Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 96

26. júní 2017, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Fyrirhuguð koma flóttafjölskyldna frá Reykjanesbæ

    Mál 1706095 Allur ferill málsins

    Þrjár fjölskyldur sem fengu nýlega stöðu flóttamanna fluttu frá Reykjanesbæ til Fjarðabyggðar. Rauði Krossinn á Reyðarfirði tók á móti fjölskyldunum og aðstoðaði þær við flutninga. Félagsmálanefnd þakkar sjálfboðaliðum Rauða krossins fyrir vel unnin störf.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018

    Mál 1705194 Allur ferill málsins

    Félagsmálastjóri gerði grein fyrir ferli við fjárhagsáætlanagerð fyrir árið 2018. Eins og á síðasta ári er drögum að fjárhagsrömmum fastanefnda úthlutað í maí og gert er ráð fyrir að fyrsta tillaga að starfsáætlun verði lögð fyrir fastanefndir að sumri og þar sem fram koma áherslubreytingar á starfsemi ásamt tillögum að breytingum á þjónustu. Farið var yfir fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar og sviðsstjóra falið að gera drög að starfsáætlun á grunni þeirrar umræðu sem fram fór í nefndinni.