Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 8
Mál 1801095 Fyrst á dagskrá 15. janúar 2018, síðast 18. janúar 2018. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 18. janúar 2018, frá 0:22:24
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2018
Bæjarráð, fundur 548 liður 3
Framlagður viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2017. Viðaukinn er fyrst og fremst um millifærslur og leiðréttingar á áætlun ársins 2017.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti viðauka nr. 8 og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 236 liður 4
Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka við fjárhagsáætlun.
Lagður fram viðauki nr.8 við fjárhagsáætlun ársins 2017, um ýmsar tilfærslur innan fjárhagsáætlunar ársins.
Lesa alla bókunina (786 orð til viðbótar)
Í samræmi við samþykkti bæjarráðs á ráðstöfunum af liðnum óráðstafað á árinu og úthlutana úr veikindalaunapotti, starfsmenntasjóði og námsstyrkjum er gerður viðauki við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017. Einnig millifærslur milli reksturs og fjárfestinga í ljósi annara ákvarðana, leiðréttingu á fjárfestingarheimildum Hafnarsjóðs sem og leiðréttingu á endanlegum upphæðum vegna uppgjörs lífeyrisskuldbindinga við Brú lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga. Samhliða er í þessum viðauka leiðrétting á lífeyrissjóðsframlagi vegna Tónskólans í Neskaupstað og fæðisgreiðslur til starfsmanna íþróttamiðstöðva.
Með þessum viðauka er lagt til að gerðar verði eftirfarandi breytingar á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017.
1.
Ráðstöfun framlaga úr símenntunarsjóði Fjarðabyggðar af sameiginlegum kostnaði kr 9.238.777 á deildir aðalsjóðs skv. sundurliðun. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 heldur einungis á fjárheimildir einstakra deilda og málaflokka.
2.
Ráðstöfun af liðnum Óviss útgjöld kr. 6.882.000 á deildir aðalsjóðs skv. sundurliðun. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 heldur einungis á fjárheimildir einstakra deilda og málaflokka
3.
Ráðstöfun námsstyrkja af sameiginlegum kostnaði kr. 3.206.049 í samræmi við reglur um námsstyrki Fjarðabyggðar. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 heldur einungis á fjárheimildir einstakra deilda og málaflokka
4.
Ráðstöfun veikindalaunapottar af sameiginlegum kostnaði kr. 12.000.000 í samræmi við tillögur mannauðs- og kjarateymis. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 heldur einungis á fjárheimildir einstakra deilda og málaflokka.
5.
Leiðrétting mótframlags í Stapa lífeyrissjóð vegna kjarasamnings við Félag íslenskra hljómlistarmanna. Lagt er til að samþykktur verði viðauka við fjárhagsáætlun Aðalsjóðs í málaflokki 04-510 fyrir árið 2017. Launatengd gjöld í málaflokki 04-510 hækka sem nemur kr. 2.926.589 fyrir árið 2017 og nemi í heildina kr. 10.057.189. Jafnframt er lagt til að þessi útgjaldaauki verði fjármagnaður af eigin fé Aðalsjóðs og handbært fé Fjarðabyggðar lækki um sömu fjárhæð.
6.
Leiðrétting fæðisgreiðslna starfsmanna íþróttamiðstöðva. Lagt er til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun Aðalsjóðs í málaflokki 06 skv. sundurliðun fyrir árið 2017. Launakostnaður í málaflokki 06 hækkar sem nemur kr. 6.682.250 árið 2017 og mun nema í heildina kr. 153.324.817. Lagt er til að þessi útgjaldaauki verði fjármagnaður af eigin fé Aðalsjóðs og handbært fé Fjarðabyggðar lækki um sömu fjárhæð.
7.
