755 Heyklif - fyrirspurn um uppbyggingu ferðaþjónustu
Mál 1711181 Fyrst á dagskrá 4. desember 2017, síðast 14. desember 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 192 liður 12
Lagt fram bréf Zeppelin arkitekta fh. Heyklifs ehf og eigenda jarðarinnar Heyklif við sunnanverðan Stöðvarfjörð, dagsett 29. nóvember 2017, þar sem óskað er eftir afstöðu nefndarinnar til hugmynda um uppbyggingu á ferðaþjónustu á jörðinni. Gert er ráð fyrir tíu húsum, 30 smáhýsum og 20-30 herbergja hóteli. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa vegna skipulagsmála landbúnaðarsvæða og ferðaþjónustu innan þeirra.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindi Heyklifs ehf og eiganda jarðarinnar.
Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda í samræmi við umræðu á fundinum.
Nefndin telur að uppbygging ferðaþjónustu innan landbúnaðsvæðis samræmist Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 þar sem fyrirhuguð staðsetning mannvirkja er utan ræktaðs lands.
-
Bæjarstjórn, fundur 234 liður 2.12
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 192“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.