735 Bleiksárhlíð 18, endurn. lóðarleigus. og afm. bílastæða
Mál 1507100 Fyrst á dagskrá 19. september 2016, síðast 13. október 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Lóðir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 154 liður 11
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur málið fyrir að nýju á næsta fundi nefndarinnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 207 liður 5.11
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 154“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 155 liður 5
Lagt fram bréf Kristins Guðmundssonar og Nönnu Bjarnadóttur, dagsettur 29. mars 2016, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar þeirra að Bleiksárhlíð 18 á Eskifirði. Jafnframt er óskað eftir að tvö bílastæði á götunni, sitt hvoru megin við inngang að húsinu, verði merkt sem bílastæði Bleiksárhlíðar 18. Afgreiðslu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað. Nefndin getur ekki fallist á að bílasvæði á götu verði sér merkt Bleiksárhlíð 18.
-
Bæjarstjórn, fundur 208 liður 3.5
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 155“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.