Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 6

Mál 1709097 Fyrst á dagskrá 18. september 2017, síðast 21. september 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 534 liður 4

    Lögð fram tillaga að viðauka 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2017. Viðaukinn snýr að auknum útgjöldum vegna námsgagnakaupa, almenningssamgangna og bifreiðakaupa.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til bæjarstjórnar til staðfestingar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 228 liður 10

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka við fjárhagsáætlun 2017 úr hlaði.

    Lögð fram tillaga að viðauka 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2017. Viðaukinn fjallar um aukin útgjöld vegna námsgagnakaupa, almenningssamgangna og bifreiðakaupa og er vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Rekstur fræðslumála í málaflokki 04 hækkar um 1.950.000 kr. og nemi í heildina 2.296.002.119 kr.

    Rekstur almenningssamgangna í málaflokki 10-710 hækki sem nemur 3.000.000 kr. og nemi í heildina 33.947.734 kr.

    Lesa alla bókunina (65 orð til viðbótar)

    Fjárfestingar Tækjamiðstöðvar í málaflokki 35 hækki sem nemur kr. 3.500.000 kr. og nemi í heildina 55.500.000 kr.

    Auknar fjárfestingar Tækjamiðstöðvar verði fjármagnaðar af eigin fé Tækjamiðstöðvarinnar og með hækkun á viðskiptastöðu stofnunarinnar við Aðalsjóð og fjármagnaðar af eigin fé Aðalsjóðs.

    Handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um 8.400.000 kr. til samræmis við ofangreint og verða 84.188.000 kr. í árslok 2017.

    Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 228 liður 2.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 534“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is