Hafnarstjórn, fundur 188
5. desember 2017, kl. 16:30 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 545 liður 24
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 188 frá 5.desember 2017, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 234 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 5.desember 2017 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna
Mál 1603089 Allur ferill málsins
Fundargerð frá fundi með fulltrúum Eskju og Mannvits sem haldinn var þann 14. nóvember 2017 að beiðni Eskju.
Farið var yfir málefnið og fundargerðin kynnt.
-
2. 735 Göt á stálþili frystihúsbryggju á Eskifirði
Mál 1711149 Allur ferill málsins
Ábending kom um gat á stálþili frystihúsbryggju á Eskifirði þar sem verið var að kafa við bryggjuna. Málið var skoðað nánar og ástand bryggjunnar og í ljós komu fleiri tæringargöt en það sem bent var á.
Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram og finna leiðir til úrlausna.
-
3. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018
Mál 1706041 Allur ferill málsins
Umfjöllun um gjaldskrá vegna fyrirkomulags úrgangsgjalda að kröfu evrópusambandsins og breytinga á þessum gjaldaþætti í gjaldskrá í kjölfar þess.
Hafnarstjórn samþykkir drög að breytingum á 12. gr. gjaldskrá sem varðar gjald fyrir móttöku úrgangs og vísar greininni til afgreiðslu í bæjarráði.
-
4. Nýtingaráætlun fyrir haf- og standsvæði í Fjarðabyggð
Mál 1712006 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að endurnýjuðu erindisbréfi stýrihóps um nýtingaráætlun fyrir haf- og strandsvæði í Fjarðabyggð-, stefnumörkun í fiskeldi í Fjarðabyggð og minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra vegna stefnumótunar í fiskeldismálum, dagsett 19. júní 2017.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn. Erindinu er jafnframt vísað til umfjöllunar í Hafnarsjtórn með ósk um tilnefningu.
Hafnarstjórn tilnefnir Sævar Guðjónsson og Eydísi Ásbjörnsdóttur í nefndina.