Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 234

14. desember 2017, kl. 16:00 til 17:46, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 545

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason,Páll Björgvin Guðmundsson,Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Einar Már Sigurðarson,Pálína Margeirsdóttir.

    Fundargerð bæjarráð frá 11.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Rekstur málaflokka 2017 - TRÚNAÐARMÁL1705109
    2. 1.2 Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2017 - TRÚNAÐARMÁL1712038
    3. 1.3 Rekstrarform hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð1712040
    4. 1.4 Nýtingaráætlun fyrir haf- og standsvæði í Fjarðabyggð1712006
    5. 1.5 Yfirlýsing um samstarf í menntamálum1706133
    6. 1.6 Erindi frá Breiðdalshreppi - sameiningarmál1706125
    7. 1.7 Almenningssamgöngur Sv-Aust ehf.1602039
    8. 1.8 Öryggismál og eldvarnir jarðganga1704074
    9. 1.9 Fjárhagsáætlun HSA fyrir árið 20181711168
    10. 1.10 Þorrablót Reyðfirðinga 2018 - afnot af íþróttahúsi1712010
    11. 1.11 Eignarhald á félagsheimilinu Skrúði Fáskrúðsfirði1711121
    12. 1.12 Nýjar persónuverndarreglur 20181612047
    13. 1.13 Í skugga valdsins1712003
    14. 1.14 Jafnréttis og kynjafræðsla Fjarðabyggðar1712041
    15. 1.15 Greiðslur til áheyrnarfulltrúa foreldra í fræðslumálum1711183
    16. 1.16 Fyrirspurn vegna læknisvottorðs vegna barns1712009
    17. 1.17 Reglur um starfsmannastyrk Fjarðabyggðar1712019
    18. 1.18 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20171702019
    19. 1.19 Fundargerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu 20171706124
    20. 1.20 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 20171710134
    21. 1.21 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20181706041
    22. 1.22 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 20181709217
    23. 1.23 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20181709221
    24. 1.24 Hafnarstjórn - 1881711018F
    25. 1.25 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1921712001F
    26. 1.26 Félagsmálanefnd - 1021711016F
    27. 1.27 Menningar- og safnanefnd - 371711020F
  2. 2. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 192

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 4.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20181709221
    2. 2.2 Fyrirkomulag fjallskila og gangnaboð 20171702197
    3. 2.3 Skrúðgarðurinn í Neskaupstað1605142
    4. 2.4 Ársfundur Umhverfisstofnunar,náttúrverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa1710046
    5. 2.5 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 20181709217
    6. 2.6 Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt1710073
    7. 2.7 Samþykkt stjórnar sambandsins um skýrslu nefndar um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands1712002
    8. 2.8 Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar1611104
    9. 2.9 Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga 2017-20181711152
    10. 2.10 Nýtingaráætlun fyrir haf- og standsvæði í Fjarðabyggð1712006
    11. 2.11 740 Kirkjuból - taka lands undan ábúð1711163
    12. 2.12 755 Heyklif - fyrirspurn um uppbyggingu ferðaþjónustu1711181
    13. 2.13 750 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting - skógrækt, Víkurgerði1706060
    14. 2.14 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting vegna fiskeldis og nýtingaráætlunar fyrir haf- og strandsvæði1712007
  3. 3. Hafnarstjórn - 188

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 5.desember 2017 staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna1603089
    2. 3.2 735 Göt á stálþili frystihúsbryggju á Eskifirði1711149
    3. 3.3 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20181706041
    4. 3.4 Nýtingaráætlun fyrir haf- og standsvæði í Fjarðabyggð1712006
  4. 4. Menningar- og safnanefnd - 37

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Dýrunn Pála Skaftadóttir.

    Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 6.desember s.l.staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Skýrsla um ferðasumarið 2017
    2. 4.2 Menningarmessa 4. nóvember 2017
    3. 4.3 Reglur um menningarstyrki 2018
    4. 4.4 Stuðningur við Snorraverkefnið 2018
    5. 4.5 Útilistaverk - Odee
    6. 4.6 Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2017
    7. 4.7 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2017
  5. 5. Félagsmálanefnd - 102

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 27.nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Fjárhagsstaða í árslok1711157
    2. 5.2 Umsókn um að gerast stuðningsforeldri1710054
    3. 5.3 Umsókn um að gerast stuðningsforeldri1711131
    4. 5.4 Beiðni um fjárstuðning við forvarnarstarf SAMAN-hópsins árið 20181711130
  6. 6. 750 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting - skógrækt, Víkurgerði

    Mál 1706060 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu aðalskipulags.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, skógrækt í Víkurgerði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dagsett 5. desember 2017. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027, skógrækt í Víkurgerði.

  7. 7. Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting vegna fiskeldis

    Mál 1712007 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á aðalskipulagi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 í samræmi við stefnu Fjarðabyggðar i fiskeldismálum.

    Til máls tók Einar Már Sigurðarson.

    Bæjarstjórn samþykkir óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027 í samræmi við stefnu Fjarðabyggðar í fiskeldismálum.

  8. 8. Nýtingaráætlun fyrir haf- og standsvæði í Fjarðabyggð

    Mál 1712006 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu bæjarstjórnar og bæjarstjóri mælti fyrir skipan starfshóps.

    Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar drögum að erindisbréfi stýrihóps um nýtingaráætlun fyrir haf- og strandsvæði í Fjarðabyggð. Meðfylgjandi er stefnumörkun í fiskeldi í Fjarðabyggð staðfest 22. júní 2017 og minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra vegna stefnumótunar í fiskeldismálum, dagsett 19. júní 2017. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn hafa samþykkt erindisbréfið.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar tekur undir mikið af þeim áhyggjum sem komið hafa fram vegna staðsetningu fiskeldis í Fáskrúðsfirði og telur brýnt að tekið sé tillit til þeirra fjölbreyttu uppbyggingar atvinnustarfsemi sem komin er í Fjarðabyggð við úthlutun leyfa til fiskeldis í fjörðum sveitarfélagsins.

    Þá leggur bæjarstjórn áherslu á að sveitarfélagið haldi áfram vinnu sinni við skipulag og nýtingaráætlanir í fjörðum sínum og gefi fyrirtækjum, hvort sem er í sjávarútvegi, fiskeldi eða annari hafnartengdri starfsemi, tækifæri til að koma að þeirri vinnu og leggja fram sínar áherslur.

    Jafnframt hvetur bæjarstjórn Fjarðabyggðar ráðherra og Alþingi til að ljúka við löggjöf um skipulag haf- og strandsvæða hið fyrsta og bendir sveitarfélagið á fyrri ályktanir sínar í þeim efnum.

    Til máls tók Jens Garðar Helgason.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum skipan stýrihóps um nýtingaráætlun fyrir haf- og strandsvæði í Fjarðabyggð.

  9. 9. Reglur um starfsmannastyrk Fjarðabyggðar

    Mál 1712019 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri mælti fyrir reglum um starfsmannastyrk Fjarðabyggðar.

    Vísað frá bæjarráði drögum að reglum um starfsmannastyrk ásamt minnisblaði en reglurnar fjalla um styrk til heilsueflingar starfsmanna sveitarfélagsins.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir reglurnar með 9 atkvæðum.

  10. 10. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2017 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1712038 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir kynningu KPMG á ársreikningsgerð 2017.

    Til máls tók Jens Garðar Helgason.

    Lögð fram kynning KPMG á vinnu við endurskoðun ársreiknings Fjarðabyggðar 2017. Ráðgert er að leggja ársreikning fram á fundi bæjarstjórnar síðari hluta marsmánaðar 2018.