Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 225

22. júní 2017, kl. 16:00 til 17:25, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 524

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 524 og nr. 525 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jens Garðar Helgason.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 524 frá 9.júní 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20181705194
    2. 1.2 Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 51706039
    3. 1.3 Fjármál 2017 - TRÚNAÐARMÁL1701089
    4. 1.4 Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 20171705245
    5. 1.5 Tillaga um endurnýjun tækja 20171705108
    6. 1.6 Blómsturvellir 26-32 - sala (leikskólinn Sólvellir)1703037
    7. 1.7 Ársreikningur Uppsala 20161705160
    8. 1.8 Ársreikningur 2016 - Hulduhlíð1705167
    9. 1.9 Nytjaréttur af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborg á Norðfirði1705243
    10. 1.10 Gatnagerð í hesthúsabyggð á Reyðarfirði1706028
    11. 1.11 Call out for creatives - Neskaupstaður Art Attack 20171706037
    12. 1.12 Áskorun til fræðsluyfirvalda vegna nemenda með skilgreinda fötlun1705203
    13. 1.13 Húsnæðisáætlun sveitarfélaga1705231
    14. 1.14 Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum1608100
    15. 1.15 Fyrirhuguð virðisaukaskattshækkun á ferðaþjónustuna og áhugi ráðherra á Austurlandi1705092
    16. 1.16 Samningur um upplýsingamiðstöð á Stöðvarfirði1705250
    17. 1.17 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20171702115
    18. 1.18 Ársreikningur 20161706035
    19. 1.19 Ársreikningur 2016 - Loðnuvinnslan hf.1706036
    20. 1.20 Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlitsins 20161706032
    21. 1.21 Félagsmálanefnd - 951705008F
    22. 1.22 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1781706002F
  2. 2. Bæjarráð - 525

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 524 og nr. 525 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jens Garðar Helgason.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 525 frá 19.júní 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Fasteignamat 20181706055
    2. 2.2 Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 20171706057
    3. 2.3 Kaup sveitarfélaga á fasteignum í eigu Íbúðalánasjóðs1510071
    4. 2.4 Húsnæðisáætlun sveitarfélaga1705231
    5. 2.5 Ferða- og markaðsmál1705166
    6. 2.6 Stefnumótun í fiskeldismálum1703120
    7. 2.7 408.mál til laga um skipulag haf- og strandsvæða,1705137
    8. 2.8 Samstarf í menntamálum1610097
    9. 2.9 Fræðslunefnd - 421706005F
    10. 2.10 Íþrótta- og tómstundanefnd - 361706003F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 178

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 178 og nr. 179, teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 178 frá 6.júní 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Tjón vegna stíflu í holræsakerfi1411076
    2. 3.2 735 Strandgata 2 Byggingaráform - löndunarhús og lagnir1706016
    3. 3.3 730 Heiðarvegur 20 - byggingarleyfi - varmadæla1705173
    4. 3.4 740 Marbakki 1 - byggingarleyfi1705171
    5. 3.5 750 Skólavegur 98-112 - byggingarleyfi, nýbygging1705219
    6. 3.6 Leyfisveiting vegna skógræktarframkvæmda í Víkugerði1609156
    7. 3.7 750 Loðnuvinnslan hf - framkvæmdaleyfi, dælulögn frá Hafnargötu 1 að 361706031
    8. 3.8 750 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027,breyting - grjótnáma kappeyri1704081
    9. 3.9 Nytjaréttur af æðarvarpi á jörðinni Búlandsborg á Norðfirði1705243
    10. 3.10 Ástandsskýrsla - Íþróttahús Eskifjarðar1705237
    11. 3.11 Call out for creatives - Neskaupstaður Art Attack 20171706037
  4. 4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 179

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 178 og nr. 179, teknar til afgreiðslu saman.

