Ráðning framkvæmdastjóra hafna
Mál 1709156 Fyrst á dagskrá 26. september 2017, síðast 30. nóvember 2017. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Í heiti málsins: Hafnir
Í hnotskurn
Málið fjallar um ráðningu framkvæmdastjóra hafna hjá Fjarðabyggð1. Bæjarráð staðfesti tillögu bæjarstjóra um að ráða einn umsækjendanna í starfið og bæjarstjórn staðfesti þá afgreiðslu 30. nóvember 201745.
Staðan
Bæjarráð fól bæjarstjóra að bjóða umsækjandanum starfið og ganga frá ráðningarsamningi, og bæjarstjórn staðfesti afgreiðsluna 30. nóvember 201745.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Hafnarstjórn, fundur 184 liður 4
Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri fór yfir fyrirhugað ráðningarferli og hafnarstjórn samþykkti tillögu hans um að fá aðstoð Capacent við ferlið.
Endursögn gervigreindar
Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri var í símasambandi við fundinn undir þessum lið. Hann fór yfir ráðningarferlið sem væri framundan. Bæjarstjóri lagði til að fenginn yrði aðstoð Capasent við ráðningaferlið. Hafnarstjórn samþykkir tillöguna.
-
Bæjarstjórn, fundur 229 liður 4.4
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 184“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Hafnarstjórn, fundur 187 liður 1
Bæjarstjóri og ráðgjafi hjá Capacent ráðningum fóru yfir ráðningarferlið og mat á umsækjendum, og hafnarstjórn lýsti sig sammála tillögu bæjarstjóra sem leggja átti fyrir næsta fund bæjarráðs.
Endursögn gervigreindar
Málið var áður á dagskrá Hafnarstjórnar 26.sept sl. Skv. 65. gr. samþykktar um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar ræður bæjarráð starfsmenn í þær stjórnunarstöður sem heyra beint undir bæjarstjóra, samkvæmt skipuriti sveitarfélagsins, að fenginni tillögu bæjarstjóra og auk þess yfirmenn stofnana og fyrirtækja í eigu sveitarfélagsins sem heyra beint undir bæjarstjóra. Skv. 11 gr erindisbréfs hafnarstjórnar og 4 gr. hafnareglugerðar sem fjallar um ráðningar skal tillaga bæjarstjóra unnin í samráði við hafnarstjórn.
Lesa alla bókunina (54 orð til viðbótar)
Bæjarstjóri fór yfir ráðningarferli framkvæmdastjóra hafna, faglegt mat og síðan þá tillögu sem unnið er að. Í símasambandi við fundinn er Jóna Björk Sigurjónsdóttir ráðgjafi hjá Capacent ráðningum sem fór yfir ráðningarferlið og mat á umsækjendum. Hafnarstjórn er sammála tillögu bæjarstjóra um ráðningu framkvæmdastjóra hafna en hún verður lögð fram á næsta fundi bæjarráðs.
-
Bæjarráð, fundur 543 liður 8
Tíu sóttu um starfið og bæjarráð staðfesti tillögu bæjarstjóra um að ráða einn umsækjendanna og fól bæjarstjóra að bjóða honum starfið og ganga frá ráðningarsamningi.
Endursögn gervigreindar
Tíu aðilar sóttu um stöðu framkvæmdastjóra hafna en staðan var auglýst með umsóknarfrest til og með 23.október. Capacent ráðningar, í samráði við bæjarstjóra, hafa unnið að ráðningarferlinu og veitt bæjarstjóra ráðgjöf í ferlinu.
Lesa alla bókunina (104 orð til viðbótar)
Fyrir liggur tillaga bæjarstjóra, sem unnin var í samráði við hafnarstjórn, með greinagerð um að Hákon Ásgrímsson verði ráðinn framkvæmdastjóri hafna. Tillögunni til stuðnings er vísað til umfjöllunar í greinargerð bæjarstjóra sem og annarra gagna máls, þ.m.t. samantektar og mats sem unnið var af Capacent ráðningum. Þá er í tillögunni ennfremur vísað til mannauðsstefnu sveitarfélagsins og reglur þess um ráðningarferli hjá sveitarfélaginu.
Bæjarráð fór yfir tillögu bæjarstjóra að ráðningu framkvæmdastjóra hafna og lagði mat á hana. Bæjarráð staðfestir tillögu bæjarstjóra um að ráða Hákon Ásgrímsson sem framkvæmdastjóra hafna. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að bjóða Hákoni Ásgrímssyni ráðningu í starfið og ganga frá gerð ráðningarsamnings.
-
Bæjarstjórn, fundur 233 liður 1.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 543“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 233 liður 4.1
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 187“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.