Hafnarstjórn, fundur 189
16. janúar 2018, kl. 16:30 til 18:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Hákon Ásgrímsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 549 liður 13
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 189 frá 16.janúar 2018, lögð fram til kynningar.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir CI á árinu 2017
Mál 1701009 Allur ferill málsins
Fundargerð frá fundi stjórnar Cruise Iceland dags. 23. nóvember 2017 ásamt fjárhagsáætlun fyrir árin 2018 og 2019. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
-
2. Aðalfundur Cruise Europe 24. til 26. apríl 2018
Mál 1712024 Allur ferill málsins
Tilkynning um aðalfund Cruies Europe 24. til 26. apríl 2018 haldinn í St. Petersburg.
Hafnarstjórn ákveður að senda ekki fulltrúa á aðalfund Cruises Europe 2018.
-
3. Þáttökuboð á sölusýningu skemmtiferðaskipa í Fort Lauderdale 6-8 mars 2018
Mál 1712025 Allur ferill málsins
Erindi frá Cruise Iceland dags. 5. desember 2017 þar sem Fjarðabyggðarhöfnum er boðið að nýta sér starfsmann samtakanna á sýningu í Fort Lauderdale 6. til 8. mars 2018.
Hafnarstjórn ákveður að taka þátt með sama hætti og undanfarin ár.
-
4. Vinnustofa Cruise Iceland 2017
Mál 1707116 Allur ferill málsins
Erindi frá Cruise Iceland dags. 6. desember 2017 þar sem kynntar eru niðurstöður frá vinnustofu samtakanna sem haldin var nú í haust.
-
5. Erindi vegna öryggismála á höfnum
Mál 1712033 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnasambandi Íslands og Samgöngustofu dags. 6. desember 2017 vegna öryggismála á höfnum.
Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að bregðast við erindinu og kynna það starfsmönnum hafna.
-
6. Erindi frá Hafnasambandi Íslands vegna samráðshóps með Fiskistofu
Mál 1712035 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 6. desember 2017 vegna samráðshóps Hafnarsambandsins og Fiskistofu kynnt.
-
7. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2017
Mál 1701008 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 399 dags. 1. desember 2017. Lögð fram til kynningar.
-
8. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018
Mál 1706041 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri fór yfir nýju gjaldskránna og lagði til minniháttar orðalagsbreytingar.
Hafnarstjórn samþykkti breytingarnar sem ekki hafa áhrif á gjöld í gjaldskránni, vísað til staðfestingar í bæjarráði.
-
9. Grjótvarnir í Fjarðabyggð
Mál 1503195 Allur ferill málsins
Gert grein fyrir stöðu framkvæmda við grjótvarnir á Eskifirði.
-
10. Búnaðarmál hafnarinnar Fáskrúðsfirði
Mál 1712030 Allur ferill málsins
Búnaðarmál hafnarinnar á Fáskrúðsfirði rædd. Hafnarstjórn vísar málinu til framkvæmdastjóra til frekari skoðunar meðal annars með aukinni samvinnu áhaldahúss og hafna.
-
11. Breyting á hlutafé Fiskmarkaðar Austurlands
Mál 1801038 Allur ferill málsins
Fiskmarkaður Austurlands hf á sjálfur hlutafé í félaginu sem eru umfram þau 10% mörk sem eru heimil. Fyrir liggur minnisblað frá KPMG þar sem farið er yfir þá valkosti sem eru fyrir hendi til að koma hlutafé í eigu félagsins undir lögboðin mörk. Hafnarstjórn samþykkir tillögu stjórnarformanns og endurskoðenda um að færa niður hlutafé sem nemur eigin eign félagsins og breyta rekstrarformi í einkahlutafélag.
-
12. Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun
Mál 1210091 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri hafna fór yfir stöðu framkvæmda við Mjóeyrarhöfn 2. áfanga og framvindu síðasta árs.
-
13. 740 Landanaust 3 - Umsókn um lóð
Mál 1801099 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Fjarðanets hf, dagsett 12. janúar 2018, þar sem sótt er um lóðina Landanaust 3 á Norðfirði undir atvinnuhúsnæði.
Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að Landanausti 3 og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
14. Aukin framleiðsla á laxi í Reyðarfirði um 10.000 tonn - beiðni um umsögn á frummatsskýrslu
Mál 1801087 Allur ferill málsins
Framlögð frummatsskýrsla vegna viðbótarframleiðslu Laxa fiskeldi ehf. á 10.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði. Umsögn um skýrsluna óskast send Skipulagsstofnun fyrir 5.febrúar nk. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar til umsagnar.
Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna að hefja undirbúning að umsögn um skýrsluna í samráði við aðra embættismenn og leggja fyrir stjórnina.