Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Opnun útibús Aflsins á Reyðarfirði

Mál 1802099 Fyrst á dagskrá 6. mars 2018, síðast 26. apríl 2018. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.

Í heiti málsins: Reyðarfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Félagsmálanefnd, fundur 106 liður 7

    Aflið er samtök sem stofnuð voru á Akureyri 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta þar sem í ljós kom mikil þörf fyrir samtök af þessu tagi. Starfsemin byggir á forsendum þolenda kynferðislegs ofbeldis og/eða heimilisofbeldis. Aflið er fyrir alla sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og/eða heimilisofbeldi og aðstandendur þeirra s.s. maka, foreldra, systkini og vini sem óska eftir ráðgjöf.

    Framlagt er bréf frá verkefnastjóra Aflsins þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélagsins við að koma á fót úrræði fyrir þolendur ofbeldis og aðstandendur þeirra í Fjarðabyggð.

    Félagsmálanefnd tekur jákvætt undir erindi Aflsins og felur félagsmálastjóra að koma á fundi með verkefnastjóra Aflsins.

  2. Félagsmálanefnd, fundur 108 liður 1

    Aflið er samtök gegn heimilis- og kynferðisofbeldi sem starfað hefur á Akureyri frá árinu 2002 og þjónar þolendum ofbeldis og aðstandendum allsstaðar að af landinu með sérstaka áherslu á Norður- og Austurland. Verkefnastjóri Aflsins ásamt stjórnaformanni kom á fund félagsmálanefndar og kynnti starfsemi samtakanna og áhuga á starfsemi í Fjarðabyggð. Aflið óskar eftir aðkomu sveitarfélagsins með útvegun og rekstri húsnæðis fyrir starfsemina. Félagsmálanefnd telur brýnt að fá starfsemi aflsins í Fjarðabyggð þar sem samtökin þjónusta breiðan hóp fólks og fellur vel að fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar, jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar og samþykkt bæjarstjórnar um að bregðast við kynbundnu ofbeldi.

  3. Bæjarráð, fundur 562 liður 30.1

    Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 108“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 243 liður 9.1

    Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 108“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is