    Fundargerð nr. 179 tekin á dagskrá með afbrigðum.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 179 frá 19.júní 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Afréttarmál - Héraðsfé1608075
    2. 4.2 735 Smiðjustígur 2 - byggingarleyfi1706051
    3. 4.3 730 Brekkugata 2 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi1706050
    4. 4.4 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I11611050
    5. 4.5 735 Strandgata 12 - stálgrindarhús - byggingarleyfi1701186
    6. 4.6 750 Skólavegur 68a - byggingarleyfi - klæðing húss1706086
    7. 4.7 730 Eyrarstígur 3 - endurnýjun á lóðaleigusamningi1705176
    8. 4.8 750 Hafnargata 1 - umsókn um stöðuleyfi - Spennustöð1706070
    9. 4.9 750 Hlíðargata 56 - byggingarleyfi endurbætur úti og inni1706087
    10. 4.10 Ársskýrlsa 2016 - Náttúrustofa Austurlands1706065
    11. 4.11 Hraðakstur á Heiðarvegi Reyðarfirði1706025
    12. 4.12 Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlitsins 20161706032
    13. 4.13 Gatnagerð í hesthúsabyggð á Reyðarfirði1706028
    14. 4.14 Tillaga að sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar árið 2016.1606124
    15. 4.15 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20181705194
  5. 5. Fræðslunefnd - 42

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku Pálína Margeirsdóttir og Jens Garðar Helgason.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 42 frá 14.júní 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Fundaáætlun fræðslunefndar haust 20171705199
    2. 5.2 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
    3. 5.3 Viðbyggingaþörf við leikskóla á Eskifirði og Reyðarfirði1611044
    4. 5.4 Áskorun til fræðsluyfirvalda vegna nemenda með skilgreinda fötlun1705203
    5. 5.5 Tölvuver grunnskólanna í Fjarðabyggð1705239
    6. 5.6 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20181705194
    7. 5.7 Útboð á skólamáltíðum í grunnskólum 20171612093
  6. 6. Íþrótta- og tómstundanefnd - 36

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 36 frá 8.júní 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Heimsókn í íþrótta- og tómstundamannvirki á Reyðarfirði
    2. 6.2 Ástandsskýrsla - Íþróttahús Eskifjarðar
    3. 6.3 Úthlutunarreglur íþróttastyrkja uppfærðar 2017
    4. 6.4 Starfs- og fjárhagsáætlun 2018 íþrótta- og tómstundanefnd
  7. 7. Félagsmálanefnd - 95

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 95 frá 30.maí 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Ársreikningur Uppsala 20161705160
    2. 7.2 Ársreikningur 2016 - Hulduhlíð1705167
    3. 7.3 Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum1608100
    4. 7.4 378.mál til umsagnar tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar1704035
    5. 7.5 Félagsleg ráðgjöf1705156
  8. 8. Hafnarstjórn - 181

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð tekin á dagskrá með afbrigðum.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 181 frá 20.júní 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 8.1 Fundargerðir Hafnasamband Íslands 20171701008
    2. 8.2 Fundargerðir CI á árinu 20171701009
    3. 8.3 Aðalfundur Cruise Iceland í Reykjavík þann 19. maí 20171704026
    4. 8.4 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Dmitry Volkov skipstjora á Samskip Hoffell 9. júní 20171706066
    5. 8.5 Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa1005131
    6. 8.6 Norðfjarðarflugvöllur - klæðning1410115
    7. 8.7 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20181705194
    8. 8.8 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði1505078
    9. 8.9 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun1706013
    10. 8.10 Lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði1504173
    11. 8.11 735 Strandgata 2 Byggingaráform - löndunarhús og lagnir1706016
    12. 8.12 750 Loðnuvinnslan hf - framkvæmdaleyfi, dælulögn frá Hafnargötu 1 að 361706031
    13. 8.13 Beiðni um styrk vegna flotbryggju við Sæbergsbryggju á Eskifirði1704090
    14. 8.14 Sjávarútvegssýning 20171705140
    15. 8.15 Umsókn um rannsóknarleyfi vegna fyrirhugaðrar efnistöku við Eyri í Reyðarfirði1705151
    16. 8.16 Fjögurra ára samgönguáætlun 2018 til 2021 - Umsóknir vegna verkefna í hafnargerð og sjóvörnum1706094
    17. 8.17 Ábyrgð umboðsmanna skemmtiferðaskipa1706106
  9. 9. 750 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027,breyting - grjótnáma kappeyri

    Mál 1704081 Allur ferill málsins

    Lögð fram skipulags- og matslýsing vegna breytingar á dreifbýlisuppdrætti Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna grjótnámu í landi Kappeyrar við Fáskrúðsfjörð. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt skipulags- og matslýsinguna fyrir sitt leyti.

