Bæjarstjórn, fundur 212
1. desember 2016, kl. 16:00 til 17:35, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 498
Fundargerðir bæjarráðs nr. 498 og 499, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð bæjarráð, nr. 498 frá 21.nóvember 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20171605024
- 1.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 - 20201610152
- 1.3 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar1605156
- 1.4 Beiðni um endurnýjun á auglýsingasamningi við KFF1609075
- 1.5 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu1608047
- 1.6 750 Skólavegur 14 - endurnýjun á lóðasamningi1609104
- 1.7 Jólasjóður Fjarðabyggðar1311103
- 1.8 Svæðisskipulag fyrir Austurland1602151
- 1.9 Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 2.nóvember1610068
- 1.10 Framboð á lóðum vegna uppbyggingar almennra íbúða1611073
- 1.11 Kynning á tillögu að kerfisáætlun 2016 - 2025 og umhverfisskýrslu1611077
- 1.12 Mannfjöldaþróun í Fjarðabyggð1610180
- 1.13 Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning í mars 20171611080
- 1.14 Málstofa um framtíð ferðaþjónustu á Íslandi1611081
- 1.15 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20171610028
- 1.16 Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 20171610053
- 1.17 Gjaldskrá ferðaþjónustu 20171610027
- 1.18 Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2017 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn1610025
- 1.19 Gjaldskrá minjasafna 20171610029
- 1.20 Gjaldskrá bókasafna 20171610061
- 1.21 Gjaldskrá leikskóla 20171610059
- 1.22 Gjaldskrá skóladagheimila 20171610056
- 1.23 Gjaldskrá skólamáltíða í grunnskólum 20171610058
- 1.24 Gjaldskrá grunnskóla 20171610054
- 1.25 Gjaldskrá tónlistarskóla 20171610060
- 1.26 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 20171610052
- 1.27 Gjaldskrá sundlauga 20171610051
- 1.28 Gjaldskrá íþróttahúsa 20171610050
- 1.29 Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 20171610030
- 1.30 Gjaldskrá Sorpmiðstöðvar - meðhöndlun úrgangs1610100
- 1.31 Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 20171610035
- 1.32 Gjaldskrá framkvæmdaleyfis- og þjónustugjalda skipulagsfulltrúa 20171610037
- 1.33 Gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónsutugjalda byggingafulltrúa 20171610038
- 1.34 Gjaldskrá félagsheimila 20171610062
- 1.35 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 20171610049
- 1.36 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 20171610034
- 1.37 Gjaldskrá tjaldsvæða í Fjarðabyggð 20171610033
- 1.38 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20171610032
- 1.39 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 20171610031
- 1.40 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 20171610063
- 1.41 Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar dreifing 20171610064
- 1.42 Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar sala1610065
- 1.43 Gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20171608072
- 1.44 Gjaldskrá fasteignagjalda 20171610066
- 1.45 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 - álagning útsvars 20171610067
-
2. Bæjarráð - 499
Fundargerðir bæjarráðs nr. 498 og 499, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson
Fundargerð bæjarráð, nr. 499 frá 28.nóvember 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20171605024
- 2.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 - 20201610152
- 2.3 Byggðaþróun - sviðsmyndagreining1611027
- 2.4 Afnotasamningur við eiganda jarðarinnar Högnastaða1411139
- 2.5 Greining á húsnæðisþörf1611104
- 2.6 Raforkusölusamningar við Fjarðabyggð og Hafnarsjóð1609091
- 2.7 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/20171609042
- 2.8 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 20161602064
- 2.9 Verstöðin Ísland1611101
- 2.10 Nordic Expo 20161610098
- 2.11 Launakjör kjörinna fulltrúa1306082
