Gjaldskrá bókasafna 2017
Mál 1610061 Fyrst á dagskrá 10. október 2016, síðast 1. desember 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárMenning og söfn
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 492 liður 9
Frá menningar- og safnanefnd.
Farið yfir gjaldskrár safna. Menningar- og safnanefnd leggur til að gjaldskrár bóka- og minjasafna verði óbreyttar á milli ára. Nefndin leggur til að fram haldið verði gjaldfrjálsum afnotum fyrir íbúa Fjarðabyggðar að minjasöfnum líkt og var á árinu 2016. Vísað til staðfestingar bæjarráðs.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017.
-
Bæjarstjórn, fundur 208 liður 2.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 492“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 498 liður 20
Menningar- og safnanefnd hefur lagt til að gjaldskrá bókasafna verði óbreytt á milli ára. Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 212 liður 1.20
Fundargerðin „Bæjarráð - 498“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.