Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 233

30. nóvember 2017, kl. 16:00 til 17:41, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 543

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 543 og 544 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 543 frá 20.nóvember 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20181705194
    2. 1.2 Heillaóskir vegna nýrra Norðfjarðrarganga1711083
    3. 1.3 Erindi frá Breiðdalshreppi - sameiningarmál1706125
    4. 1.4 Skýrsla um ferðasumarið 20171710124
    5. 1.5 Afnotasamningur við landeigendur Skíðasvæðisins í Oddsskarði1411139
    6. 1.6 Eignarhald á félagsheimilinu Skrúði Fáskrúðsfirði1711121
    7. 1.7 Dalatangi - netsamband um gervihnött - þjónusta lögð niður um áramót1711123
    8. 1.8 Ráðning framkvæmdastjóra hafna1709156
    9. 1.9 Öryggismál og eldvarnir jarðganga1704074
    10. 1.10 Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 1.nóvember1710064
    11. 1.11 Hafnarstjórn - 1871711011F
    12. 1.12 Félagsmálanefnd - 1011711008F
  2. 2. Bæjarráð - 544

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 543 og 544 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 544 frá 27.nóvember 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Jólasjóðurinn1311103
    2. 2.2 Stefnumótun í fiskeldismálum1703120
    3. 2.3 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018.1709072
    4. 2.4 Snjóflóðavarnir Urðabotna/Drangagil1711109
    5. 2.5 Ofanflóðavarnir í Neskaupstað og Eskifirði - bætur vegna skógræktar1711085
    6. 2.6 Samningur við Náttúrustofu Austurlands1711105
    7. 2.7 Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar1611104
    8. 2.8 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20171702075
    9. 2.9 Lánasamningur vegna 135 m.kr. láns nr. 1712_481711143
    10. 2.10 Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 71711144
    11. 2.11 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20181705194
    12. 2.12 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019 - 20211710159
    13. 2.13 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20181706041
    14. 2.14 Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 20181709203
    15. 2.15 Gjaldskrá byggingarleyfis-, framkvæmdaleyfis- og þjónustugjalda skipulags- og byggingafulltrúa 20181709206
    16. 2.16 Gjaldskrá bókasafna 20181709215
    17. 2.17 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20181709195
    18. 2.18 Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 20181709210
    19. 2.19 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 20181709200
    20. 2.20 Gjaldskrá félagsheimila 20181709216
    21. 2.21 Gjaldskrá í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar 20181709208
    22. 2.22 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 20181709209
    23. 2.23 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20181709221
    24. 2.24 Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 20181710065
    25. 2.25 Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 20181709196
    26. 2.26 Gjaldskrá grunnskóla 20181709211
    27. 2.27 Gjaldskrá skóladagheimila 20181709212
    28. 2.28 Gjaldskrá tónlistarskóla 20181709214
    29. 2.29 Gjaldskrá leikskóla 20181709213
    30. 2.30 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20181709198
    31. 2.31 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 20181709207
    32. 2.32 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 20181709197
    33. 2.33 Gjaldskrá fasteignagjalda 20181709220
    34. 2.34 Útsvar 20181710077
    35. 2.35 Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 20181406124
    36. 2.36 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1911711014F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 191

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 191 frá 20.nóvember 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Klippikort á söfnunarstöðvum1612013
    2. 3.2 Dúfur í miðbæ Reyðarfjarðar1711113
    3. 3.3 Stefnumótun í fiskeldismálum1703120
    4. 3.4 Tjaldsvæði Fjarðabyggð 20171612066
    5. 3.5 730 Sunnugerði 3 - Umsókn um stækkun lóðar ásamt endurnýjun á lóðaleigusamningi1711036
    6. 3.6 750 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting - skógrækt, Víkurgerði1706060
    7. 3.7 750 Álfabrekka 6 - byggingarleyfi, stækkun bílskúrs1710004
    8. 3.8 730 Austurvegur - Umsókn um lóð1710155
    9. 3.9 Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 20181709203
    10. 3.10 Gjaldskrá byggingarleyfis-, framkvæmdaleyfis- og þjónsutugjalda skipulags- og byggingafulltrúa 20181709206
    11. 3.11 755 Óseyri - efnistaka1711115
    12. 3.12 Skóla- og íþróttasvæði,miðbær Reyðarfirði1711106
    13. 3.13 Fjárhagsheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Eigna,skipulags og umhverfisnefnd1709020
    14. 3.14 Snjóflóðavarnir Urðabotna/Drangagil1711109
    15. 3.15 Ofanflóðavarnir á Norðfirði ? Urðarbotn og Sniðgil og Urðabotna og Bakkagil. Mat á umhverfisáhrifum. Drög að frummatsskýrslu.1509179
    16. 3.16 Ofanflóðavarnir í Neskaupstað og Eskifirði - bætur vegna skógræktar1711085
    17. 3.17 Frístundaakstur1710015
    18. 3.18 Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 1.nóvember1710064
    19. 3.19 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir1602108
  4. 4. Hafnarstjórn - 187