- 2.12 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1611611012F
- 2.13 Hafnarstjórn - 1691611011F
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 161
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Sævar Guðjónsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 161 frá 21.nóvember 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 3.1 Hænsnahald - drög að samþykkt1609078
- 3.2 NOTE - Northern Periphery and Artic Programme 2014-20201611076
- 3.3 Stjórnunar- og verndaráætlun,náttúruvættið Helgustaða, friðlandið og fólkvangurinn Hólmanes1605163
- 3.4 Ársfundur náttúruverndarnefnda og umhverfisstofnunar 20161610112
- 3.5 750 Skólavegur 12 - endurnýjun á lóðaleigusamningi1610114
- 3.6 750 Skólavegur 14 - endurnýjun á lóðasamningi1609104
- 3.7 740 Blómsturvellir 3 - endurnýjun á lóðaleigusamningi1609095
- 3.8 740 Blómsturvellir 5 - endurnýjun á lóðarleigusamning1610082
- 3.9 735 Strandgata 78 - Byggingarleyfi, breytt notkun1610126
- 3.10 Ofanflóðavarnir,frumathugun - Urðabotn, Nes- og Bakkagil1501177
- 3.11 Ályktun frá aðalfundi KFF um málefni Eskjuvallar1611048
- 3.12 Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 2.nóvember1610068
-
4. Hafnarstjórn - 169
Til máls tók Sævar Guðjónsson.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 169 frá 22.nóvember 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 4.1 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20161601010
- 4.2 Samþykkt frá Hafnarsambandsþingi sem haldið var á Ísafirði 13 til 14 október sl.1611071
- 4.3 Skip í hirðuleysi, beiðni um upplýsingar1611072
- 4.4 Umsókn um undnþágu frá lóðsskyldu fyrir Hjört Jónasson skipstjóra á Green Maloy1611047
- 4.5 Aðalfundarboð 2016 - Ársreikningur 20151609022
- 4.6 Ósk um lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði1504173
- 4.7 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna1603089
- 4.8 Umsókn um heimavigtunarleyfi - Eskja hf.1611089
-
5. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
Mál 1605024 Allur ferill málsins
Seinni umræða um fjárhags- og starfsáætlun 2017.
Lögð fram tillaga til síðari umræðu að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 ásamt Starfsáætlun Fjarðabyggðar árið 2017, ásamt greinargerð fjármálastjóra um breytingar sem hafa verið gerðar á áætluninni milli umræðna og áhrifa þeirra á áætlun áranna 2017 - 2020.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi úr hlaði fjárhags- og starfsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017 og breytingum milli umræðna.
Til máls tóku Einar Már Sigurðarson, Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir og Valdimar O. Hermannsson.
Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2017 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir með áorðnum breytingum eru eftirfarandi:
Tölur í milljónum.kr.
Rekstrarniðurstaða - Fjárfestingar - Afb. langtímalána
og leiguskuldbind.
Samstæða A- hluta 27 255 326
Samstæða B- hluta 312 500 151
Samstæða A og B hluta 339 755 476
"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 en vekja athygli á mörgun óvissuþáttum bæði hvað varðar tekjur og útgjöld. Þar vega mest afleiðingar af innfluttningsbanni Rússa og aukinni óvissu með loðnuveiðar (ný aflaregla, slæmar niðurstöður mælinga) hvað varðar tekjur og hinsvegar óvissa vegna kjarasamninga við grunnskólakennara og tónlistarkennara.
Bæjarfulltrúar Fjarðalistans vekja athygli á að enn er að mestu ólokið vinnu við tillögur sem framkomu í skýrslu KPMG ,,Fjarðabyggð til framtíðar“. Þá telja bæjarfulltrúar Fjarðalistans nauðsynlegt að endurskoða tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga.
Það er ljóst að endurskoða þarf áætlunina og er æskilegt að það gerist sem fyrst þegar fyrir liggja nauðsynlegar upplýsingar varðandi óvissuþætti og samþykktir í framhaldi af tillögum KPMG."
Bæjarstjórn samþykkir fjárhags- og starfsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017 með 9 atkvæðum.
