NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 156
17. október 2016, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 494 liður 7
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 156 frá 17.október 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 209 liður 3
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson, Eydís Ásbjörnsdóttir og Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 156 frá 17.október 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir
Mál 1602108 Allur ferill málsins
Hafsteinn Pálsson Ofanflóðasjóði og Hugrún Hjálmarsdóttir verkfræðistofan EFLA kynntu fyrirhugaðir framkvæmdir við Ljósá á Eskifirði fyrir nefndinni.
-
2. Skólabrekka 9 - aukið vindálag
Mál 1412116 Allur ferill málsins
Hafsteinn Pálsson Ofanflóðasjóði fór yfir skýrslu frá Vatnaskilum. Nefndin felur sviðstjóra að kynna skýrsluna fyrir íbúum Skólabrekku 9, 7 og 5 og næstu áfanga varðandi gróðurfrágang á svæðinu.
-
3. Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar
Mál 1606041 Allur ferill málsins
Minnisblað verkefnastjóra umhverfismála dags. 14. október varðandi gjöld og þjónustu sveitarfélaga við meðhöndlun úrgangs kynnt. Lagt fram kostnaðaráætlun við jarðgerð í Fjarðabyggð. Umræðu haldið áfram á næsta fundi.
-
4. Garð- og malarefni
Mál 1609089 Allur ferill málsins
Tillaga um meðhöndlun garð- og malarefnis í Fjarðbyggð. Mögulegt fyrirkomulag kynnt af umhverfisstjóra og verkefnastjóra umhverfismála. Nefndin felur þeim að vinna að kostnaðarmati fyrir næsta fund og samlegðaráhrif með lífrænumheimilisúrgangi.
-
5. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, umsóknir, framvinda og framkvæmd 2017
Mál 1610089 Allur ferill málsins
Tillögur umhverfisstjóra að styrkumsóknum til framkvæmdasjóða ferðamannastaða. Nefndin felur Umhverfisstjóra að sækja um styrki til að halda áfram vinnu við Fólkvang Neskaupstaðar, Hólmanes, Söxu og til frekari uppbyggingar fyrir ferðamenn í Mjóafirði. þá skal einnig sækja um styrk fyrir Völvuleiðið á Hólmanesi, Geithúsagil og Franski minningarreitinn á Fáskrúðsfirði.
-
5. Umhverfisviðurkenning 2016
Mál 1608069 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri kynnti fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd umhverfisviðurkenningar Fjarðabyggðar 2016. Tilnefningar og úrvinnslu þeirra ásamt fyrirkomulag dómnefndar og dagsetning afhendingar viðurkenninganna.
Úrslit verða gerð kunn á afhendingardaginn sem er föstudaginn 21. október.
-
6. Aðgerðaráætlun um aukna úrgangsflokkun
Mál 1609180 Allur ferill málsins
Í framhaldi af bókun undir máli nr. 1606041 er lögð fram aðgerðaráætlun um aukna úrgangsflokkun. umræðu haldið áfram á næsta fundi.
-
7. Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs
Mál 1610100 Allur ferill málsins
Lagt fram minniblað dags. 14. október 2016 frá verkefnastjóra umhverfismála um breytingar á gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs. Verkefnastjóra falið að vinna það áfram fyrir næsta fund.
-
9. 755 Fjarðarbraut 1 - niðurrif Fjós - byggingarleyfi
Mál 1609072 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Kristínar Margrétar Ragnarsdóttur, dagsett 9. september 2016, þar sem sótt er um leyfi til að rífa fjós við Fjarðarbraut 1 á Stöðvarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
10. 755 Fjarðarbraut 1 - umsókn um stöðuleyfi
Mál 1609070 Allur ferill málsins
Lögð fram stöðuleyfisumsókn Kristínar Margrétar Ragnarsdóttur, dagsett 9. september 2016, þar sem sótt er um stöðuleyfi fyrir einn til tvo gáma við Fjarðarbraut 1 vegna framkvæmda við íbúðarhús og niðurrifs á fjósi.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda um stöðuleyfið.
-
11. 730 Hraun 1 Byggingarleyfi - Reyndarteikningar fyrir deigluhreinsun,steypuskáli og málmblöndugeymslu
Mál 1610011 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Halldórs Eiríkssonar, TBL architects fh. Alcoa Fjarðaál sf, dagsett 29. september 2016, þar sem sótt er um samþykki reyndarteikninga fyrir 344 Deigluhreinsun, 500 Steypuskála og 570 Málmblöndugeymslu að Hrauni 1 á Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
12. Efnistaka úr námu við Hvalnes í Stöðvarfirði
Mál 1610111 Allur ferill málsins
Erindi frá Vegagerðinni á Reyðarfirði um að fá leyfi til að taka efni úr námu við Hvalnes í Stöðvarfirði sem er í landi Fjarðabyggðar. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að heimila efnistökuna og felur sviðstjóra ganga frá samkomulagi við Vegagerðina.