Bæjarráð, fundur 532
4. september 2017, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 227 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs nr. 530, 531 og 532 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson, Einar Már Sigurðarson og Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 532 frá 4.september 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018
Mál 1705194 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga bæjarstjóra að úthlutun ramma að fjárhagsáætlun 2018 fyrir málaflokka. Jafnframt lagður fram rekstrar- og efnhagsreikningur ásamt drögum að fjárfestingar- og viðhaldsverkefnum næstu ára.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að skiptingu ramma.
Bæjarstjóra falið að úthluta fjárhagsrömmum til fastanefnda með skýringum.
-
2. Menningarstyrkir 2018
Mál 1708151 Allur ferill málsins
Forstöðumaður menningarstofu kynnti á fundi menningar- og safnanefndar 30.ágúst sl., hugmyndir um útvíkkun á menningarstyrkjum Fjarðabyggðar á árinu 2018. Menningar- og safnanefnd lýst vel á hugmyndirnar og vísaði þeim til bæjarráðs til umræðu.
Vísað til frekari vinnslu í samráði við bæjarritara.
-
3. Akstur til og frá athafnasvæðinu að Hrauni kl. 20:00
Mál 1607068 Allur ferill málsins
Frá fundi bæjarráðs 28. ágúst sl. þar sem bæjarstjóra var falið að vinna að máli áfram. Framlagt minnisblað um akstur ferðar kl. 20:00 að og frá Hrauni í Reyðarfirði um Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að halda áfram til áramóta akstri ferðar kl. 20:00 og ferðir verði settar inn í ferðaáætlun skipulagðra samgangna og auglýstar. Vísað til fjármálastjóra til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2017.
-
4. Fræðslumál starfsmanna grunn- og leikskóla
Mál 1708129 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir undirbúning að tillögu sinni er varðar fræðslumál í leik- og grunnskólum starfsmanna, sér í lagi í leikskólum.
Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og hvetur skólastjóra til að halda vel utan um íslenskukennslu.
-
5. Samgönguþing
Mál 1708156 Allur ferill málsins
Samgönguþing verður haldið 28. september nk. að Hótel Örk í Hveragerði.
Bæjarráð samþykkir að það mæti á þingið ásamt bæjarstjóra.
-
6. Móttaka gesta á Franska daga og Íslandsdagar í Gravelines 2017
Mál 1705103 Allur ferill málsins
Framlagt boð Gravelines á Íslandsdaga 22. til 24. september nk. auk dagskrár. Var á dagskrá síðasta fundar bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að í ferðina fari þau Eydís Ásbjörnsdóttir, Þóroddur Helgason, Pálína Margeirsdóttir og fulltrúi Franskra daga.
-
7. Erindi í vinnslu hjá Sókn lögmannsstofa ehf
Mál 1708169 Allur ferill málsins
Farið yfir mál sem eru í vinnslu hjá lögmönnum sveitarfélagsins.
-
8. Ósk um tímabundið leyfi frá störfum bæjarfulltrúa
Mál 1708165 Allur ferill málsins
Esther Ösp Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi óskar eftir leyfi frá störfum frá 1.september og til áramóta, vegna fæðingarorlofs.
Einar Már Sigurðarson tekur sæti sem aðalmaður í bæjarstjórn, Kristjana Guðmundsdóttir tekur sæti hennar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, Gunnar Geirsson tekur sæti Kristjönu sem varamanns í nefndinni. Magni Harðarson tekur sæti Estherar sem varamanns í menningar- og safnanefnd.
Bæjarráð óskar Esther Ösp velfarnaðar.
-
9. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2014 - 2018
Mál 1406123 Allur ferill málsins
Framsóknarflokkur gerir breytinar á nefndaskipan sinni í fræðslunefnd.
Aðalheiður Vilbergsdóttir tekur sæti aðalmanns í nefndinni í stað Óskars Þórs Guðmundssonar sem verður varamaður.
-
10. Yfirlýsing um samstarf í menntamálum
Mál 1706133 Allur ferill málsins
Umræða tekin um áframhaldandi samstarf í menntamálum.
Bæjarstjóra falið að kynna verkefnið fyrir stjórnum Austurbrúar og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
-
11. Lífeyrisskuldbinding Skipulagsstofu Austurlands
Mál 1709008 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi vegna samnings um lífeyrisskuldbindingar Skipulagsstofu Austurlands.
Vísað til fjármálastjóra til skoðunar.
-
12. Umsóknir um starf atvinnu- og þróunarstjóra 2017
Mál 1707109 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga bæjarstjóra um ráðningu í starf atvinnu- og þróunarstjóra. Bæjarráð samþykkir að bjóða Valgeiri Ægi Ingólfssyni starfið.
-
13. Lausaganga sauðfjár
Mál 1709015 Allur ferill málsins
Bæjarráð óskar eftir við eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og landbúnaðarnefnd að þær sjái til þess að tekið verði á lausagöngu fjár í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins. Bæjarráð felur eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að finna varanlega lausn á þessu vandamáli, enda hefur þetta valdið ónæði og tjóni innan þéttbýlisins.
-
14. Menningar- og safnanefnd - 33
Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 33 frá 30.ágúst 2017, lögð fram til kynningar.