Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Call out for creatives - Neskaupstaður Art Attack 2017

Mál 1706037 Fyrst á dagskrá 4. júní 2017, síðast 22. júní 2017. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 178 liður 11

    Hákon Guðröðarson kom á fundinn og kynnti verkefnið Call out for creatives - Neskaupstaður Art Attack 2017 fyrir nefndinni.

    Hákon óskaði eftir aðkomu sveitfélagsins að verkefninu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að taka þátt í verkefninu með það sem að nefndinni snýr. Nefndin felur sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og skipulags- og byggingarfulltrúa að útfæra svæði og fleti í samstarfi við forsvarsmenn verkefnisins.

  2. Bæjarráð, fundur 524 liður 11

    Kynning á verkefninu Neskaupstaður Art Attack Residency. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að taka þátt í verkefninu með það sem að nefndinni snýr. Nefndin fól sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og skipulags- og byggingarfulltrúa að útfæra svæði og fleti í samstarfi við forsvarsmenn verkefnisins. Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um allt að 1 milljón, takist af liðnum óráðstafað. Bæjarráð hvetur áhugasama aðila í öðrum bæjarhlutum að horfa til verkefnisins með þátttöku í huga. Vísað til menningar- og safnanefndar til kynningar.

  3. Bæjarráð, fundur 524 liður 22.11

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 178“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 225 liður 1.11

    Fundargerðin „Bæjarráð - 524“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Bæjarstjórn, fundur 225 liður 3.11

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 178“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is