Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

735 Smiðjustígur 2 - byggingarleyfi

Mál 1706051 Fyrst á dagskrá 19. júní 2017, síðast 22. júní 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 179 liður 2

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Sigrúnar Hörpu Bjarnadóttur, dagsett 7. júní 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við vesturhlið húss hennar að Smiðjustíg 2 á Eskifirði. Viðbyggingin er steyptur kjallari og hæð úr timbri í sama stíl og eldra hús. Samþykki Minjastofnunar Íslands liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  2. Bæjarstjórn, fundur 225 liður 4.2

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 179“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is