Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Leyfisveiting vegna skógræktarframkvæmda í Víkugerði

Mál 1609156 Fyrst á dagskrá 3. október 2016, síðast 22. júní 2017. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 155 liður 6

    Lagt fram bréf Ólafar Sigurbjartsdóttur fh. Héraðs- og Austurlandsskóga, dagsett 23. september 2016, þar sem óskað er svara sveitarstjórnar á því hvort heimilt sé að hefja framkvæmdir við 39 ha skógræktarsvæði í landi Víkurgerðis í Fáskrúðsfirði.

    Umrætt svæði er innan reits O20/N8/Hv6 í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027. Svæðið er því samkvæmt aðalskipulagi opið svæði til sérstakra nota, náttúruverndarsvæði og hverfisverndarsvæði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að um framkvæmdaleyfisskylda framkvæmd sé að ræða þar sem umrætt svæði er innan verndarsvæðis og að tilkynna þurfi fyrirhugaðar framkvæmdir til Skipulagsstofnunar vegna mats á umhverfisáhrifum.

  2. Bæjarstjórn, fundur 208 liður 3.6

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 155“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 178 liður 6

    Lagður fram tölvupóstur Jónínu Óskarsdóttur landeiganda Víkurgerðis í Fáskrúðsfirði þar sem óskað er eftir að Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 verði breytt svo hægt verði að gera ráð fyrir skógrækt innan jarðarinnar. Öll jörðin er samkvæmt aðalskipulagi innan verndarsvæða sem ekki heimila skógrækt.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að aðalskipulagi verði breytt þannig að hægt verði að gera ráð fyrir skógrækt innan jarðarinnar.

  4. Bæjarráð, fundur 524 liður 22.6

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 178“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Bæjarstjórn, fundur 225 liður 3.6

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 178“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is