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 187 frá 16.nóvember 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Ráðning framkvæmdastjóra hafna1709156
    2. 4.2 Fundargerðir Hafnasamband Íslands 20171701008
    3. 4.3 Ábending frá Hafnasambandi Íslands vegna fyrirspurnar til nokkurra hafna um farþegagjöld1711018
    4. 4.4 Aðalfundur SSA 20171605076
    5. 4.5 Aðalfundarboð 2017 - Ársreikningur 20161710093
    6. 4.6 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Sergey Balashevich skipstjóra á Mv Marmaui1710162
    7. 4.7 Umsókn um skammtímaafnot af landi við Mjóeyrarhöfn vormánuði 20181711023
    8. 4.8 730 Mjóeyrarhöfn - umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips1710105
    9. 4.9 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði1505078
    10. 4.10 Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði1201079
    11. 4.11 Fyrirspurn um heimild til að afhenda rannsóknarskýrslur1711082
    12. 4.12 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20181706041
  5. 5. Félagsmálanefnd - 101

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 101 frá 14.nóvember 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Félagsmálanefnd1709026
    2. 5.2 Styrkbeiðni vegna Stígamóta 20181710137
    3. 5.3 Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 20181710182
    4. 5.4 Móttaka flóttamanna á árinu 20181710151
    5. 5.5 Ósk um niðurfellingu/styrk á fasteignagjöldum vegna veikinda1705232
    6. 5.6 Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila1110040
    7. 5.7 Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 20171705245
  6. 6. Útsvar 2018

    Mál 1710077 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að útsvari á árinu 2018. Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars á árinu 2018 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð.

  7. 7. Gjaldskrá fasteignagjalda 2018

    Mál 1709220 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að álagningu fasteignagjalda á árinu 2018 ásamt viðmiðunum um afslátt fasteignagjalda fyrir elli- og örorkulífeyrisþega samhliða minnisblaði fjármálastjóra um álagninguna. Einnig er lögð fram tillaga að reglum um afslátt af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2018.

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögum úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum að fasteignagjöld ársins 2018 verði sem hér segir:

    Fasteignaskattur A verði 0,50 % 1 af húsmati og lóðarhlutamati.

    Fasteignaskattur B verði 1,32 % 2 af húsmati og lóðarhlutamati.

    Fasteignaskattur C verði 1,65 % 3 af húsmati og lóðarhlutamati.

    Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,70 % af lóðarhlutamati.

    Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 3,00% af lóðarhlutamati.

    Vatnsgjald verði 0,258 % af húsmati.

    Holræsagjald verði 0,343 % af húsmati.

    Sorphreinsunargjald verði 28.828 kr. á heimili.

    Sorpeyðingargjald verði 13.682 kr. á heimili.

    Fjöldi gjalddaga verði átta - mánaðarlega frá 1. febrúar.

    Eindagi fasteignagjalda er síðasti virki dagur gjalddagamánaðar

    Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða með 9 atkvæðum að afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði sem hér segir:

    a) Hámarks afsláttur af fasteignaskatti fylgi breytingum fasteignamatsstofns og hækki um 6,4% frá árinu 2017 og verði kr. 62.517 á árinu 2018.

    b) Afsláttur fasteignaskatts er tekjutengdur og miðast við árstekjur ársins 2017 samanber álagningu skattstjóra á árinu 2018 og breytist í samræmi við launavísitölu eða 6,7% frá fyrra ári og skulu tekjumörk vera sem hér segir:

    Einstaklingar: Brúttótekjur allt að kr. 3.416.095 - 100% afsláttur en brúttótekjur yfir kr. 4.517.707 - 0% afsláttur

    Hjón og samskattað sambýlisfólk: Brúttótekjur allt að kr. 5.188.613 - 100 % afsláttur en brúttótekjur yfir kr 6.201.088 - 0% afsláttur.

  8. 8. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018

    Mál 1705194 Allur ferill málsins

    Seinni umræða um fjárhags- og starfsáætlun 2018.

    Lögð fram tillaga til síðari umræðu að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana auk tillögu að starfsáætlun, fyrir árið 2018, ásamt greinargerð fjármálastjóra um breytingar sem gerðar hafa verið á áætlun milli umræðna og áhrif þeirra á áætlun áranna 2018 - 2021.

    Bæjarstjóri fylgdi fjárhags- og starfsáætlun ársins 2018 úr hlaði.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Pálína Margeirsdóttir og Páll Björgvin Guðmundsson.

    Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2018 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir eru eftirfarandi:

    Tölur í milljónum.kr

    Rekstrarniðurstaða

    Fjárfestingar

    Afb. langt.lána og leiguskuldb.

