Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 492

10. október 2016, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 208 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 10. október s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1602052 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - ágúst 2016, launakostnað og skatttekjur janúar - september 2016.

  2. 2. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - fræðslunefnd

    Mál 1605157 Allur ferill málsins

    Frá fundi fræðslunefnd 5. október s.l.

    Fræðslunefnd fór yfir drög að starfsáætlun fyrir árið 2017 og fjárheimildir sem nefndin hefur til reksturs málaflokksins. Rekstraráætlunin tekur mið af úthlutunarreglum grunnskóla og drögum að úthlutunarreglum fyrir leikskóla.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017 og frekari skoðunar bæjarstjóra.

  3. 3. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - félagsmálanefnd

    Mál 1605160 Allur ferill málsins

    Frá fundi félagsmálanefndar 4. október s.l.

    Félagsmálanefnd fór yfir drög að starfsáætlun fyrir árið 2017 og fjárheimildir sem nefndin hefur til reksturs málaflokksins.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017 og frekari skoðunar bæjarstjóra.

  4. 4. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - Menningar- og safnanefnd

    Mál 1605178 Allur ferill málsins

    Frá 26. fundir menningar- og safnanefndar.

    Framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir málaflokkinn menningarmál fyrir árið 2017. Jafnframt lögð fram drög að starfsáætlun. Fjárhagsáætlun er innan úthlutaðs fjárhagsramma. Menningar- og safnanefnd samþykkir drög að fjárhagsáætlun og starfsáætlun og vísar til bæjarráðs.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017 og frekari skoðunar bæjarstjóra.

  5. 5. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar

    Mál 1605156 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd 6. október s.l. Nefndin samþykkir drögin fyrir sitt leiti og vísar til afgreiðslu í bæjarráði.

    Fjárhagsáætlun málaflokka og deilda er innan fjárhagsramma.

    Farið yfir drög að fjárfestingaráætlun árið 2017 fyrir sveitarstjóð.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017 og frekari skoðunar bæjarstjóra.

  6. 6. Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum

    Mál 1605167 Allur ferill málsins

    Frá fundi íþrótta- og tómstundanefndar 6. október s.l.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017 og frekari skoðunar bæjarstjóra.

  7. 7. Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir sölu raforku

    Mál 1609158 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir að tillögur sinni eftirfarandi breytingar á gjaldskrá Raveitu Reyðarfjarðar fyrir sölu raforku.

    "Heimilt er að veita stórum orkukaupendum sérstök viðskiptakjör við sérstakar aðstæður þar sem tekið er mið af stöðu Rafveitu Reyðarfjarðar, magni viðskipta og öðrum samkeppnisaðstæðum."

    Bæjarráð staðfestir tillögu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um breytingu á gjaldskrá fyrir orkusölu.

  8. 8. Endurmat á starfsmati starfa slökkviliðsmanna.

    Mál 1610074 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur endurskoðað starfsmat á landsvísu fyrir störf slökkiviliðs- og sjúkraflutningamnna. Gildistími endurskoðunar nær til 1 maí 2014.

    Bæjarráð staðfestir fyrir sitt leyti endurskoðunina. Vísað til fjármálastjóra til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2016.

  9. 9. Gjaldskrá bókasafna 2017

    Mál 1610061 Allur ferill málsins

    Frá menningar- og safnanefnd.

    Farið yfir gjaldskrár safna. Menningar- og safnanefnd leggur til að gjaldskrár bóka- og minjasafna verði óbreyttar á milli ára. Nefndin leggur til að fram haldið verði gjaldfrjálsum afnotum fyrir íbúa Fjarðabyggðar að minjasöfnum líkt og var á árinu 2016. Vísað til staðfestingar bæjarráðs.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017.

  10. 10. Uppsögn/Yfirtaka á ræstingarsamningi við ISS Ísland

    Mál 1610008 Allur ferill málsins

    Iss hefur tilkynnt um uppsögn á ræstingarsamningum fyrirtækisins við Fjarðabyggð. Um er að ræða samninga um rætinga vegna bæjarskrifstofu og fjögurra leikskóla. Jafnframt er tilkynnt um að Fjarðaþrif ehf. og ISS hafi gert samning um yfirtöku þjónustunnar frá og með 1.11.2016 með samþykki sveitarfélagsins.

    Vísað til fjármálastjóra til nánari skoðunar.

  11. 11. Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð

    Mál 1603038 Allur ferill málsins

    Vísað frá fundi fræðslunefndar 5. októer s.l.

    Fjallað var um drög að viðmiðunarreglum um úthlutun tímamagns til leikskóla. Fræðlunefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.

    Vísað til afgreiðslu í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2017.

  12. 12. Heilsueflandi samfélag - Fjarðabyggð

    Mál 1604052 Allur ferill málsins

    Frá íþrótta- og tómstundanefnd 6. október s.l.

    Samstarfssamningur milli Fjarðabyggðar og Embættis landlæknis um þróunarverkefnið "Heilsueflandi samfélag". Verkefnið miðar að því að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa Fjarðabyggðar með markvissum þverfaglegum heilsueflingaraðgerðum. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að skipaður verði þverfaglegur stýrihópur um verkefnið, að samningurinn verði samþykktur og vísar honum til bæjarráðs til staðfestingar.

    Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leiti en felur íþrótta- og tómstundafulltrúa nánari útfærslu í tengslum við hann. Jafnframt er íþrótta- og tómstundanefnd falið að skipa stýrihópinn. Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn.

  13. 13. Hækkun mótframlags launagreiðenda i A deild Brúar lífeyrissjóðs

    Mál 1610048 Allur ferill málsins

    Framlagt og kynnt bréf Brúar lífeyrissjóðs um fyrirhugaða hækkun framlaga launagreiðenda til A deildar sjóðsins frá og með 1. janúar 2017 náist ekki heildarsamkomulag opinberra aðila vinnumarkaðarins og launþegasamtaka. Samkomulag þetta hefur verið í burðarliðnum og var undirritað 19. september s.l.

  14. 14. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES

    Mál 1411143 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál erindi Eflu verkfræðistofu um stöuð hönnunar ljósleiðarakerfis í Fjarðabyggð.

    Farið yfir málið og verður tekið upp síðar.

  15. 15. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 2018

    Mál 1406124 Allur ferill málsins

    Jens Garðar Helgason hefur tilkynnt um framlengingu á leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs til 31.12.2016.

    Valdimar O Hermannsson tekur við störfum sem formaður bæjarráðs til 31.12.2016. Jafnframt tekur Ragnar Sigurðsson sæti aðalmanns í bæjarstjórn til sama tíma.

  16. 16. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 2.nóvember

    Mál 1610068 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Heilbrigðiseftirlits Austurlands en fundurinn verður haldinn 2. nóvember n.k. í Snæfellsstofu í Fljótsdalshreppi.

    Bæjarráð samþykkir að Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri fari með umboð fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  17. 17. Menningar- og safnanefnd - 26

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til kynningar fundargerð menningar- og safnanefndar frá 5. október s.l.

  18. 18. Fræðslunefnd - 32

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til kynningar fundargerð fræðslunefndar frá 5. október s.l.

  19. 19. Félagsmálanefnd - 88

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til kynningar fundargerð félagsmálanefndar frá 4. október s.l.

  20. 20. Íþrótta- og tómstundanefnd - 27

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 6.10. lögð fram til kynningar.

  21. 21. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 155

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 6. október lögð fram til kynningar.

  22. 22. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2016

    Mál 1603122 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð barnaverndarnefndar frá 22. september s.l.