Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 190

30. janúar 2018, kl. 16:30 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Endurnýjun hafnsögumannsskírteinis 2018

    Mál 1801138 Allur ferill málsins

    Óli Hans Gestsson hefur óskað umsagnar hafnarstjórnar/forstöðumanns hafna vegna endurnýjunar á hafsögu- og leiðsöguskírteini. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra hafna að ganga frá umsögn.

  2. 2. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2018

    Mál 1801005 Allur ferill málsins

    400. fundargerð Hafnasamband Íslands lögð fyrir Hafnarstjórn til kynningar.

  3. 3. Aðalfundur Cruise Iceland - Fjarðabyggð 2018

    Mál 1801048 Allur ferill málsins

    Cruise Iceland heldur aðalfund sinn fyrir árið 2018, þann 18. maí 2018. Fundurinn verður haldinn í Fjarðabyggð. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra hafna að taka á móti fundargestum með sambærilegum hætti og hefð er fyrir.

  4. 4. Grjótvarnir í Fjarðabyggð

    Mál 1503195 Allur ferill málsins

    Aðfararnótt 18. janúar hrundi fylling við Strandgötu 68 fram í sjó. Fyllingin er hluti af framkvæmd grjótvarna í Fjarðabyggð. Stjórn Fjarðabyggðahafna felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu.

  5. 5. Samskip aðstaða í Fjarðabyggð

    Mál 1801145 Allur ferill málsins

    Þörf Samskipa fyrir aðstöðu í Fjarðabyggð rædd. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra hafna að halda áfram viðræðum við Samskip hf.