla.pdf

  2. Bæjarstjórn, fundur 245 liður 6.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 55“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is