Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 95

30. maí 2017, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, varaformaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 524 liður 21

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 95 frá 30.maí 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 225 liður 7

    Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 95 frá 30.maí 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Uppsala 2016

    Mál 1705160 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Uppsala fyrir árið 2016. Félagsmálanefnd vísar ársreikningnum til Bæjarráðs og vekur athygli á ábendingum og athugasemdum endurskoðanda í kjölfar könnunar á ársreikningi félagsins árið 2016.

  2. 2. Ársreikningur 2016 - Hulduhlíð

    Mál 1705167 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Hulduhlíðar fyrir árið 2016. Félagsmálanefnd vísar ársreikningnum til Bæjarráðs og vekur athygli á ábendingum og athugasemdum endurskoðanda í kjölfar könnunar á ársreikningi félagsins árið 2016.

  3. 3. Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum

    Mál 1608100 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísar umfjöllun um áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum til félagsmálanefndar. Teknar voru til umræðu leiðbeinandi reglur Velferðarráðuneytisins um sérstakan húsnæðisstuðning. Félagsmálanefnd hefur nú þegar samþykkt matsviðmið fyrir sérstakan húsnæðisstuðning þar sem tekið er tillit til bæði framfærslubyrði og félagslegra aðstæðna.

  4. 4. 378.mál til umsagnar tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar

    Mál 1704035 Allur ferill málsins

    Velferðarnefnd Alþingis sendi til umsagnar tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar. Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

  5. 5. Félagsleg ráðgjöf

    Mál 1705156 Allur ferill málsins