Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Fjárhagsáætlun HSA fyrir árið 2018

Mál 1711168 Fyrst á dagskrá 11. desember 2017, síðast 18. desember 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 545 liður 9

    Lagt fram bréf Heilbrigðisstofnunar Austurlands til heilbrigðisráðherra frá 24.nóvember, er varðar fjárhagsáætlunar stofnunarinnar fyrir árið 2018.

    Bæjarráð lýsir yfir miklum áhyggjum af ófjármagnaðri fjárþörf Heilbrigðisstofnunar Austurlands og að núverandi fjárframlög fela í sér að ekki sé hægt að halda við og efla þjónustustig stofnunarinnar eða framþróun hennar. Bæjarstjóra falið að koma bókun bæjarráðs á framfæri við heilbrigðisráðherra.

  2. Bæjarstjórn, fundur 234 liður 1.9

    Fundargerðin „Bæjarráð - 545“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 546 liður 1

    Þennan lið fundarins sat Guðjón Hauksson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Rætt um alvarlega stöðu innan Heilbrigðisstofnunar Austurlands, en engin ný framlög til stofnunarinnar er að finna í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar 2018.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega þeirri alvarlegu stöðu sem er að koma upp í heilbrigðismálum á landsbyggðinni. Ljóst er að ef ekki kemur til aukið framlag til Heilbrigðisstofnunar Austurlands þarf að fara í mjög sársaukafullar og alvarlegar aðgerðir til að ná sparnaði til að standast fjárlagaframma árins 2018. Við þetta getur bæjarráð Fjarðabyggðar ekki unað og skorar á stjórnvöld að bæta úr þessu án tafar.