Flutningur fjármuna af viðhaldsliðum Eignarsjóðs til fjárfestingarverkefna Eignasjóðs vegna tilfærslur fjármagns á milli fjárfestingarlið og viðhaldsliða. Um er að ræða framkvæmdir við endurbætur á Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar umfram áætlaðar fjárheimildir á árinu 2017 og frestun sem hefur orðið á viðhaldsverkefnum við sparkvelli í Fjarðabyggð. Lagt er til að kr. 19.500.000 verði fluttar af viðhaldslið sparkvalla í Fjarðabyggð, deild 31-121, á framkvæmdir við skólamiðstöð Fjarðabyggðar, deild 32-010. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2017, einungis á fjárheimildir einstakra deilda og málaflokka.
8.
Fjárfestingar Hafnarsjóðs umfram upphaflegar fjárheimildir. Lagt er til í samræmi við fjárþörf vegna fjárfestinga að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs fyrir árið 2017 og mun fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 breytast. Fjárfestingar Hafnarsjóðs í málaflokki 42 hækka sem nemur kr. 100.000.000 fyrir árið 2017 og nemi í heildina kr. 516.000.000. Jafnframt er lagt til að þessi útgjaldaauki verði fjármagnaður af eigin fé Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar og inneign sjóðsins við Aðalsjóð Fjarðabyggðar á viðskiptareikningi.
9.
Uppgjör lífeyrisskuldbindinga við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga og breyting á viðauka 7 við fjárhagsáætlun ársins 2017. Endanlegt uppgjör liggur fyrir og hefur krafa sjóðsins lækkað um kr. 61.938.180 og mun nema í heildina kr. 486.265.820. Jafnframt liggur fyrir áætlaður útreikningur á skiptingu skuldbindinga milli einstakra sjóða Fjarðabyggðar skv. sundurliðun en skuldbindingin mun verða fjármögnuð með skammtímalánum að hluta fram yfir áramót.
Lagt er til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2017 breytingu á áður samþykktum viðauka og mun fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017 breytast sem hér segir í stað viðauka nr. 7:
Rekstur lífeyrisskuldbindinga í málaflokki 27 hækkar sem nemur kr. 121.992.452, í málaflokki 41 um kr. 16.351.416, í málaflokki 49 um kr. 1.525.090 og í málaflokki 59 um kr. 1.609.486 fyrir árið 2017 og nemi í heildina kr. 322.544.855.
Langtímakröfur Aðalsjóðs Fjarðabyggðar hækki um kr. 297.406.122, langtímakröfur Hafnarsjóðs um kr. 39.775.449, langtímakröfur Fráveitu um 3.718.027 og langtímakröfur Vatnsveitu um kr. 3.923.776 eða samtals um 344.823.375.
Lántaka ársins 2017 í Aðalsjóði hækki sem nemur kr. 419.398.575, í Hafnarsjóði um kr. 56.090.865, í Fráveitu um kr. 5.243.117 og í Fráveitu um kr. 5.533.263 fyrir árið 2017 og nemi í heildina fyrir samstæðu Fjarðabyggðar kr. 1.339.266.000 á árinu 2017.
Lagt er til með þessum viðauka við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017, að áætluninni fyrir árið 2017 verði breytt til samræmis við liði 1 - 9 hér að ofan.
Handbært fé mun lækka sem nemur 109,6 milljónum króna og verða neikvætt um 25,4 milljónir króna í árslok en auknar skuldbindingar vegna lífeyrissjóðsskuldbindinga og langtímakrafna eru fjármagnaðar með lántöku.
Enginn tók til máls.
Viðauki samþykktur með 9 atkvæðum.
