Eignarhald á félagsheimilinu Skrúði Fáskrúðsfirði
Mál 1711121 Fyrst á dagskrá 20. nóvember 2017, síðast 14. desember 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fáskrúðsfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 543 liður 6
Framlagt bréf Hollvinasamtaka félagsheimilisins Skrúðs sem fjallar um eignarhald á húsinu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og málið verður tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
-
Bæjarstjórn, fundur 233 liður 1.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 543“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 545 liður 11
Framlagt bréf Hollvinasamtaka félagsheimilisins Skrúðs sem fjallar um eignarhald á húsinu. Bæjarstjóri hefur fundað með formanni hollvinasamtakanna sbr. bókun bæjarráðs frá 20.nóvember. Ekki er áhugi hjá samtökunum að taka yfir eignarhald félagsheimilisins.
Bæjarráð hefur ekki áform um breytt eignarhald félagsheimilsins Skrúðs meðan samtök heimamanna á Fáskrúðsfirði bera hag þess jafn mikið fyrir brjósti og verið hefur. Þá hefur umsjón Slysavarnardeildarinnar Hafdísar, með félagsheimilinu, verið með miklum sóma.
-
Bæjarstjórn, fundur 234 liður 1.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 545“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.