Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 201

2. apríl 2018, kl. 16:00 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Þorsteinn Sigurjónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 561 liður 19

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 3. apríl lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 243 liður 3

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 3.apríl sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Nýting vatns úr borholu við Sléttu

    Mál 1803148 Allur ferill málsins

    Eigna-. skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra veitna að ganga frá samningi um afnot af vatni úr borholu sem Fjarðabyggð á við Sléttu í Reyðarfirði í samræmi við erindi bréfritara og umræðu á fundinum.

  2. 2. Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt

    Mál 1710073 Allur ferill málsins

    Drög að samningi við Fjarskiptasjóð vegna styrkúthlutunar til ljósleiðaralagningar í Norðfjarðarsveit á árinu 2018 lögð fram til kynningar

  3. 3. Upprunaábyrgðir 2017

    Mál 1803138 Allur ferill málsins

    Samningur Rafveitu Reyðarfjarðar við Landsvirkjun um útgáfu upprunaábyrgða vegna eigin framleiðslu og sölu á raforku samþykktur. Kostnaður vegna útgáfu og afskráningu á umframmagninu er 9.124 krónur

  4. 4. Persónuverndarstefna

    Mál 1803013 Allur ferill málsins

    Persónuverndarstefna Fjarðabyggðar lögð fram til kynningar. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við persónuverndarstefnuna.

  5. 5. Kaup á fasteignum á Eskifirði vegna frummats ofanflóðavarna.

    Mál 1707111 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála vegna uppkaupa fasteigna á Eskifirði í tengslum við ofanflóðaframkvæmda. Sviðstjóra falið að vinna málið áfram og jafnframt er málinu vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.

  6. 6. 750 Búðavegur 28 - byggingarleyfi, breytt aðkoma

    Mál 1803119 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Ieva Vedeikaite, dagsett 21. mars 2018, þar sem sótt er um leyfi til að gera bílastæði norðan við hús hennar að Búðavegi 28 á Fáskrúðsfirði ásamt færslu á aðkomu austur fyrir húsið.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að bílastæði geti verið norðan hússins og að aðkoma verði austan við húsið. Umsóknin verður tekin fyrir að nýju þegar fullnægjandi hönnunargöng liggja fyrir.

  7. 7. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2018

    Mál 1802079 Allur ferill málsins

    Fundargerð 140. fundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2018 lögð fram til kynningar.

  8. 8. 740 Starmýri 17-19 - byggingarleyfi

    Mál 1803113 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Sigríðar Þorgeirsdóttur fh. eiganda Starmýrar 17-19 á Norðfirði, dagsett 19. mars 2018, þar sem sótt er um leyfi til að skipta um glugga í íbúðum og sameign hússins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi.

  9. 9. 735 Bleiksárhlíð 34 - Byggingarleyfi, sólpallur

    Mál 1801186 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Stefáns Kristinssonar, dagsett 30. janúar 2018, þar sem sótt er um leyfi til að byggja sólpall við hús hans að Bleiksárhlíð 34 á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi.

  10. 10. 730 Mánagata 25 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 1802134 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Óskars Guðmundssonar, dagsett 21. apríl 2017, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Mánagötu 25 á Reyðarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.

  11. 11. 730 Heiðarvegur 5 og Lundargata 1 - sameining lóða undir leikskóla

    Mál 1802086 Allur ferill málsins

    Lagt fram að nýju, eftir grenndarkynningu, bréf sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs, dagsett 14. febrúar 2018, þar sem sótt er um að húsnæði og lóð félagsheimilins Félagslundar að Lundargötu 1 verði sameinað leikskólanum Lyngholti að Heiðarvegi 5. Engar athugasemdir bárust vegna grenndarkynningar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að húsnæði og lóð félagsheimilins Félagslundar verði sameinað leikskólanum Lyngholti. Endanlegri afgreiðslu vegna sameiningu lóða er vísað til bæjarráðs.

  12. 12. 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1703117 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að tillaga að deiliskipulagi Skíðasvæðisins í Oddsskarði verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum fyrir auglýsingu. Tillagan verði höfð aðgengileg í tvær vikur.