Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 524

9. júní 2017, kl. 08:30 til 10:23, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 225 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 524 og nr. 525 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jens Garðar Helgason.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 524 frá 9.júní 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018

    Mál 1705194 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað bæjarstjóra er varðar fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 til 2022. Minnisblaði og tillögu fjármálastjóra að bráðabirgðafjárhagsrömmum vísað til fastanefnda.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 5

    Mál 1706039 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar. Viðaukinn er til samantektar á afgreiðslu bæjarráðs um viðhald á skólahúsnæði og leiðréttingar á viðauka 2 og upphaflegri fjárhagsáætlun ársins 2017. Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 5 með breytingum sbr. 5.fundarlið. Viðauka nr. 5 vísað til samþykktar í bæjarstjórn.

  3. 3. Fjármál 2017 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1701089 Allur ferill málsins

    Lagður fram listi yfir 200 stærstu birgja Fjarðabyggðar á árinu 2016 vegna umræðu um innkaup Fjarðabyggðar. Vísað til bæjarstjóra og sviðsstjóra til frekari skoðunar.

  4. 4. Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 2017

    Mál 1705245 Allur ferill málsins

    Lögð fram samantekt fjármálastjóra um innkaupareglur bæjarins. Með vísun til nýrra laga um opinber innkaup nr. 120/2016, er þörf á endurskoðun innkaupareglna Fjarðabyggðar frá grunni. Vísað til fjármálastjóra til frekari skoðunar.

  5. 5. Tillaga um endurnýjun tækja 2017

    Mál 1705108 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að tækjakaupum og sölu ársins 2017. Bæjarráð fór yfir tillöguna og er sammála um að áætlun verði lækkuð úr 11 milljónum í 4 milljónir.

  6. 6. Blómsturvellir 26-32 - sala (leikskólinn Sólvellir)

    Mál 1703037 Allur ferill málsins

    Tilboð vegna sölu Blómsturvalla 26-32 í Neskaupstað. Eitt tilboð barst frá Leigufélaginu Stöplum að fjárhæð 10 milljónir kr. Bæjarráð fór yfir tilboðið og er sammála um að taka ekki tilboði. Fjármálastjóra falið að auglýsa eignina á almennum markaði.

  7. 7. Ársreikningur Uppsala 2016

    Mál 1705160 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Uppsala fyrir árið 2016. Félagsmálanefnd vísaði ársreikningi til bæjarráðs og vekur athygli á ábendingum og athugasemdum endurskoðanda í kjölfar könnunar á ársreikningi félagsins árið 2016. Vísað til fjármálastjóra til áframhaldandi skoðunar í samráði við forstöðumann og félagsmálastjóra.

  8. 8. Ársreikningur 2016 - Hulduhlíð

    Mál 1705167 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Hulduhlíðar fyrir árið 2016. Félagsmálanefnd vísaði ársreikningi til bæjarráðs og vekur athygli á ábendingum og athugasemdum endurskoðanda í kjölfar könnunar á ársreikningi félagsins árið 2016. Vísað til fjármálastjóra til áframhaldandi skoðunar í samráði við forstöðumann og félagsmálastjóra.

  9. 9. Nytjaréttur af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborg á Norðfirði

    Mál 1705243 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Óskað er staðfestingar bæjarráðs á auglýsing um leigu nytjaréttar af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborg í Norðfirði. Leigutímabilið er frá 1. október 2017 til 30. september 2022. Bæjarráð samþykkir efni auglýsingar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að auglýsa nytjaréttinn.

  10. 10. Gatnagerð í hesthúsabyggð á Reyðarfirði

    Mál 1706028 Allur ferill málsins

    Bréf Önnu Berg Samúelsdóttur og Stefáns Hrafnkelssonar er varðar deiliskipulag hesthúsabyggðar á Reyðarfirði og gerð vegar inn í hesthúsahverfið Koll í Reyðarfirði. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  11. 11. Call out for creatives - Neskaupstaður Art Attack 2017

    Mál 1706037 Allur ferill málsins

    Kynning á verkefninu Neskaupstaður Art Attack Residency. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að taka þátt í verkefninu með það sem að nefndinni snýr. Nefndin fól sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og skipulags- og byggingarfulltrúa að útfæra svæði og fleti í samstarfi við forsvarsmenn verkefnisins. Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um allt að 1 milljón, takist af liðnum óráðstafað. Bæjarráð hvetur áhugasama aðila í öðrum bæjarhlutum að horfa til verkefnisins með þátttöku í huga. Vísað til menningar- og safnanefndar til kynningar.

