Félagsmálanefnd, fundur 97
22. ágúst 2017, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, aðalmaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varaformaður
Starfsmenn
- Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 531 liður 23
Framlögð fundargerð félagsmálanefndar frá 22. ágúst til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 227 liður 10
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 97 frá 22.ágúst 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Samningur um félagsstarf aldraðra
Mál 1708075 Allur ferill málsins
Framlögð drög að þjónustusamningi á milli Fjarðabyggðar og Félags eldri borgara á Stöðvarfirði um að félagið taki að sér að tryggja öldruðum á Stöðvarfirði aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi sbr. ákvæði í 40. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Félagsmálanefnd hefur fjallað um samninginn og vísar honum til staðfestingar bæjarráðs.
-
2. Áskorun frá stýrihóp um Heilsueflandi Samfélag í Fjarðabyggð
Mál 1706096 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd mun halda gildum heilsueflandi samfélags á lofti í fyrirliggjandi vinnu við fjárhagsáætlun.
-
3. Fjárhagsaðstoð
-
4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018
Mál 1705194 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd ræddi undirbúning launa- og fjárhagsáætlunar félagsþjónustu árið 2018 og mun skoða áherslur á milli funda.