Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 533

11. september 2017, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 228 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason,Jón Björn Hákonarson,Einar Már Sigurðarson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 11.september s.l. samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Bæjarráð

    Mál 1709025 Allur ferill málsins

    Farið yfir úthlutaða fjárhagsramma málaflokkanna sameiginlegs kostnaðar, atvinnumála fyrir árið 2018 sem undir ráðið heyra og heilbrigðismál.

    Vísað til sviðstjóra til úrvinnslu.

  2. 2. Fjárheimild í fjárhagsáætlun 2018 - Slökkvilið

    Mál 1709059 Allur ferill málsins

    Farið yfir úthlutaða fjárhagsramma fyrir slökkvilið Fjarðabyggðar.

    Vísað til slökkviliðsstjóra til úrvinnslu.

  3. 3. Kauptilboð í Bleiksárhlíð 2-4 3H

    Mál 1709039 Allur ferill málsins

    Lagt fram kauptilboð í íbúð nr. 0304, 217-0089 að Bleiksárhlíð 2-4 á Eskifirði frá Launafl hf.

    Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjórnar ákvörðun um að fasteignin verði seld þar sem hún er ekki á sölulista sem bæjarstjórn hefur staðfest.

    Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Tilboð í eignina vísað til fjármálastjóra til úrvinnslu.

  4. 4. Undirbúningur hafinn að landsátakinu Ísland ljóstengt vegna 2018

    Mál 1709032 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar tilkynning frá Innanríkisráðuneytinu um að hafinn sé undirbúningur fyrir næsta áfanga landsátaksins Ísland ljóstengt. Gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um úthlutun byggðastyrks vegna 2018 fyrir miðjan september. Áhugasöm sveitarfélög eru hvött til þess að leggja drög að umsóknum hið fyrsta.

    Veitustjóra í samvinnu við bæjarritara falið að undirbúa.

  5. 5. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2017

    Mál 1702019 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar sambandsins frá 1.september sl. lögð fram til kynningar.

  6. 6. Fundargerðir stjórnar SSA 2017

    Mál 1701059 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórnar SSA frá 5.júlí og 29.ágúst 2017, lagðar fram til kynningar.

  7. 7. Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði

    Mál 0903071 Allur ferill málsins

    Lögð fram dagskrá vegna vígslu varnargarða í Neskaupstað 19.september nk.

    Bæjarráð fundar með umhverfisráðherra kl. 14:30 í tengslum við vígsluna sem áformuð er kl. 16:00

  8. 8. Húsvarsla í Valhöll Eskifirði

    Mál 1705102 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísar samningi um húsvörslu við Vini Valhallar til bæjarstjóra til úrvinnslu.

  9. 9. Nefndaskipan Fjarðalista 2014 - 2018

    Mál 1406125 Allur ferill málsins

    Fjarðalistinn skipar Magna Harðarson í stað Estherar Aspar Gunnarsdóttur sem varamanns í hafnarstjórn.

  10. 10. Fræðslunefnd - 44

    Fundargerðin í heild

  11. 11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 184

    Fundargerðin í heild