Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

755 Fjarðarbraut - Hleðslustöð rafbíla

Mál 1709053 Fyrst á dagskrá 11. september 2017, síðast 2. nóvember 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 185 liður 3

    Hleðslustöð-bílastæði

    Lögð fram beiðni Jóns Sigurðssonar fh. Orku náttúrunnar dags. 6.september síðastliðinn þar sem óskað er eftir heimild til uppsetningar á hleðslustöðvum á Stöðvarfirði. Óskað er eftir þrem bílastæðum á bílaplani við Steinasafn Petru. Settar yrðu upp tvær hleðslustöðvar fyrir rafbíla, önnur verður hraðhlesðlustöð DC og hin verður AC hleðsla 32A.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framtakinu og felur veitustjóra ásamt skipulags- og byggingarfulltrúa að fara yfir og útfæra staðsetningu hleðslustöðva.

  2. Bæjarstjórn, fundur 228 liður 4.3

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 185“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Hleðslustöð-bílastæði

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 188 liður 12

    Lögð fram ný beiðni Jóns Sigurðssonar fh. Orku náttúrunnar dags. 11. október 2017 þar sem óskað er eftir heimild til uppsetningar á hleðslustöð rafbíla á Stöðvarfirði. Óskað er eftir þrem bílastæðum á bílaplani milli Fjarðarbrautar 44 og 48.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir beiðni Orku náttúrunnar.

  4. Bæjarstjórn, fundur 231 liður 3.12

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 188“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is