Upptaka bæjarstjórnarfundar 236. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:22:24 rétt að renna yfir hvað er í þessum viðauka það er verið að ráðstafanir eru í flestum sem liðum bara nýr á stofnanir úr pottum fyrst að telja framlag á símenntunarsjóði tvo níu koma tvær milljónir ráðstafanið og stofnanir þá er óviss útgjöld bæjarráðs verið að nýr á ráðstafa þeim nýr á deildir sex koma átta milljónir
- 0:22:52 sex koma átta milljónir námsstyrki upp á þrjár koma tvær nýr á hérna stofnanir einnig sem og veikindalaun tókum upp á því fyrir nokkru síðan að vera með veikindapott til þess að koma móts við stofnanir sem höfðu þurft að greiða mikið um veikindalaun á árinu þetta eru tólf milljónir sem er búið að ráðstafa þarna niður og í fimmta lagi þá er og fimmta og sjötta lagi þetta eru svona leiðréttingar sem voru ræddar í bæjaráði síða
- 0:23:20 leiðréttingar sem hún ræddar í bæði ráði síðast að segja að það var mótframla launagreiðta varðaði tónskóla neskupsstaðar sem þurfti að gera upp á tíu koma tíu milljónir rúmlega tíu milljarðir og fæðisgreiðslu starfsmanna íþróttaminnstra sem þetta leiði rætta langt aftur í tímann og síðan í sjöunda lið
- 0:23:48 þá var verið að færa þar af viðhaldsliðnum það var sparkvelli sem var frestað að vinna og haldið áfram við framkvæmdir á skólameinslöðinni á fáskólsfirði og tæpa tuttugu milljónir og síðan í áttunda lagi að þá eins og bæjarstjórnaráði að þá var ekki gert ráð fyrir að fjársamtök sautján og hafnasjóður myndi
- 0:24:16 þú sautján á hafnarsjóður myndi þurfa jafnmikla fjárfestingu og hann hafði gert ráð fyrir í upphaflega um áætlun þannig að hún var lækking um hundrað milljónir en síðan gerðist það að aldrei sem vandsema hefur nokki gerst í mörg ára að fjárfestingarþörfin fór langt umfram áætlun
- 0:24:44 í níunda lið og eins og kemur fram minnisblaði þarna virðum við að breytari númeru fjársár ársins tugust á sautján vegna uppgjöra lífeyrisskuldninga við brúð lífeyrissjóð af því að það gerðist í þessu uppgjöri að þetta lækkaði um sextíu milljónum miðað við fyrri áætlun heildarskuldning var eitthvað í kringum fimm hundruð og fjörutíu og átta milljónir verður nú á fjöldu áttu og sex
- 0:25:12 og þarna er gert ráð fyrir því hvernig þessi upphæð skiptist niður í bæði hvernig þetta kemur inn á lífeyrskuldbindingarnar langtímakröfur þarf að segja lántöku og síðan er skýrð útheildarlangtaka ársins sem er komin einn koma þrjá milljarða á þessu ári og bara svo til upplifunar að þessa þrettán hundruð eða já þrettán hundrað og fjörutíu þúsund milljónir skiptast þannig að sex hundruð áttu milljarða vegna endurfjármurnar á erlendulagi
- 0:25:40 tuttugu milljónir vegna endurfjármögnar á erlendu láni sem við tókum um á síðastliðnum vetri inn í þessu líka inn í fjársáttinni sjötíu milljónir lán sem við höfum reyndar ekki tekið ennþá og síðan vegna þessa lífeyrskuldbindingar fjörundrauttíu og sex milljónir og síðan melgerði þrettán sem við gerðum upp leigusamning upp á áttatíu og sjö mínum samtal sem þetta þrettán tuttugu og þrjár milljónir við auðgin er lagða hér með fram með vísan í minnisblaðsfjármótsfjármólsins
- 0:26:08 hafsteinn páll bæjarstjórinn var nú farið yfir skiptingu þessa viðvika sem við öll óbreytingaráðherra verði síðasti viðviki á sautján en hefðbundinn í lok þess vill einhver kveðja sér hljóðsviðvika svo virðist ekki vera í bið viðvikum til afgreiðsluslismanns aðgerðsgemerki hann er samþykkan nýatkvæm þá er hún komin hér í liðin sameining breiddansins og fjarðarbyggða síðarumræða eins og við fórum hér yfir á fundi fyrir viku
-
Bæjarstjórn, fundur 236 liður 1.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 548“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.