Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 531

28. ágúst 2017, kl. 08:30 til 11:40, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 227 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 530, 531 og 532 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson, Einar Már Sigurðarson og Elvar Jónsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 531 frá 28.ágúst 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ný reglugerð um heimagistingu, gististaði og skemmtanahald - verkferlar ofl.

    Mál 1611016 Allur ferill málsins

    Lögð fram til umfjöllunar drög að reglum vegna sölu gistingar í Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir reglur vegna sölu gistingar í Fjarðabyggð fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leiti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Endurbætur á húsnæði Salthússmarkaðarins á Stöðvarfirði

    Mál 1708065 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Salthúsmarkaðarins á Stöðvarfirði með beiðni um að við fjárhagsáætlunargerð 2018 verði gert ráð fyrir auknu framlagi til endurbóta á Samkomuhúsinu.

    Bréfritara er þakkað erindið en sveitarfélagið hefur staðið að endurbótum á húsnæðinu og umhverfi þess á síðustu árum. Verða áframhaldandi endurbætur á húsnæðinu ræddar við næstu fjárhagsáætlunargerð.

    Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar og fjárhagsáætlunargerðar 2018.

  3. 3. Ársreikningur 2016 - Sjóminjasafn Austurlands

    Mál 1708072 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar ársreikningur Sjóminjasafns Austurlands fyrir árið 2016.

    Vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd.

  4. 4. Móttaka gesta á Franska daga og Íslandsdagar í Gravelines 2017

    Mál 1705103 Allur ferill málsins

    Framlagt boð Gravelines á Íslandsdaga 22. til 24. september n.k. með dagskrá.

    Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar verði Pálína Margeirsdóttir og Þóroddur Helgason fræðslustjóri auk fulltrúa Franskra daga. Forseti bæjarstjórnar tilnefndir þriðja fulltrúann á næsta fundi bæjarráðs.

  5. 5. Akstur til og frá athafnasvæðinu að Hrauni kl. 20:00

    Mál 1607068 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um akstur ferðar kl 20:00 að og frá Hrauni í Reyðarfirði um Fjarðabyggð.

    Lagt er til að halda núverandi fyrirkomulagi áfram til áramóta og á sama tíma vinna að því að finna aðra lausn samstarfi við samstarfsaðila.

    Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.

  6. 6. Samningur um félagsstarf aldraðra

    Mál 1708075 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að þjónustusamningi á milli Fjarðabyggðar og Félags eldri borgara á Stöðvarfirði um að félagið taki að sér að tryggja öldruðum á Stöðvarfirði aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi sbr. ákvæði í 40. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Félagsmálanefnd hefur fjallað um samninginn og vísar honum til staðfestingar bæjarráðs.

    Bæjarráð staðfestir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  7. 7. Viðauki við leigusamning um urðun í Þernunesi

    Mál 1708124 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað verkefnastjóra umhverfismála dags. 24. ágúst 2017 um viðauka við leigusamning um leigu á landi til urðunar úrgangs. Eignarhald á landinu hefur færst til Þernu ehf. Einnig er lagður fram viðauki við leigusamning um leigu á landi til urðunar á úrgangi, landnr. 221074.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  8. 8. Ljósleiðaravæðing í dreifbýli Fjarðabyggðar

    Mál 1708073 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Mílu hf. vegna áætlaðrar lagningu ljósleiðara um Suðurfirði sem hluta af verkefninu "Ísland ljóstengt".

    Bæjarstjóra falið að svara erindi Mílu og kalla eftir áliti Póst og fjarskiptastofnunar.

  9. 9. Landsfundur sveitarfélaga um jafnréttismál.

    Mál 1708116 Allur ferill málsins

    Boðað er til landsfundar um jafnréttismál föstudaginn 15. september n.k. sem haldinn verður í Stykkishólmi.

    Bæjarráð felur formanni félagsmálanefndar og félagsmálastjóra að mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar. Vísað til félagsmálanefndar.

  10. 10. Sjávarútvegsfundur 2017 og aðalfundur

    Mál 1708117 Allur ferill málsins

    Boðað er til þriðja sjárvarútvegsfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 7. september 2017 á Siglufirði.

    Bæjarstjóri mun sækja fundinn.