  12. 12. Áskorun til fræðsluyfirvalda vegna nemenda með skilgreinda fötlun

    Mál 1705203 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál. Ályktun nemendaverndarráðs Grunnskólans á Eskifirði frá 2.júní 2017, er varðar nemendur með skilgreinda fötlun. Vísað til fræðslustjóra og fræðslunefndar til meðferðar.

  13. 13. Húsnæðisáætlun sveitarfélaga

    Mál 1705231 Allur ferill málsins

    Bréf Íbúðalánasjóðs frá 24.maí þar sem sveitarfélög eru hvött til að hefjast handa við gerð húsnæðisáætlana.

  14. 14. Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum

    Mál 1608100 Allur ferill málsins

    Minnisblað félagsmálastjóra er varðar breytingar á frítekjumörkum vegna húsnæðisbóta. Vísað til áframhaldandi vinnu hjá félagsmálastjóra og fjármálastjóra.

  15. 15. Fyrirhuguð virðisaukaskattshækkun á ferðaþjónustuna og áhugi ráðherra á Austurlandi

    Mál 1705092 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur framkvæmdastjóra Austurbrúar er varðar fundi á Egilsstöðum í tengslum við breytingar á virðisaukaskattskerfinu, með ráðherrum ferða- og fjármála sem haldinn var 6. júní og framkvæmdastjóra Samtaka aðila í Ferðaþjónustu ( SAF ) sem fyrirhugaður er 13.júní. Bæjarstjóri sótti fund 6.júní. Vísað til forstöðumanns stjórnsýslu.

  16. 16. Samningur um upplýsingamiðstöð á Stöðvarfirði

    Mál 1705250 Allur ferill málsins

    Óskað er staðfestingar bæjarráðs á samningi við Ástrós um rekstur upplýsingamiðstöðvar í Brekkunni á Stöðvarfirði. Bæjarráð samþykkir samning.

  17. 17. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2017

    Mál 1702115 Allur ferill málsins

    Fundargerð 135. fundar stjórnar Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 24.maí 2017, lögð fram til kynningar.

  18. 18. Ársreikningur 2016

    Mál 1706035 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga fyrir árið 2016, lagður fram til kynningar.

  19. 19. Ársreikningur 2016 - Loðnuvinnslan hf.

    Mál 1706036 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Loðnuvinnslunnar fyrir árið 2016, lagður fram til kynningar.

  20. 20. Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlitsins 2016

    Mál 1706032 Allur ferill málsins

    Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir árið 2016, lögð fram til kynningar.

  21. 21. Félagsmálanefnd - 95

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 95 frá 30.maí 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 21.1 Ársreikningur Uppsala 20161705160
    2. 21.2 Ársreikningur 2016 - Hulduhlíð1705167
    3. 21.3 Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum1608100
    4. 21.4 378.mál til umsagnar tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar1704035
    5. 21.5 Félagsleg ráðgjöf1705156
  22. 22. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 178

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 95 frá 6.júní 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 22.1 Tjón vegna stíflu í holræsakerfi1411076
    2. 22.2 735 Strandgata 2 Byggingaráform - löndunarhús og lagnir1706016
    3. 22.3 730 Heiðarvegur 20 - byggingarleyfi - varmadæla1705173
    4. 22.4 740 Marbakki 1 - byggingarleyfi1705171
    5. 22.5 750 Skólavegur 98-112 - byggingarleyfi, nýbygging1705219
    6. 22.6 Leyfisveiting vegna skógræktarframkvæmda í Víkugerði1609156
    7. 22.7 750 Loðnuvinnslan hf - framkvæmdaleyfi, dælulögn frá Hafnargötu 1 að 361706031
    8. 22.8 750 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027,breyting - grjótnáma kappeyri1704081
    9. 22.9 Nytjaréttur af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborg á Norðfirði1705243
    10. 22.10 Ástandsskýrsla - Íþróttahús Eskifjarðar1705237
    11. 22.11 Call out for creatives - Neskaupstaður Art Attack 20171706037