    Samstæða A- hluta

    123,2

    233,7

    337,4

    Samstæða B- hluta

    308,9

    567,4

    162,8

    Samstæða A og B hluta

    432,1

    801,1

    500,2

    Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 en vekja athygli á mörgun óvissuþáttum bæði hvað varðar tekjur og útgjöld. Þar vegur mest óvissa vegna kjarasamninga. Bæjarfulltrúar Fjarðalistans vekja athygli á að enn er mörgu ólokið við tillögur sem framkomu í skýrslu KPMG "Fjarðabyggð til framtíðar“ og það eru vonbrigði að ekki hafi enn tekist að útfæra endanlegar hugmyndir um frístundakort.

    Þá telja bæjarfulltrúar Fjarðalistans nauðsynlegt að endurskoða tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga.

    Það er ljóst að endurskoða þarf áætlunina og er æskilegt að það gerist sem fyrst þegar fyrir liggja nauðsynlegar upplýsingar varðandi óvissuþætti.

    Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun- og starfsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2018, með 9 atkvæðum.

  9. 9. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019 - 2021

    Mál 1710159 Allur ferill málsins

    Seinni umræða um þriggja ára fjárhagsáætlun 2019 - 2021. Framlögð tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2019 - 2021.

    Bæjarstjóri fylgdi þriggja ára áætlun úr hlaði og gerði grein fyrir helstu forsendum áætlunarinnar.

    Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir og Sævar Guðjónsson.

    Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja fjárhagsáætlun næstu þriggja ára en vekja athygli á mörgun óvissuþáttum bæði hvað varðar tekjur og útgjöld. Þar vegur mest óvissa vegna kjarasamninga.

    Bæjarfulltrúar Fjarðalistans vekja athygli á að enn er að mörgu ólokið vinnu við tillögur sem framkomu í skýrslu KPMG "Fjarðabyggð til framtíðar" og það eru vonbrigði að ekki hafi enn tekist að útfæra endanlegar hugmyndir um frístundakort. Þá telja bæjarfulltrúar Fjarðalistans nauðsynlegt að endurskoða tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Það er ljóst að endurskoða þarf áætlunina og er æskilegt að það gerist sem fyrst þegar fyrir liggja nauðsynlegar upplýsingar varðandi óvissuþætti.

    Bæjarstjórn samþykkir þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2019 til 2021, með 9 atkvæðum.

  10. 10. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 7

    Mál 1711144 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki nr. 7 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017. Viðaukinn er vegna uppgjörs lífeyrisskuldbindinga við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga að upphæð um 548 milljónir króna.

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði. Fyrir liggur tillaga fyrir bæjarráði að taka 135 milljónir króna að láni hjá Lánasjóði sveitarfélaga en að öðru leyti er gert ráð fyrir að taka að láni með tveimur skuldabréf eftirstöðvar lífeyrisskuldbindingarinnar hjá Brú lífeyrissjóði þegar endanlegt uppgjör skuldbindingarinnar liggur fyrir nú í desember nk. Annars vegar um 371,3 milljónir króna til 30 ára og hins vegar um 40,2 milljónir króna til 20 ára. Bæði skuldabréfin verða verðtryggð og bera um 3,5% vexti.

    Því er lagt til í samræmi við ofangreint að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2017 og mun fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 breytast sem hér segir:

    Rekstur lífeyrisskuldbindinga í málaflokki 27 hækkar sem nemur kr. 135.000.000 fyrir árið 2017 og nemi í heildina kr. 316.102.410.

    Langtímakröfur Aðalsjóðs Fjarðabyggðar hækki um kr. 411.500.000.

    Lántaka ársins 2017 ársins í Aðalsjóði hækki sem nemur kr. 546.500.000 fyrir árið 2017 og nemi í heildina fyrir A hluta 939.500.000 milljónir króna og fyrir samstæðu Fjarðabyggðar kr. 1.399.500.

    Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun ársins 2017, með 9 atkvæðum.

  11. 11. Lánasamningur vegna 135 m.kr. láns nr. 1712_48

    Mál 1711143 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir lánasamningi við Lánasjóð sveitarfélaga. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum fyrirliggjandi lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 139.769.516, með útgreiðslufjárhæð allt að kr. 135.000.000, með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarfulltrúar hafa kynnt sér. Lánið er bundið vísitölu neysluverð og ber fasta vexti. Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á uppgjöri við Brú lífeyrissjóð sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Páli Björgvini Guðmundssyni, bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 150870-4379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

  12. 12. Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1611104 Allur ferill málsins

    Tillaga að húsnæðisstefnu Fjarðabyggðar, ásamt greiningu á fasteignamarkaði í Fjarðabyggð, tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

    Bæjarstjóri mælti fyrir húsnæðisstefnu.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson og Sævar Guðjónsson.

    Samþykkt með 9 atkvæðum að vísa Húsnæðisstefnu Fjarðabyggðar til síðari umræðu í bæjarstjórn, þegar frekari vinnsla áætlunar hefur farið fram.

  13. 13. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018.

    Mál 1709072 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir sérstökum skilyrðum Fjarðabyggðar vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir skilyrðin samhljóða og felur jafnframt bæjarstjóra umboð til að staðfesta alla samninga um vinnslu afla, vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018.