NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 155
3. október 2016, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 492 liður 21
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 6. október lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 208 liður 3
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson,Páll Björgvin Guðmundsson,Valdimar O Hermannsson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 6. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Snjómokstur í Fjarðabyggð 2016/2017
Mál 1609102 Allur ferill málsins
Farið yfir skipulag og verklagsreglur á snjómokstri veturinn 2016 til 2017.
Sigurður Jóhannes Jónsson forstöðumaður þjónustu- og framkæmdamiðstoð fór yfir skipulag og verklagsreglur í sambandi við snjómokstur. Nefndin felur Sigurði að vinna áfram að málinu og hafa til hliðsjónar það fjármagn sem áætlað er til málaflokksins.
-
2. Náttúrustofa Austurlands - kerfisbundin úttekt á villtu dýralífi í Fólkvanginum Neskaupstað
Mál 1608056 Allur ferill málsins
Frestað til næsta fundar
-
3. 750 Hlíðargata 42 - klæðning húss Byggingarleyfi
Mál 1609166 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Jökuls Fannars Helgasonar, dagsett 28. september 2016, þar sem sótt er um leyfi til að einangra og klæða hús hans, að Hlíðargötu 42 á Fáskrúðsfirði, að utan.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
4. 740 Eyrargata 5 - umsókn um framlengingu á stöðuleyfi vinnubúða
Mál 1609024 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Þuríðar Ingólfsdóttur fh. Héraðsverks ehf, dagsett 5. september 2016, um framlengingu á stöðuleyfi, sem veitt var VHE vegna uppbyggingar leikskóla á Neseyri. Afgreiðslu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur Sviðstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs og skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við forsvarsmenn Héraðsverks. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
-
5. 735 Bleiksárhlíð 18, endurn. lóðarleigus. og afm. bílastæða
Mál 1507100 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Kristins Guðmundssonar og Nönnu Bjarnadóttur, dagsettur 29. mars 2016, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar þeirra að Bleiksárhlíð 18 á Eskifirði. Jafnframt er óskað eftir að tvö bílastæði á götunni, sitt hvoru megin við inngang að húsinu, verði merkt sem bílastæði Bleiksárhlíðar 18. Afgreiðslu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað. Nefndin getur ekki fallist á að bílasvæði á götu verði sér merkt Bleiksárhlíð 18.
-
6. Leyfisveiting vegna skógræktarframkvæmda í Víkugerði
Mál 1609156 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Ólafar Sigurbjartsdóttur fh. Héraðs- og Austurlandsskóga, dagsett 23. september 2016, þar sem óskað er svara sveitarstjórnar á því hvort heimilt sé að hefja framkvæmdir við 39 ha skógræktarsvæði í landi Víkurgerðis í Fáskrúðsfirði.
Umrætt svæði er innan reits O20/N8/Hv6 í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027. Svæðið er því samkvæmt aðalskipulagi opið svæði til sérstakra nota, náttúruverndarsvæði og hverfisverndarsvæði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að um framkvæmdaleyfisskylda framkvæmd sé að ræða þar sem umrætt svæði er innan verndarsvæðis og að tilkynna þurfi fyrirhugaðar framkvæmdir til Skipulagsstofnunar vegna mats á umhverfisáhrifum.
-
7. Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð
Mál 1402076 Allur ferill málsins
Frestað til næsta fundar.
-
8. 10.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði - beiðni um umsögn
Mál 1609087 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 8. september 2016, um umsögn um 10.000 tonna framleiðslu á laxi í Stöðvarfirði. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar frá bæjarráði. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa og hafnarstjóra dagsett 3. október 2016.
Eigna-, skiplags- og umhverfisnefnd samþykkir að ganga frá umsögn á grundvelli umræðna á fundinum og draga að umsögn og vísar til bæjarráðs.
-
9. 10.000 tonna laxeldi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa - beiðni um umsögn
Mál 1609085 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 8. september 2016, um umsögn um 10.000 tonna framleiðslu á laxi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar frá bæjarráði. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa og hafnarstjóra dagsett 3. október 2016.
Eigna-, skiplags- og umhverfisnefnd samþykkir að ganga frá umsögn á grundvelli umræðna á fundinum og draga að umsögn og vísar til bæjarráðs.
-
10. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar
Mál 1605156 Allur ferill málsins
Farið yfir drög að fjárhagsáætlun ársins 2017. Nefndin samþykkir drögin fyrir sitt leiti og vísar til afgreiðslu í bæjarráði
-
11. Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum
Mál 1608100 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar
-
12. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 2016
Mál 1602074 Allur ferill málsins
Fundargerð 131. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar.
-
13. Girðing(steinhleðsla) og frágangur milli Skólavegs og Fáskrúðsfjarðakirkjugarðs
Mál 1403148 Allur ferill málsins
Bréf Eiríks Ólafssonar fh sóknarnefndar Fáskrúðskirkjugarðs um aðkomu Fjarðabyggðar að því að gera steinhlaðinn vegg meðfram Skólavegi. Nefndi samþykkir tillögu sviðstjóra að samstarfssamningi um verkefnið til þriggja ára.
-
14. Beiðni um afslátt af rafmagnsverði
Mál 1609158 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að bæta við eftirfarandi grein við gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar um sölu á raforku:
Viðskiptakjör:
Heimilt er að veita stórum orkukaupendum sérstök viðskiptakjör við sérstakar aðstæður þar sem tekið er mið af stöðu Rafveitu Reyðarfjarðar, magni viðskipta og öðrum samkeppnisaðstæðum.
-
15. Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla
Mál 1606146 Allur ferill málsins
Minnisblað umhverfisfulltrúa varðandi umsókn um styrk til Orkusjóðs til uppbyggingu á innviðum fyrir rafbíla lagt fram til kynningar.
-
16. Förgun á menguðum jarðvegi
Mál 1005017 Allur ferill málsins
Mengaður jarðvegur af Neseyri hefur verið sendur til Noregs til förgunar samkvæmt tilmælum Haust.
-
17. Framkvæmda og þjónustumiðstöð
Mál 1609128 Allur ferill málsins
Tekin umræða um framgang skipulags nýrrar framkvæmda- og þjónustumiðstöðvar