Bæjarráð, fundur 548
15. janúar 2018, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 236 liður 1
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 548 frá 15.janúar 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2017 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1705109 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - nóvember 2017 ásamt tekjum og launakostnaði fyrir janúar - desember 2017.
-
2. Kjara- og launamál 2017
Mál 1612110 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað vegna leiðréttinga launa á árinu 2017 sem vísað er til gerðar viðauka. Um er að ræða leiðréttingu launatengdra gjalda og fæðisgreiðslna starfsmanna.
Bæjarráð samþykkir að vísa kostnaðarauka til gerðar viðauka í 3. dagskrárlið fundagerðar.
-
3. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 8
Mál 1801095 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2017. Viðaukinn er fyrst og fremst um millifærslur og leiðréttingar á áætlun ársins 2017.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti viðauka nr. 8 og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Aukin framleiðsla á laxi í Reyðarfirði um 10.000 tonn - beiðni um umsögn á frummatsskýrslu
Mál 1801087 Allur ferill málsins
Framlögð frummatsskýrsla vegna viðbótarframleiðslu Laxa fiskeldi ehf. á 10.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði. Umsögn um skýrsluna óskast send Skipulagsstofnun fyrir 5.febrúar nk.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar til umsagnar. Erindið tekið fyrir að nýju að þeim fengnum í bæjarráði.
-
5. Skilti við Barkinn - Reyðarfirði
Mál 1801053 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá hópi brottfluttra Reyðfirðinga sem leggur til að sett verði upp skilti við Barkinn á Reyðarfiðri þar sem sögð verði saga atvinnulífs sem þar var.
Vísað til upplýsingafulltrúa og forstöðumanns safnastofnunar til úrvinnslu og kynningar í menningar- og safnanefnd.
-
6. Heimildamynd um Austurland
Mál 1801057 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Bjarna Hall þar sem óskað er eftir styrk vegna gerðar heimildamyndar um Austurland sem yrði í svipuðum dúr og Landinn. Myndin yrði sett upp í afþreygingakerfi Icelandair.
Vísað til upplýsingafulltrúa í tengslum við birtingaráætlun Austurbrúar.
-
7. 735 Strandgata 98a - byggingarleyfi, breytt notkun og endurbygging
Mál 1710058 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags og umhverfisnefnd byggingarleyfisumsókn Egils Helga Árnasonar, dagsett 10. október 2017, þar sem sótt er um leyfi til að breyta gömlu sjóhúsi við Strandgötu 98a á Eskifirði í íbúðar-/gistirými. Einnig er sótt um að færa húsið til um 7,4 m til suðurs.
Nefndin samþykkir jafnframt, fyrir sitt leyti, stækkun lóðar vegna færslu hússins. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar og felur bæjarstjóra undirritun lóðasamnings.
-
8. Ert' ekki að grínast í mér ? - Námskeið um sveitarstjórnir og starfið í þeim
Mál 1801075 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar erindi fyrirtækisins Ráðríks ehf. sem hyggst halda námskeið þar sem meginmarkmiðið er að höfða til hins almenna íbúa, vekja áhuga hans á sveitarstjórnarmálum og hvetja hann til þátttöku.
Bæjarráð þakkar áhugavert erindi og námskeið en afþakkar það að þessu sinni.
-
9. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018.
Mál 1709072 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf atvinnu-og þróunarstjóra er varðar sérstök skilyrði vegna byggðakvóta fiskveiðiárið 2017/2018. Lagt er til að bæjarráð samþykki nýjar tillögur er varða texta í sérreglum.
Bæjarráð samþykkir tillögur sem lagðar eru til í minnisblaði um breytingu á reglum Fjarðabyggðar um byggðakvóta en leggur jafnframt áherslu á að Byggðastofnun komi að atvinnumálum í Mjóafirði með sértækum byggðakvóta.
Breyttum reglum vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
10. Skólalóð - framkvæmdir
Mál 1801103 Allur ferill málsins
Framlagt sameiginlegt erindi skólaráðs og nemendaráðs Grunnskólans á Eskifirði til bæjarráðs um skólalóð.
Bæjarráð þakkar bréfriturum bréfið og vísar því til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
11. Endurbætur á húsnæði Salthússmarkaðarins á Stöðvarfirði
Mál 1708065 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Salthúsmarkaðarins á Stöðvarfirði sem fjallar um viðhaldsmál og endurbætur á aðkomu að inngangi og unhverfi hans.
Bæjarráð vísar erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
12. Upplýsingagjöf vegna húsnæðisvanda einstaklinga í Fjarðabyggð
Mál 1801022 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Umboðsmanns Alþingis þar sem óskað er eftir upplýsingum um almenn úrræði sbr. 45. gr. laga 40/1991.
Vísað til félagsmálanefndar og til vinnslu hjá félagsmálastjóra.
-
13. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2017
Mál 1702075 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar frá 18.desember 2017, lögð fram til kynningar.
-
14. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2017
Mál 1702019 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga, nr. 855 frá 15.desember 2017, lögð fram til kynningar.
-
15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 194
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 194 frá 8.janúar 2018, lögð fram til kynningar.
-
16. Barnaverndarfundagerðir 2018
Mál 1801097 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 78 frá 8.janúar 2018, lögð framt til kynningar.