Hafnarstjórn, fundur 183
12. september 2017, kl. 16:00 til 18:20, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 534 liður 13
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 183 frá 12.september 2017, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 228 liður 5
Enginn tók til máls
Fundargerð hafnarstjórnar frá 12.september 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2017
Mál 1701008 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 396 dags. 25. ágúst 2017 lögð fram til kynningar
-
2. Reglugerð um slysavarnir og öryggisbúnað í höfnum
Mál 1709036 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 6. september 2017 þar sem send er til upplýsinga ný reglugerð um slysavarnir og öryggisbúnað í höfnum.
-
3. Hafnarfundur 2017
Mál 1708110 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 22. ágúst 2017 þar sem boðað er til Hafnafundar 2017 fimmtudaginn 21. september nk. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á hafnafundinn.
-
4. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Valerii Filimonov skipstjóra á Samskip Hoffell
Mál 1708158 Allur ferill málsins
Erindi frá Samskipum dags. 29. ágúst 2017 þar sem sótt eru um undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Valerii Filimonov skipstjóra á Samskip Hoffelli.
Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Valerii Filimonov skipstjóra á Samskip Hoffell.
-
5. Fyrirspurn um Stöðvarfjarðarhöfn
Mál 1708109 Allur ferill málsins
Fyrirspurn frá Bjarna Stefáni Vilhjálmssyni dags. 21. ágúst þar sem spurt er hvort fyrirhugað sé að stækka smábátahöfnina á Stöðvarfirði, en smæð hennar hindri orðið aukningu við höfnina.
Hafnarstjórn mun taka stækkun smábátahafnarinnar fyrir við vinnu í áætlunargerði hafnarsjóðs fyrir árin 2018 til 2021. Framkvæmdastjóra falið að svara bréfritara.
-
6. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun
Mál 1706013 Allur ferill málsins
Framhald vinnu við undirbúning að fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2018 ásamt langtímaáætlun.