Dalatangi - netsamband um gervihnött - þjónusta lögð niður um áramót
Mál 1711123 Fyrst á dagskrá 20. nóvember 2017, síðast 30. nóvember 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 543 liður 7
Framlagt bréf Fjarskiptasjóðs þar sem upplýst er að gervihnattasamband við Dalatanga verður lagt af um næstu áramót en þá rennur út samningur Fjarskiptasjóðs og Radíómiðlunar.
Bæjarráð mótmælir harðlega áformum Fjarskiptasjóðs um að leggja af gervihnattasamband við Dalatanga enda sé um að ræða skerðingu á þjónustu og öryggi staðarins. Þá þjónar Dalatangi mikilvægu hlutverki vegna veðurathugana og aðstæður á staðnum þannig að fjarskipti við hann verða ekki leystar með öðrum hætti.
Bæjarstjóra falið að ræða við Fjarskiptasjóð.
-
Bæjarstjórn, fundur 233 liður 1.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 543“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.