Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 184

26. september 2017, kl. 16:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 536 liður 16

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. september s.l. lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 229 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. september s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir CI á árinu 2017

    Mál 1701009 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 30. ágúst 2017 lögð fram til kynningar ásamt vinnugögnum fyrir vinnustofu sem halda á í október.

  2. 2. Efnistaka við Eyri allt að 520.000.m3

    Mál 1709112 Allur ferill málsins

    Umhverfisstjóri leggur fram til kynningar tillögu að matsáætlun - allt að 520.000 m3 efnistaka við Eyri í Reyðarfirði.

    Hafnarstjórn gerir engar athugasemdir við tillögu að matsáæltun á efnisnámi á allt að 520.000 m3 efnis utan netlagna við Eyri í Reyðarfirði.

  3. 3. Erindi frá framkvæmdastjóra hafna

    Mál 1709106 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Steinþórs Péturssonar framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna, þar sem Steinþór tilkynnir að hann hafi ákveðið að láta af störfum og hverfi til annara starfa. Hafnarstjórn þakkar Steinþóri Péturssyni fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

  4. 4. Ráðning framkvæmdastjóra hafna

    Mál 1709156 Allur ferill málsins

    Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri var í símasambandi við fundinn undir þessum lið. Hann fór yfir ráðningarferlið sem væri framundan. Bæjarstjóri lagði til að fenginn yrði aðstoð Capasent við ráðningaferlið. Hafnarstjórn samþykkir tillöguna.

  5. 5. Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 2017

    Mál 1705245 Allur ferill málsins

    Drögum að innkaupareglum ásamt gögnum vísað til umsagna í nefndum Fjarðabyggðar frá bæjarráði. Málinu frestað til næsta fundar.

  6. 6. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun

    Mál 1706013 Allur ferill málsins

    Áframhald vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018 og langtímaáætlun fyrir árin 2019 til 2021