Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 185

11. september 2017, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður
  • Kristjana Guðmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður
  • Þorsteinn Sigurjónsson, embættismaður
  • Ragna Dagbjört Davíðsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 534 liður 14

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 185 frá 11.september 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 228 liður 4

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 11.september s.l. samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aðgerðaáætlun um aukna úrgangsflokkun

    Mál 1609180 Allur ferill málsins

    Lögð fram aðgerðaráætlun um aukna úrgangsflokkun og úrgangsforvarnir dags. september 2017. Verkefnastjóri umhverfismála kynnti áætlun. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti aðgerðaráætlun.

  2. 2. Tjaldsvæði Fjarðabyggð 2017

    Mál 1612066 Allur ferill málsins

    Samningur um tjaldsvæði í Fjarðabyggð við Landamerki ehf er útrunninn 30 september næstkomandi.

    Eigna-, skipulagas- og umhverfisnefnd mun taka til umfjöllunar málefni tjaldsvæða í Fjarðabyggð á næsta fundi sínum.

    Nauðsynlegt er að koma til móts við þá ferðamenn sem ferðast um á veturna og bæta opnunartíma tjaldsvæðanna.

    Nefndin felur umhverfissstjóra að vinna að úrbótum á opnunartíma tjaldsvæða í Fjarðabyggð til að koma til móts við ferðamenn á meðan á stefnumótun stendur.

  3. 3. Hleðslustöð-bílastæði

    Mál 1709053 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Jóns Sigurðssonar fh. Orku náttúrunnar dags. 6.september síðastliðinn þar sem óskað er eftir heimild til uppsetningar á hleðslustöðvum á Stöðvarfirði. Óskað er eftir þrem bílastæðum á bílaplani við Steinasafn Petru. Settar yrðu upp tvær hleðslustöðvar fyrir rafbíla, önnur verður hraðhlesðlustöð DC og hin verður AC hleðsla 32A.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framtakinu og felur veitustjóra ásamt skipulags- og byggingarfulltrúa að fara yfir og útfæra staðsetningu hleðslustöðva.

  4. 4. Útilistaverk - Odee

    Mál 1612131 Allur ferill málsins

    Þar sem menningar- og safnanefnd vinnur nú að stefnumótun um útilistaverk hjá sveitarfélaginu þá mun eigna- skipulags- og umhverfisnefnd bíða niðurstöðu þeirra vinnu.

  5. 5. Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði

    Mál 1708088 Allur ferill málsins

    Lögð fram fyrsta tillaga starfshóps að fyrirkomulagi fjölskylduvinar í Skrúðgarðinum á Fáskrúðsfirði. Frekari hönnun svæðisins verður unnin áfram með nákvæmari útfærslu tækja, stíga, lýsingar og gróðurs.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lýsir yfir ánægju með gang mála og mun fylgjast með verkefninu áfram.

  6. 6. 740 Hafnarbraut 17 - byggingarleyfi - rífa hús

    Mál 1709048 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Nestaks ehf, byggingarverktaka, dagsett 7. september 2017, þar sem sótt er um leyfi til að rífa húsið sem stendur á lóðinni að Hafnarbraut 17 á Norðfirði. Byggingin er víkjandi samkvæmt deiliskipulagi svæðisins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  7. 7. Fjárhagsheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Eigna,skipulags og umhverfisnefnd

    Mál 1709020 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir fjárhagsheimildir nefndarinnar og felur sviðstjóra áframhaldandi vinnu í takt við áherslu nefndarinnar.