Bæjarráð, fundur 493
17. október 2016, kl. 08:30 til 10:10, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, formaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 209 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 493 og 494, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Valdimar O. Hermannsson, Einar Már Sigurðarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 493 frá 17.október 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
Mál 1605024 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað fjármálastjóra, frá 16.október 2016, um drög að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017. Fjármálastjóri fór yfir efni minnisblaðsins. Fjárhagsætlun verður lögð fram í bæjarráði 31.október. Vísað til bæjarstjóra til áframhaldandi vinnslu.
-
2. Form og efni viðauka við fjárhagsáætlun
Mál 1610047 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf frá Innanríkisráðuneytinu um form og efni viðauka við fjárhagsáætlanir sveitarfélaga. Vísað til fjármálastjóra til frekari skoðunar.
-
3. Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði
Mál 1603023 Allur ferill málsins
Svarbréf framkvæmdastjóra Eikar fasteignafélags hf. við kauptilboði Fjarðabyggðar vegna Melgerði 13 Reyðarfirði. Vísað til fjármálastjóra til frekari skoðunar.
-
4. Svæðisskipulag fyrir Austurland
Mál 1602151 Allur ferill málsins
Skipan varafulltrúa í starfshóp SSA sem vinnur að svæðisskipulagi fyrir Austurland. Bæjarráð samþykkir að skipa sem varafulltrúa Fjarðabyggðar í starfshóp um svæðisskipulag Austurlands þau Pálínu Margeirsdóttur og Gunnar Jónsson.
-
5. Alþingiskosningar 2016
Mál 1609096 Allur ferill málsins
Kjörfundir í Fjarðabyggð. Yfirkjörstjórn leggur til að kjördeildir í Fjarðabyggð verði sex eins og í flestum undangengnum kosningum; Eskifjörður, Fáskrúðsfjörður, Mjóifjörður, Neskaupstaður, Reyðarfjörður og Stöðvarfjörður. Jafnframt er ákveðið að opnunartími kjörstaða verði frá kl. 09:00 til kl. 22:00, nema í Mjóafirði, þar sem kjörfundur er opnaður kl. 09:00 og lýkur strax og unnt er skv. 89. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis, en þó ekki fyrr en kl. 14:00 og ekki síðar en kl. 17:00. Bæjarráð samþykkir fyrirkomulag kjördeilda.
-
6. Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar
Mál 1610002 Allur ferill málsins
Beiðni Ingólfs Sveinssonar um aðkomu bæjarins að lagfæringu vegar frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu.
-
7. Hækkun mótframlags launagreiðenda i A deild Brúar lífeyrissjóðs
Mál 1610048 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar samkomulag um framtíðarskipan lífeyrismála opinberra starfsmanna og tölvupóstur framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga um lífeyrismál.
-
8. Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016
Mál 1602127 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafns frá 26.september 2016, lögð fram til kynningar og vísað til menningar- og safnanefndar.
-
9. Aðalfundur SSA 2016
Mál 1605076 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundar 2016 lögð fram til kynningar.
-
10. Byggðaáætlun 2017 - 2023
Mál 1604003 Allur ferill málsins
Samráðsfundur um nýja byggðaáætlun verður haldinn 25.október nk. og hefst kl. 16.00. Um er að ræða fund sem frestað var í byrjun mánaðarins. Frestur til að skila inn tillögum fyrir nýja byggðaáætlun rennur út í lok þessarar viku. Tillögum er hægt að skila inn í gegnum vef Byggðastofnunar. Bæjarfulltrúar eru hvattir til að sækja fundinn.