Bæjarstjórn, fundur 236
18. janúar 2018, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Bæjarráð - 548
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:01:24
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 548 frá 15.janúar 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 1.1 Rekstur málaflokka 2017 - TRÚNAÐARMÁL1705109
- 1.2 Kjara- og launamál 20171612110
- 1.3 Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 81801095
- 1.4 Aukin framleiðsla á laxi í Reyðarfirði um 10.000 tonn - beiðni um umsögn á frummatsskýrslu18010870:01:52
- 1.5 Skilti við Barkinn - Reyðarfirði18010530:02:20
- 1.6 Heimildamynd um Austurland1801057
- 1.7 735 Strandgata 98a - byggingarleyfi, breytt notkun og endurbygging1710058
- 1.8 Ert' ekki að grínast í mér ? - Námskeið um sveitarstjórnir og starfið í þeim1801075
- 1.9 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018.17090720:02:48
- 1.10 Skólalóð - framkvæmdir18011030:04:12
- 1.11 Endurbætur á húsnæði Salthússmarkaðarins á Stöðvarfirði1708065
- 1.12 Upplýsingagjöf vegna húsnæðisvanda einstaklinga í Fjarðabyggð1801022
- 1.13 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20171702075
- 1.14 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20171702019
- 1.15 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1941801004F
- 1.16 Barnaverndarfundagerðir 20181801097
-
2. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 194
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:14:28
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 194 frá 8.janúar 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 2.1 Umhverfisstefna 2017-202017040670:14:28
- 2.2 Refasamningur 2017-2019 og uppgjör 2014-20161711099
- 2.3 Endurheimtur á votlendi17090710:14:56
- 2.4 Beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins"Bændur græða landið" á árinu 20171801009
- 2.5 715 Fjörður 1 - Kæra til ÚUA1801001
- 2.6 740 Þrastarlundur - Beiðni um umsögn um landskiptasaming og staðfestinguskv. skipulagslögum1712101
- 2.7 Breyting á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs - Kynning á tillögu í Fellabæ1801014
- 2.8 740 Kirkjuból - taka lands undan ábúð1711163
- 2.9 735 Strandgata 98a - byggingarleyfi, breytt notkun og endurbygging1710058
- 2.10 Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð14020760:15:52
- 2.11 750 Skólavegur 12 -óleyfisframkvæmd1701090
- 2.12 Endurmat hættumatslína vegna ofanflóða1710175
- 2.13 730 Austurvegur - Umsókn um lóð1710155
- 2.14 730 Heiðarvegur 1 - Byggingarleyfi1712084
- 2.15 Breyting á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs - Kynning á tillögu Davíðsstaðir.1712097
- 2.16 Sundlaug Eskifjarðar - úttekt í aðgengismálum17111780:17:44
- 2.17 740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir1606084
- 2.18 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir1602108
- 2.19 Ofanflóðavarnir Fáskrúðsfirði - Nýjabæjarlækur - Skilamat.17111460:18:40
- 2.20 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20171702115
- 2.21 Drenun fótboltavallar á Eskifirði1801002
- 2.22 Breytingar á þjóðvegum með tilkomu Norðfjarðarganga og hjáleiðin á Reyðarfirði1712061
-
3. Barnaverndarfundagerðir 2018
Mál 1801097 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:21:56
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 78 frá 8.janúar 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.
-
4. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 8
Mál 1801095 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:22:24
Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka við fjárhagsáætlun.
Lagður fram viðauki nr.8 við fjárhagsáætlun ársins 2017, um ýmsar tilfærslur innan fjárhagsáætlunar ársins.
Í samræmi við samþykkti bæjarráðs á ráðstöfunum af liðnum óráðstafað á árinu og úthlutana úr veikindalaunapotti, starfsmenntasjóði og námsstyrkjum er gerður viðauki við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017. Einnig millifærslur milli reksturs og fjárfestinga í ljósi annara ákvarðana, leiðréttingu á fjárfestingarheimildum Hafnarsjóðs sem og leiðréttingu á endanlegum upphæðum vegna uppgjörs lífeyrisskuldbindinga við Brú lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga. Samhliða er í þessum viðauka leiðrétting á lífeyrissjóðsframlagi vegna Tónskólans í Neskaupstað og fæðisgreiðslur til starfsmanna íþróttamiðstöðva.
