Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 108

10. apríl 2018, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
  • Heiðar Már Antonsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 562 liður 30

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 108 frá 10.apríl 2018, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 243 liður 9

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 10. apríl sl. framlögð til kynningar en dagskrárlið nefndar hefur verið vísað að nýju til félagsmálanefndar af bæjarráði.

Dagskrá

  1. 1. Opnun útibús Aflsins á Reyðarfirði

    Mál 1802099 Allur ferill málsins

    Aflið er samtök gegn heimilis- og kynferðisofbeldi sem starfað hefur á Akureyri frá árinu 2002 og þjónar þolendum ofbeldis og aðstandendum allsstaðar að af landinu með sérstaka áherslu á Norður- og Austurland. Verkefnastjóri Aflsins ásamt stjórnaformanni kom á fund félagsmálanefndar og kynnti starfsemi samtakanna og áhuga á starfsemi í Fjarðabyggð. Aflið óskar eftir aðkomu sveitarfélagsins með útvegun og rekstri húsnæðis fyrir starfsemina. Félagsmálanefnd telur brýnt að fá starfsemi aflsins í Fjarðabyggð þar sem samtökin þjónusta breiðan hóp fólks og fellur vel að fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar, jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar og samþykkt bæjarstjórnar um að bregðast við kynbundnu ofbeldi.