Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 169

22. nóvember 2016, kl. 17:00 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 499 liður 13

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 169 frá 22.nóvember 2016, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 212 liður 4

    Til máls tók Sævar Guðjónsson.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 169 frá 22.nóvember 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016

    Mál 1601010 Allur ferill málsins

    Fundargerð Hafnasambands Íslands nr. 389 dags. 11. nóvember 2016 lögð fram til kynningar.

  2. 2. Samþykkt frá Hafnarsambandsþingi sem haldið var á Ísafirði 13 til 14 október sl.

    Mál 1611071 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 16. nóvember 2016 þar sem lögð er fram samþykkt frá Hafnasambandsþingi sem haldið var á Ísafirði 13. til 14. október 2016 og varðar umhverfismál hafna. Lagt fram til kynningar.

  3. 3. Skip í hirðuleysi, beiðni um upplýsingar

    Mál 1611072 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 16. nóvember 2016 þar sem verðið er að spyrjast fyrir um óreiðuskip í höfnum landsins. Framkvæmdastjóra falið að svara erindinu.

  4. 4. Umsókn um undnþágu frá lóðsskyldu fyrir Hjört Jónasson skipstjóra á Green Maloy

    Mál 1611047 Allur ferill málsins

    Erindi frá Nesskip ehf dags. 17. október 2016 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá öllum höfnum Fjarðabyggðar fyrir Hjört Jónasson skipstjóra á MV Green Maloy.

    Hafnarstjórn samþykkir að heimila undanþágur fyrir Hjört á Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði, en að lóðsskylda verði áfram til hafnar á Norðfirði.

  5. 5. Aðalfundarboð 2016 - Ársreikningur 2015

    Mál 1609022 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Fiskmarkaðar Austurlands dags. 27. október 2016 ásamt ársreikningi félagsins fyrir árið 2015. Lagt fram til kynningar.

  6. 6. Ósk um lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði

    Mál 1504173 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar tillaga að lengingu hafnarkants við Egersund á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að afla tilskilinna leyfa til framkvæmda og láta hefja vinnu við hönnun þilsins og gerð útboðsgagna.

  7. 7. 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna

    Mál 1603089 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað frá siglingarsviði Vegagerðarinnar dags. 16. nóvember 2016 varaðndi hugmyndir um gerð hafnarkants við fiskiðjuver Eskju á Eskifirði. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.

  8. 8. Umsókn um heimavigtunarleyfi - Eskja hf.

    Mál 1611089 Allur ferill málsins

    Erindi frá Fiskistofu dags. 22. nóvember 2016 þar sem óskað er eftir umsögn vegna beiðni Eskju hf um leyfi til heimavigtunar í nýju uppsjávarfrystihúsi á Eskifirði. Framkvæmdastjóra falið að veita jákvæða umsögn um erindið.