    Enginn tók til máls.

    Samþykkt með 9 atkvæðum.

  10. 10. 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I1

    Mál 1611050 Allur ferill málsins

    Tekið á dagskrá með afbrigðum.

    Auglýsingartími er liðinn. Engar athugasemdir bárust.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, reitur I1 á Stöðvarfirði. Uppdráttur með greinagerð, dags. 24. apríl 2017. Málsmeðferð verði í samræmi við 32. gr. skipulagslaga.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir breytingu á Aðalskipulagi - reitur I1 á Stöðvarfirði - með 9 atkvæðum.

  11. 11. Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 5

    Mál 1706039 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar. Viðaukinn er til samantektar á afgreiðslum bæjarráðs um viðhald á skólahúsnæði og leiðréttingar á viðauka 2 og upphaflegri fjárhagsáætlun ársins 2017 auk stefnumörkunar í fiskeldismálum. Bæjarráð hefur samþykkt viðaukabreytinguna. Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.

    Fjárfestingar Tækjamiðstöðvar í málaflokki 36-010 hækka sem nemur kr. 1.000.000 og nema í heildina kr. 52.000.000 og viðskiptastaða Tækjamiðstöðvarinnar við Aðalsjóð lækkar sem því nemur.

    Fjárfestingar Eignarhaldsfélagsins Hrauns í málaflokki 38-010 hækka sem nemur kr. 12.000.000 en engar fjárfestingar voru fyrirhugaðar í félaginu, einnig munu viðhaldsliðir í málaflokki 37-101, 37-103 og 37-202 hækka um kr. 12.500.000 frá áætlun ársins og viðskiptastaða Eignarhaldsfélagsins Hrauns við aðalsjóð lækka sem þessu nemur eða samtals um kr. 24.500.000.

    Fjárfestingar Eignasjóði í málaflokki 32-010 lækka sem nemur kr. 16.000.000 og verða kr. 188.000.000 í stað kr. 204.000.000, einnig munu viðhaldsliðir í málaflokki 31-102, 31-116 og 31-524 hækka samtals um kr. 1.700.000 og viðskiptastaða Eignasjóðs við Aðalsjóðs hækka sem þessu nemur eða samtals um kr. 14.300.000.

    Rekstrarkostnaður vegna kaupa á sérfræðiþjónustu við Skipulags- og byggingarmál 09-220 hækkar sem nemur kr. 5.000.000 og greiðist af eigin fé Aðalsjóðs.

    Handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um 16.200 þúsund krónur til samræmis við ofangreint og verða 92.638 þúsund krónur í árslok 2017.

    Enginn tók til máls.

    Viðauki nr. 5 samþykktur með 9 atkvæðum.

  12. 12. Stefnumótun í fiskeldismálum

    Mál 1703120 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi stefnumótun úr hlaði.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson og Esther Ösp Gunnarsdóttir.

    Bæjarstjórn ákvað með hliðsjón af þekktum fiskeldisáformum í fjörðum Fjarðabyggðar að gangast fyrir mörkun stefnuþátta fyrir fiskeldi á grunni sjálfbærar nýtingar og verndar auðlinda sveitarfélagsisn á haf- og strandsvæðum. Þekkt áform nema samtals 55 þúsund tonnum af eldislaxi sem dreifast á firði Fjarðabyggðar. Stefnuþættir í fiskeldi eru hluti af almennri stefnu Fjarðabyggðar í atvinnumálum. Lagðir fram stefnuþættir Fjarðabyggðar í fiskeldismálum og samþykktir með 9 atkvæðum. Þá liggur fyrir tillaga er lýtur að gerð nýtingaráætlunar í minnisblaði atvinnu- og þróunarstjóra frá 19.júní 2017. Bæjarstjórn samþykkir tillögur í minnisblaði með 9 atkvæðum.

  13. 13. 408.mál til laga um skipulag haf- og strandsvæða,

    Mál 1705137 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsögn bæjarstjóra um frumvarp um skipulag haf- og strandsvæða.

    Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir umsögn með 9 atkvæðum.