-
6. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 - 2020
Mál 1610152 Allur ferill málsins
Seinni umræða um þriggja ára fjárhagsáætlun 2017-2019. Framlögð tillaga að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar til síðari umræðu fyrir árin 2018 - 2020 ásamt greinargerð fjármálastjóra um breytingar á fjárhagsáætlun áranna 2017 - 2020 milli umræðna.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi úr hlaði þriggja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana og gerði grein fyrir helstu forsendum áætlunarinnar.
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.
"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2018, 2019 og 2020 en vekja athygli á mörgun óvissuþáttum bæði hvað varðar tekjur og útgjöld. Þar vega mest afleiðingar af innfluttningsbanni Rússa og aukinni óvissu með loðnuveiðar (ný aflaregla, slæmar niðurstöður mælinga) hvað varðar tekjur og hinsvegar óvissa vegna kjarasamninga við grunnskólakennara og tónlistarkennara.
Bæjarfulltrúar Fjarðalistans vekja athygli á að enn er að mestu ólokið vinnu við tillögur sem framkomu í skýrslu KPMG ,,Fjarðabyggð til framtíðar“. Þá telja bæjarfulltrúar Fjarðalistans nauðsynlegt að endurskoða tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga.
Það er ljóst að endurskoða þarf áætlunina og er æskilegt að það gerist sem fyrst þegar fyrir liggja nauðsynlegar upplýsingar varðandi óvissuþætti og samþykktir í framhaldi af tillögum KPMG."
Bæjarstjórn samþykkir þriggja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2018 - 2020 með 9 atkvæðum.
-
7. Gjaldskrá fasteignagjalda 2017
Mál 1610066 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að álagningu fasteignagjalda á árinu 2017 ásamt viðmiðunum um afslátt fasteignagjalda fyrir elli- og örorkulífeyrisþega samhliða minnisblaði fjármálastjóra um álagninguna. Einnig er lögð fram tillaga að reglum um afslátt af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2017.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum að fasteignagjöld ársins 2017 verði sem hér segir:
Fasteignaskattur A verði 0,50 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur B verði 1,32 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur C verði 1,65 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,70 % af lóðarhlutamati.
Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 3,00% af lóðarhlutamati.
Vatnsgjald verði 0,28 % af húsmati.
Holræsagjald verði 0,32 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald verði 28.070 kr. á heimili.
Sorpeyðingargjald verði 13.322 kr.á heimili.
Fjöldi gjalddaga verði átta, mánaðarlega frá 1. febrúar.
Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.
Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða með 9 atkvæðum að afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði sem hér segir:
a) Hámarks afsláttur af fasteignaskatti fylgi breytingum fasteignamatsstofns og verði kr. 58.757 á árinu 2017.
b) Afsláttur fasteignaskatts er tekjutengdur og miðast við árstekjur ársins 2016 samanber álagningu skattstjóra á árinu 2017 og skulu tekjumörk vera sem hér segir:.
Einstaklingar:
Brúttótekjur allt að kr. 3.201.588 - 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir 4.234.027 - 0 % afsláttur
Hjón og samskattað sambýlisfólk:
Brúttótekjur allt að kr. 4.862.805 - 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir kr. 5.811.703 - 0 % afsláttur
-
8. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 - álagning útsvars 2017
Mál 1610067 Allur ferill málsins
Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð.
-
9. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017
Mál 1609042 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra umboð til að staðfesta fyrirliggjandi samninga um vinnslu afla, vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2016/2017, sem og aðra þá samninga sem berast síðar til staðfestingar.
-
10. Launakjör kjörinna fulltrúa 2013
Mál 1306082 Allur ferill málsins
Bæjarráð hefur lagt til við bæjarstjórn að samþykkt kjararáðs frá 29. október sl. um breytingar á þingfararkaupi sem áttu að gilda frá 1. nóvember sl. verði ekki notaðar sem viðmið við ákvörðun á launum kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð. Laun kjörinna fulltrúa verði því óbreytt að svo stöddu.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson og Einar Már Sigurðarson. Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs samhljóða.