Bæjarráð, fundur 534
18. september 2017, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 228 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 18.september s.l. utan liðar 9, skammtímaleiga á Hulduhlíð á Eskifirði og liðar 10, nytjaréttur af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborg á Norðfirði samþykkt með 9 atkvæðum.
Jens Garðar Helgason vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu liðar 9.
Dagskrárliður tekinn til afgreiðslu, enginn tók til máls.
Dagskrárliður samþykktur með 9 atkvæðum.
Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu liðar 10.
Dagskrárliður tekin til afgreiðslu, til máls tók Einar Már Sigurðarson.
Dagskrárliður samþykktur með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun
Mál 1706013 Allur ferill málsins
Farið yfir úthlutaða fjárhagsramma fyrir hafnarsjóð Fjarðabyggðar.
Vísað til framkvæmdastjóra hafna til úrvinnslu.
-
2. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Menningar- og safnanefnd
Mál 1709029 Allur ferill málsins
Farið yfir úthlutaða fjárhagsramma fyrir menningarmál.
Vísað til bæjarritara til úrvinnslu.
-
3. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Fræðslunefnd
Mál 1709028 Allur ferill málsins
Farið yfir úthlutaða fjárhagsramma fyrir fræðslumál.
Vísað til fræðslustjóra til úrvinnslu.
-
4. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 6
Mál 1709097 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að viðauka 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2017. Viðaukinn snýr að auknum útgjöldum vegna námsgagnakaupa, almenningssamgangna og bifreiðakaupa.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til bæjarstjórnar til staðfestingar.
-
5. Forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda fyrir árið 2018 og fjárhagsáætlun til þriggja ára
Mál 1709080 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda fyrir árið 2018.
Vísað til fjármálastjóra.
-
6. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018.
Mál 1709072 Allur ferill málsins
Sveitarfélögum er gefinn kostur á að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2017/2018 á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006 sem hafa orðið fyrir skerðingu aflaheimilda. Umsóknarfrestur um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017 til 2018 er til 15.október nk.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um byggðakvóta og felur bæjarstjóra að senda inn umsókn.
-
7. Ljósleiðaravæðing í dreifbýli Fjarðabyggðar
Mál 1708073 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að bréfum til Mílu ehf. og Póst- og fjarskiptastofnunar vegna erindis Mílu um ljósleiðaralagningu um Suðurfirði. Erindi til Póst- og fjarskiptastofnunar felur í sér beiðni um umsögn samnings og bréfs Mílu.
-
8. Styrkbeiðni vegna þorrablóts Reyðfirðinga
Mál 1709088 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni um styrk vegna kaupa á búnaði í íþróttahúsið á Reyðarfirði vegna þorrablóts. Um er að ræða tjöld sem kosta 558.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að styrkja búnaðarkaup um 250.000 kr. Bæjarstjóra falið að afgreiða erindi.
-
9. Skammtímaleiga á Hulduhlíð Eskifirði
Mál 1709093 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá Ernu Þorsteinsdóttur f.h Eskju, um tímabundna leigu á húsnæði gömlu Hulduhlíðar, vegna óvæntra aðstæða.
Bæjarráð samþykkir að heimila leigu af húsnæðinu að því gefnu að öll tilskilin leyfi liggi fyrir og að annað gistirými á Eskifirði og nágrenni sem sinnt getur þörfum fyrirtækisins sé fullnýtt. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi en drög að honum liggja fyrir fundinum.
-
10. Nytjaréttur af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborg á Norðfirði
Mál 1705243 Allur ferill málsins
Umræðu framhaldið um ráðstöfun á nýtjarétti æðavarps í Búlandsborgum á Norðfirði. Á fundi bæjarráðs 24. júlí sl. var bæjarstjóra falið að vinna málið áfram, ræða við hæstbjóðendur og ganga frá samningi um nytjaréttinn. Málinu var frestað á fundi bæjarráðs 14.ágúst. Lagt fram bréf Sigurðar Rúnars Ragnarssonar frá 30. ágúst er varðar málið ásamt álitsgerðum lögmanns.
Á fundi bæjarráðs þann 14.ágúst var ákveðið að fresta afgreiðslu málsins og er það nú tekið fyrir að nýju. Bæjarráð samþykkir að hafna öllum tilboðum í nytjarétt af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborgum á Norðfirði en í auglýsingu um nytjaréttinn áskilur sveitarfélagið sér rétt til að hafna öllum tilboðum. Það er álit bæjarráðsins að það þjóni hagsmunum sveitarfélagins best að óska eftir tilboðum í nytjaréttinn á nýjan leik á þeirri forsendu að skilmálar liggi fyrir með skýrari hætti í upphafi. Þá hafa komið fram athugasemdir við málsmeðferðina og telur bæjarráð, að þó ekkert hafi komið fram sem raskað hafi jafnræði með tilboðsgjöfum, verði málsmeðferðin að vera hafin yfir allan vafa.
Bæjarstjóra er falið að auglýsa eftir tilboðum í nytjarétt æðarvarpsins á Búlandsborgum á Norðfirði að nýju.
Þá er tekið fyrir bréf Sigurðar Rúnars Ragnarssonar frá 30.ágúst. Með vísan til bókunar bæjarráðs hér að framan er tilboði Sigurðar Rúnars í nytjaréttinn hafnað.
-
11. Erindi frá framkvæmdastjóra hafna
Mál 1709106 Allur ferill málsins
Fyrir liggur bréf Steinþórs Péturssonar framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna, þar sem Steinþór tilkynnir að hann hafi ákveðið að láta af störfum og hverfi til annara starfa. Bæjaráð vill óska Steinþóri velfarnaðar á nýjum vettvangi um leið og honum eru þökkuð störf á vettvangi sveitarfélagsins og framlag sitt til uppbyggingar og framgang þess. Bæjarstjóra er falið að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna í samráði við hafnarstjórn.
-
12. Fræðslunefnd - 45
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 45 frá 13.september 2017, lögð fram til kynningar.
-
13. Hafnarstjórn - 183
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 183 frá 12.september 2017, lögð fram til kynningar.
-
14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 185
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 185 frá 11.september 2017, lögð fram til kynningar.
-
15. Menningar- og safnanefnd - 34
Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 34 frá 13.september 2017, lögð fram til kynningar.