Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 194

20. mars 2018, kl. 16:30 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 560 liður 12

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 194 frá 20.mars 2018, lögð fram til kynningar.

Dagskrá

  1. 1. Efnistaka við Eyri allt að 520.000.m3

    Mál 1709112 Allur ferill málsins

    Umhverfisstjóri hefur unnið minnisblað um stöðu leyfismála vegna efnistöku við Eyri. Minnisblaðið lagt fram til kynningar.

  2. 2. Öryggisstefna

    Mál 1803011 Allur ferill málsins

    Kynnt drög að uppfærðri upplýsingaöryggisstefnu sem leysir af hólmi eldri upplýsingaöryggisstefnu frá 2013. Stefnunni er ætlað að mæta kröfum sem ný persónuverndarlöggjöf krefst og reglugerð Evrópusambandsins áskilur að aðildarlönd þeirra innleiði.

  3. 3. Útvistunarstefna

    Mál 1803012 Allur ferill málsins

    Kynnt drög að útvistunarstefnu upplýsingatæknimála ásamt minnisblaði. Með drögum þessum er skýrð heimild til útvistunar á rekstri upplýsingatæknikerfa til samræmis við ákvæði nýrra persónuverndarlaga og reglugerðar Evrópusambandsins um aukna persónuvernd.

  4. 4. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2018

    Mál 1801005 Allur ferill málsins

    Fundargerð Hafnasambands Íslands númer 401 lögð fram til kynningar.

  5. 5. Flotbryggjur

    Mál 1610186 Allur ferill málsins

    Tilboð hafa borist í flotbryggjur sem hafnarsjóður auglýsti til sölu. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga frá sölu á bryggjunum.

  6. 6. 740 Norðfjarðarhöfn - Togarabryggja sig

    Mál 1803075 Allur ferill málsins

    Á togarabryggjunni á Norðfirði er talsvert sig á hafnarkanti. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að grípa til bráðabirðgaaðgerða hið fyrsta og einnig að skoða kostnað og valkosti við varanlega viðgerð. Ákvörðun um tímasetningu viðgerðar er vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

  7. 7. 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna

    Mál 1603089 Allur ferill málsins

    Skipulags- og byggingafulltrúi Fjarðabyggðar hefur sent til til umsagnar á kynningartíma breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi Leiru 1. Hafnarstjórn frestar afgreiðslu málsins til næsta reglubundins fundar.