Bæjarráð, fundur 543
20. nóvember 2017, kl. 08:30 til 09:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 233 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 543 og 544 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson og Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 543 frá 20.nóvember 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018
Mál 1705194 Allur ferill málsins
Framlögð drög að tillögu að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2018 ásamt minnisblaði fjármálastjóra um breytingar á fjárhagsáætluninni.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
-
2. Heillaóskir vegna nýrra Norðfjarðrarganga
Mál 1711083 Allur ferill málsins
Lagðar fram heillaóskir vegna vígslu Norðfjarðarganga frá Samgöng, samtökum áhugafólks um veggöng á Austurlandi og Samgöngufélaginu.
Bæjarráð þakkar heillaóskir og felur bæjarritara að koma þökkum á framfæri.
-
3. Erindi frá Breiðdalshreppi - sameiningarmál
Mál 1706125 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fyrsta fundargerð samráðsnefndar um mögulega sameiningu Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar.
-
4. Skýrsla um ferðasumarið 2017
Mál 1710124 Allur ferill málsins
Framlögð skýrsla upplýsingafulltrúa um stöðu ferðamála í Fjarðabyggð sumarið 2017. Í skýrslunni er farið yfir aðsókn að söfnum, tjalssvæðum og sundlaugum. Vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd og íþrótta- og tómstundanefnd.
-
5. Afnotasamningur við landeigendur Skíðasvæðisins í Oddsskarði
Mál 1411139 Allur ferill málsins
Lagðir fram til staðfestingar leigusamningar við landeigendur Sellátra og Högnastaða vegna Skíðasvæðisins í Oddsskarði.
Bæjarráð staðfestir samningana og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.
-
6. Eignarhald á félagsheimilinu Skrúði Fáskrúðsfirði
Mál 1711121 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Hollvinasamtaka félagsheimilisins Skrúðs sem fjallar um eignarhald á húsinu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og málið verður tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
-
7. Dalatangi - netsamband um gervihnött - þjónusta lögð niður um áramót
Mál 1711123 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Fjarskiptasjóðs þar sem upplýst er að gervihnattasamband við Dalatanga verður lagt af um næstu áramót en þá rennur út samningur Fjarskiptasjóðs og Radíómiðlunar.
Bæjarráð mótmælir harðlega áformum Fjarskiptasjóðs um að leggja af gervihnattasamband við Dalatanga enda sé um að ræða skerðingu á þjónustu og öryggi staðarins. Þá þjónar Dalatangi mikilvægu hlutverki vegna veðurathugana og aðstæður á staðnum þannig að fjarskipti við hann verða ekki leystar með öðrum hætti.
Bæjarstjóra falið að ræða við Fjarskiptasjóð.
-
8. Ráðning framkvæmdastjóra hafna
Mál 1709156 Allur ferill málsins
Tíu aðilar sóttu um stöðu framkvæmdastjóra hafna en staðan var auglýst með umsóknarfrest til og með 23.október. Capacent ráðningar, í samráði við bæjarstjóra, hafa unnið að ráðningarferlinu og veitt bæjarstjóra ráðgjöf í ferlinu.
Fyrir liggur tillaga bæjarstjóra, sem unnin var í samráði við hafnarstjórn, með greinagerð um að Hákon Ásgrímsson verði ráðinn framkvæmdastjóri hafna. Tillögunni til stuðnings er vísað til umfjöllunar í greinargerð bæjarstjóra sem og annarra gagna máls, þ.m.t. samantektar og mats sem unnið var af Capacent ráðningum. Þá er í tillögunni ennfremur vísað til mannauðsstefnu sveitarfélagsins og reglur þess um ráðningarferli hjá sveitarfélaginu.
Bæjarráð fór yfir tillögu bæjarstjóra að ráðningu framkvæmdastjóra hafna og lagði mat á hana. Bæjarráð staðfestir tillögu bæjarstjóra um að ráða Hákon Ásgrímsson sem framkvæmdastjóra hafna. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að bjóða Hákoni Ásgrímssyni ráðningu í starfið og ganga frá gerð ráðningarsamnings.
-
9. Öryggismál og eldvarnir jarðganga
Mál 1704074 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samningi vegna framlags Vegagerðarinnar til Slökkviliðs Fjarðabyggðar vegna Norðfjarðarganga.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
10. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 1.nóvember
Mál 1710064 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundar HAUST frá 1. nóvember 2017 lögð fram til kynningar.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
11. Hafnarstjórn - 187
Fundargerð hafnarstjórnar frá 16.nóvember 2017 lögð fram til kynningar.
-
12. Félagsmálanefnd - 101
Fundargerð félagsmálanefndar frá 14.nóvember 2017 lögð fram til kynningar.