Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Lausaganga sauðfjár

Mál 1709015 Fyrst á dagskrá 4. september 2017, síðast 21. september 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 184 liður 15

    Bæjarráð hefur óskað eftir við eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og landbúnaðarnefnd að sjá til þess að tekið verði á lausagöngu sauðfjár í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins. Fundin verði varanleg lausn á þessu vandamáli enda hefur það valdið ónæði og tjóni innan þéttbýlisins.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til umsagnar í landbúnaðarnefnd og hjá umhverfisstjóra.

  2. Bæjarráð, fundur 532 liður 13

    Bæjarráð óskar eftir við eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og landbúnaðarnefnd að þær sjái til þess að tekið verði á lausagöngu fjár í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins. Bæjarráð felur eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að finna varanlega lausn á þessu vandamáli, enda hefur þetta valdið ónæði og tjóni innan þéttbýlisins.

  3. Bæjarstjórn, fundur 227 liður 3.13

    Fundargerðin „Bæjarráð - 532“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 228 liður 3.15

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 184“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is