Með þessum viðauka er lagt til að gerðar verði eftirfarandi breytingar á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017.
1.
Ráðstöfun framlaga úr símenntunarsjóði Fjarðabyggðar af sameiginlegum kostnaði kr 9.238.777 á deildir aðalsjóðs skv. sundurliðun. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 heldur einungis á fjárheimildir einstakra deilda og málaflokka.
2.
Ráðstöfun af liðnum Óviss útgjöld kr. 6.882.000 á deildir aðalsjóðs skv. sundurliðun. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 heldur einungis á fjárheimildir einstakra deilda og málaflokka
3.
Ráðstöfun námsstyrkja af sameiginlegum kostnaði kr. 3.206.049 í samræmi við reglur um námsstyrki Fjarðabyggðar. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 heldur einungis á fjárheimildir einstakra deilda og málaflokka
4.
Ráðstöfun veikindalaunapottar af sameiginlegum kostnaði kr. 12.000.000 í samræmi við tillögur mannauðs- og kjarateymis. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 heldur einungis á fjárheimildir einstakra deilda og málaflokka.
5.
Leiðrétting mótframlags í Stapa lífeyrissjóð vegna kjarasamnings við Félag íslenskra hljómlistarmanna. Lagt er til að samþykktur verði viðauka við fjárhagsáætlun Aðalsjóðs í málaflokki 04-510 fyrir árið 2017. Launatengd gjöld í málaflokki 04-510 hækka sem nemur kr. 2.926.589 fyrir árið 2017 og nemi í heildina kr. 10.057.189. Jafnframt er lagt til að þessi útgjaldaauki verði fjármagnaður af eigin fé Aðalsjóðs og handbært fé Fjarðabyggðar lækki um sömu fjárhæð.
6.
Leiðrétting fæðisgreiðslna starfsmanna íþróttamiðstöðva. Lagt er til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun Aðalsjóðs í málaflokki 06 skv. sundurliðun fyrir árið 2017. Launakostnaður í málaflokki 06 hækkar sem nemur kr. 6.682.250 árið 2017 og mun nema í heildina kr. 153.324.817. Lagt er til að þessi útgjaldaauki verði fjármagnaður af eigin fé Aðalsjóðs og handbært fé Fjarðabyggðar lækki um sömu fjárhæð.
7.
Flutningur fjármuna af viðhaldsliðum Eignarsjóðs til fjárfestingarverkefna Eignasjóðs vegna tilfærslur fjármagns á milli fjárfestingarlið og viðhaldsliða. Um er að ræða framkvæmdir við endurbætur á Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar umfram áætlaðar fjárheimildir á árinu 2017 og frestun sem hefur orðið á viðhaldsverkefnum við sparkvelli í Fjarðabyggð. Lagt er til að kr. 19.500.000 verði fluttar af viðhaldslið sparkvalla í Fjarðabyggð, deild 31-121, á framkvæmdir við skólamiðstöð Fjarðabyggðar, deild 32-010. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2017, einungis á fjárheimildir einstakra deilda og málaflokka.
8.
Fjárfestingar Hafnarsjóðs umfram upphaflegar fjárheimildir. Lagt er til í samræmi við fjárþörf vegna fjárfestinga að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs fyrir árið 2017 og mun fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 breytast. Fjárfestingar Hafnarsjóðs í málaflokki 42 hækka sem nemur kr. 100.000.000 fyrir árið 2017 og nemi í heildina kr. 516.000.000. Jafnframt er lagt til að þessi útgjaldaauki verði fjármagnaður af eigin fé Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar og inneign sjóðsins við Aðalsjóð Fjarðabyggðar á viðskiptareikningi.
9.
Uppgjör lífeyrisskuldbindinga við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga og breyting á viðauka 7 við fjárhagsáætlun ársins 2017. Endanlegt uppgjör liggur fyrir og hefur krafa sjóðsins lækkað um kr. 61.938.180 og mun nema í heildina kr. 486.265.820. Jafnframt liggur fyrir áætlaður útreikningur á skiptingu skuldbindinga milli einstakra sjóða Fjarðabyggðar skv. sundurliðun en skuldbindingin mun verða fjármögnuð með skammtímalánum að hluta fram yfir áramót.