  11. 11. Innanlandsflug sem almenningssamgöngur - Málþing

    Mál 1708130 Allur ferill málsins

    Málþing um innanlandsflug á vegum Byggðastofnunar verður haldið 4. október n.k. á Hótel Natura milli 13:00 og 15:30. Umfjöllun þingsins verður innanlandsflug sem almenningssamgöngur.

    Bæjarráð ásamt bæjarstjóra mun sitja málþingið í tengslum við fjármálaráðstefnu

  12. 12. Málþing um þátttökulýðræði í sveitarfélögum

    Mál 1705117 Allur ferill málsins

    Málþing sveitarfélaga um íbúasamráð og þátttöku íbúa verður haldið 5. september 2017 frá á Grand hótel í Reykjavík kl. 09:30.

    Bæjarstjóri mun sækja þingið.

    Bæjarráð gerir athugasemdir við tímasetningu þingsins þar sem það kallar á að ferðast verður daginn áður og gista eina nótt. Er þetta því miður allt of algengt þegar fundir og ráðstefnur eru á vegum hins opinbera.

  13. 13. Árshlutareikningur Fjarðabyggðar 30.6. 2017 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1708128 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að árshlutareikningi fyrir Fjarðabyggð og stofnanir fyrir fyrstu sex mánuði ársins og stöðuna 30.6. 2017. Árshlutareikningur er lagður fram sem trúnaðarmál.

  14. 14. Rekstur málaflokka 2017 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1705109 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - júní 2017 ásamt sköttum og launakostnaði fyrir janúar - júlí 2017. Einnig sundurliðað deildaryfirlit fyrir fyrstu sex mánuði ársins.

  15. 15. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018

    Mál 1705194 Allur ferill málsins

    Farið yfir drög að römmum til úthlutunar til nefnda fyrir fjárhagsáætlun ársins 2018 ásamt umræðu um fjárfestingaráætlun ársins og til næstu þriggja ára.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2018.

  16. 16. Starfs- og fjárhagsáætlun 2018 íþrótta- og tómstundanefnd

    Mál 1706018 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað frá íþrótta- og tómstundanefndar vegna fjárhagsáætlunar ársins 2018.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2018.

  17. 17. Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila

    Mál 1110040 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem varðar uppgjör á lífeyrisskuldbindingum hjúkrunarheimila sem reknar eru sem sjálfseignarstofnanir með aðkomu sveitarfélaga. Samkomulagið gerir ráð fyrir því að ríkissjóður taki ábyrgð á uppgjöri 97% skuldbindinga og sveitarfélögin 3 %

    Fjármálastjóra falið að fara yfir forsendur samkomulagsins í samráði við framkvæmdastjóra hjúkrunarheimila og leggja fyrir bæjarráð. Vísað til kynningar í félagsmálanefnd.

  18. 18. Framtíð tjaldsvæðis á Eskifirði

    Mál 1605143 Allur ferill málsins

    Sjálfstæðisflokkurinn skipar Kristinn Þór Jónasson í stað Jens Garðar Helgasonar sem fulltrúa í starfshóp um staðsetningu tjaldsvæðis á Eskifirði sbr. samþykkt bæjarráðs frá 20.7.2015.

    Bæjarráð samþykkir að Svanhvít Yngvadóttir sé falin formennska og skipulags- og byggingarfulltrúi vinni jafnframt með hópnum.

  19. 19. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2017

    Mál 1702075 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynning fundargerð 35. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 15. ágúst s.l.

  20. 20. Hafnarstjórn - 182

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 15. ágúst s.l. lögð fram til kynningar.

  21. 21. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 182

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. ágúst lögð fram til kynningar.

  22. 22. Íþrótta- og tómstundanefnd - 38

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til kynningar fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 24. ágúst s.l.

  23. 23. Félagsmálanefnd - 97

    Fundargerðin í heild

    Framlögð fundargerð félagsmálanefndar frá 22. ágúst til kynningar.

    1. 23.1 Samningur um félagsstarf aldraðra1708075
    2. 23.2 Áskorun frá stýrihóp um Heilsueflandi Samfélag í Fjarðabyggð1706096
    3. 23.4 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20181705194
  24. 24. Fræðslunefnd - 43

    Fundargerðin í heild

    Framlögð fundargerð fræðslunefndar frá 23. ágúst til kynningar.