  14. 14. Lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði

    Mál 1504173 Allur ferill málsins

    Tilboð í lengingu stálþils við nótaverkstæðið á Eskifirði. Í verkið barst eitt tilboð og var það frá Ísar ehf að upphæð 45,4 millj.kr. eða 108% af kostnaðaráætlun sem nam 42 millj.kr.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að ganga til samninga við tilboðsgjafa.

  15. 15. Samstarf í menntamálum

    Mál 1610097 Allur ferill málsins

    Yfirlýsing um samstarf milli Fjarðabyggðar og nokkurra fyrirtækja um samstarf í menntamálum, þ.m.t. uppbygging Háskólaseturs Austfjarða, auk minnisblaðs atvinnu- og þróunarstjóra.

    Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason og Elvar Jónsson.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum yfirlýsingu um samstarf í menntamálum, það sem lýtur að framlagi sveitarfélagsins í samstarfinu og felur bæjarstjóra undirritun yfirlýsingar.

  16. 16. Kosning forseta bæjarstjórnar kjörtímabilið 2014-2018

    Mál 1406062 Allur ferill málsins

    Tillaga bæjarstjórnar um kosningu forseta bæjarstjórnar til eins árs.

    Tilnefndur er Jón Björn Hákonarson.

    Samþykkt með 9 atkvæðum.

  17. 17. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar kjörtímabilið 2014-2018

    Mál 1406063 Allur ferill málsins

    Tillaga bæjarstjórnar um kosningu 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs. Tilnefndir eru Jens Garðar Helgason og Elvar Jónsson.

    Samþykkt með 9 atkvæðum.

  18. 18. Kosning bæjarráðs kjörtímabilið 2014-2018

    Mál 1406064 Allur ferill málsins

    Tillaga bæjarstjórnar um skipan aðalmanna í bæjarráði til eins árs sbr. samþykktir um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar. Varamenn skipa sæti eftir 39. gr. samþykkta sveitarfélagsins.

    Tilnefnd eru Jens Garðar Helgason formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður og Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Samþykkt með 9 atkvæðum.

  19. 19. Kjör 2017 í nefndir og ráð til eins árs

    Mál 1706081 Allur ferill málsins

    Kosning fulltrúa og varamanna á aðalfund SSA sem haldinn verður 29. og 30.september 2017 á Breiðdalsvík.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að eftirfarandi einstaklingar verði fulltrúar Fjarðabyggðar á aðalfundi SSA.

    Aðalmenn: Jón Björn Hákonarson (B), Pálína Margeirsdóttir (B), Svanhvít Yngvadóttir (B), Hulda Sigrún Guðmundsdóttir (B), Jens Garðar Helgason (D), Valdimar O. Hermannsson (D), Dýrunn Pála Skaftadóttir (D), Ragnar Sigurðsson (D), Sævar Guðjónsson (D), Elvar Jónsson (L), Eydís Ásbjörnsdóttir (L), Esther Ösp Gunnarsdóttir (L), Einar Már Sigurðarson (L), Páll Björgvin Guðmundsson.

    Varamenn:Tinna Hrönn Smáradóttir (B), Þuríður Lillý Sigurðardóttir (B), Jón Kristinn Arngrímsson (B) Einar Björnsson (B), Borghildur Stefánsdóttir (D), Birkir Hauksson (D), Sigurbergur Ingi Jóhannsson (D), Þórdís Mjöll Benediktsdóttir (D), Margeir Margeirsson (D), Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir (L), Ævar Ármannsson (L), Marsibil Erlendsdóttir (L), Sigríður Margrét Guðjónsdóttir (L), Þórdís Jóna Guðmundsdóttir (L).

  20. 20. Sumarleyfi bæjarstjórnar 2017

    Mál 1606067 Allur ferill málsins

    Tillaga forseta bæjarstjórnar.

    Lagt er til að bæjarstjórn taki sumarfrí í júlí og hluta ágústmánaðar sbr. 7. gr. samþykkta Fjarðabyggðar og komi saman að nýju eftir sumarfrí, fimmtudaginn 17. ágúst 2016.

    Einnig er lagt til að bæjarráði verði falið ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála bæjarstjórnar meðan á sumarfríi stendur.

    Enginn tók til máls.

    Tillaga samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.