Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 494

24. október 2016, kl. 08:30 til 10:55, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 209 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 493 og 494, teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 494 frá 24.október 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Raforkusölusamningar við Fjarðabyggð og Hafnarsjóð

    Mál 1609091 Allur ferill málsins

    Rætt um samninga um orkukaup fyrir Fjarðabyggð og Fjarðabyggðarhafnir. Bæjarráð vísar máli til fjármálastjóra með ósk um gerð minnisblaðs.

  2. 2. Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016 - 3.nóvember

    Mál 1610137 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga verður haldinn fimmtudaginn 3. nóvember 2016 kl. 14:00 í Safnahúsinu í Neskaupstað. Tilnefna þarf fyrir 1.nóvember, einn fulltrúa og annan til vara til setu á fundinum. Vakin er athygli á að loknum aðalfundi verður afmælisdagskrá í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá því að safnið var stofnað. Forstöðumaður Safnastofnuanr verður fulltrúi bæjarins á fundinum og til vara formaður menningar- og safnanefndar.

  3. 3. Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2016

    Mál 1609097 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, frá 23. september 2016.

  4. 4. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2016

    Mál 1602064 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Náttúrustofu frá 11.október 2016, lögð fram til kynningar.

  5. 5. Áfangastaðurinn Austurland - kynning

    Mál 1503052 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu fulltrúar Austurbrúar þær Lára Vilbergsdóttir og María Hjálmarsdóttir og kynntu verkefnið Áfangastaðurinn Austurland.

  6. 6. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017

    Mál 1605024 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um fjárhagsáætlun ársins 2017. Farið yfir mögulegar hagræðingarleiðir til að ná saman fjárhagsramma næsta árs.

  7. 7. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 156

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 156 frá 17.október 2016, lögð fram til kynningar.

    1. 7.1 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir1602108
    2. 7.2 Skólabrekka 9 - aukið vindálag1412116
    3. 7.3 Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar1606041
    4. 7.4 Garð- og malarefni1609089
    5. 7.5 Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, umsóknir, framvinda og framkvæmd 20171608069
    6. 7.5 Umhverfisviðurkenning 20161608069
    7. 7.6 Aðgerðaráætlun um aukna úrgangsflokkun1609180
    8. 7.7 Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs1610100
    9. 7.9 755 Fjarðarbraut 1 - niðurrif Fjós - byggingarleyfi1609072
    10. 7.10 755 Fjarðarbraut 1 - umsókn um stöðuleyfi1609070
    11. 7.11 730 Hraun 1 Byggingarleyfi - Reyndarteikningar fyrir deigluhreinsun,steypuskáli og málmblöndugeymslu1610011
    12. 7.12 Efnistaka úr námu við Hvalnes í Stöðvarfirði1610111
  8. 8. Íþrótta- og tómstundanefnd - 28

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 28 frá 20.október 2016, lögð fram til kynningar.

    1. 8.1 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu
    2. 8.2 Starfsemi Ungmenna og íþróttasambands Austurlands, UÍA 2017
    3. 8.3 Gjaldskrá sundlauga 2017
    4. 8.4 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2017
    5. 8.5 Gjaldskrá íþróttahúsa 2017
    6. 8.6 Íþróttamál í Fjarðabyggð