Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Erindi um að Fjarðabyggð verði tilraunasveitarfélag í stórátaki í loftslagsmálum með endurheimt votlendis

Mál 1712103 Fyrst á dagskrá 8. janúar 2018, síðast 22. janúar 2018. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Bæjarráð, fundur 547 liður 7

    Um nokkurt skeið hefur hópur einstaklinga og stofnana unnið að því að undirbúa stórtæka endurheimt votlendis í verkefni sem gengur undir vinnuheitinu „Votlendisbankinn“. Núverandi samstarfsaðilar verkefnisins eru m.a. París 1,5° áhugahópur um árangur í loftslagsmálum,

    Landgræðsla Íslands, Landbúnaðarháskólinn, Fuglavernd, Landvernd, Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurlandi, Þekkingarmiðlun, EFLA verkfræðistofa, Klappir og Auðlind náttúrusjóður.

    Óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til verkefnisins.

    Bæjarráð samþykkir að Fjarðabyggð taki þátt í verkefninu en nú þegar eru viðræður við Landgræðslu ríkisins um aðkomu að endurheimtu votlendis. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar.

  2. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 195 liður 8

    Um nokkurt skeið hefur hópur einstaklinga og stofnana unnið að því að undirbúa stórtæka endurheimt votlendis í verkefni sem gengur undir vinnuheitinu "Votlendisbankinn". Núverandi samstarfsaðilar verkefnisins eru m.a. París 1,5° áhugahópur um árangur í loftslagsmálum, Landgræðsla Íslands, Landbúnaðarháskólinn, Fuglavernd, Landvernd, Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurlandi, Þekkingarmiðlun, EFLA verkfræðistofa, Klappir og Auðlind náttúrusjóður. Óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til verkefnisins. Bæjarráð samþykkir að Fjarðabyggð taki þátt í verkefninu en nú þegar eru viðræður við Landgræðslu ríkisins um aðkomu að endurheimtu votlendis. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að hefja undirbúning að þátttöku Fjarðabyggðar í verkefninu og leggja fyrir nefndina að nýju

  3. Bæjarráð, fundur 549 liður 11.8

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 195“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is