Lagt er til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2017 breytingu á áður samþykktum viðauka og mun fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017 breytast sem hér segir í stað viðauka nr. 7:
Rekstur lífeyrisskuldbindinga í málaflokki 27 hækkar sem nemur kr. 121.992.452, í málaflokki 41 um kr. 16.351.416, í málaflokki 49 um kr. 1.525.090 og í málaflokki 59 um kr. 1.609.486 fyrir árið 2017 og nemi í heildina kr. 322.544.855.
Langtímakröfur Aðalsjóðs Fjarðabyggðar hækki um kr. 297.406.122, langtímakröfur Hafnarsjóðs um kr. 39.775.449, langtímakröfur Fráveitu um 3.718.027 og langtímakröfur Vatnsveitu um kr. 3.923.776 eða samtals um 344.823.375.
Lántaka ársins 2017 í Aðalsjóði hækki sem nemur kr. 419.398.575, í Hafnarsjóði um kr. 56.090.865, í Fráveitu um kr. 5.243.117 og í Fráveitu um kr. 5.533.263 fyrir árið 2017 og nemi í heildina fyrir samstæðu Fjarðabyggðar kr. 1.339.266.000 á árinu 2017.
Lagt er til með þessum viðauka við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017, að áætluninni fyrir árið 2017 verði breytt til samræmis við liði 1 - 9 hér að ofan.
Handbært fé mun lækka sem nemur 109,6 milljónum króna og verða neikvætt um 25,4 milljónir króna í árslok en auknar skuldbindingar vegna lífeyrissjóðsskuldbindinga og langtímakrafna eru fjármagnaðar með lántöku.
Enginn tók til máls.
Viðauki samþykktur með 9 atkvæðum.
-
5. Sameining Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar, síðari umræða
Mál 1706125 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:26:36
Sameining sveitarfélaganna Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar.
Síðari umræða.
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu um kosningu um sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps.
Samkvæmt 2. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga er álit samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar tekið til síðari umræðu í sveitarstjórn. Álitið kemur fram í eftirtöldum gögnum:
1. Skilabréfi og greinargerð um störf nefndarinnar dags. 8. jan. 2018.
2. Fundargerðum samstarfsnefndarinnar, 6 talsins.
3. Málefnasamningi, frágenginn 8. jan. 2018
4. Kynningarefni (verður gert opinbert að lokinni seinni umræðu í báðum sveitarfélögum).
5. Tillögu um útlit og texta kjörseðla.
6. Tillögu um opinbera auglýsingu í Lögbirtingarblaði o. fl. miðlum um atkvæðagreiðsluna.
Til máls tók Jens Garðar Helgason.
Með vísan til 2. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga hafa farið fram tvær umræður í sveitarstjórn án atkvæðagreiðslu, um álit samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar. Samkvæmt 3. mgr. 119. gr. skal fara fram atkvæðagreiðsla um tillögu að sameiningu meðal íbúa sveitarfélaganna og er samþykkt að hún fari fram laugardaginn 24. mars 2018.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að samstarfsnefnd um sameiningu starfi áfram og annist kynningu meðal íbúa á tillögu um sameiningu sveitarfélaganna og helstu forsendum hennar. Jafnframt mun nefndin vinna útfærslu á skiptingu fjármagns sem fylgir sameiningunni og leggja fram í kynningu til íbúa. Kynning á tillögunni skal fara fram með minnst tveggja mánaða fyrirvara fyrir atkvæðagreiðslu, samkvæmt 4. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga. Tillaga um sameiningu sveitarfélaganna skal auglýst opinberlega í Lögbirtingablaði og í fjölmiðlum innan sömu tímamarka.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að fyrirliggjandi tillaga um kjörseðil vegna atkvæðagreiðslunnar verði send ráðuneyti til staðfestingar.
Bæjarstjórn hvetur íbúa til þátttöku í kosningunni.